Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í umferðarslysi í gær á þjóðvegi 1 við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilkynningu Lögreglunnar á Austurlandi.„Þá voru tveir fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús með sjúkraflugi til Reykjavíkur, erlendir ferðamenn einnig,“ segir í tilkynningunni. „Aðrir voru í kjölfar slyssins færðir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Þeir voru útskrifaðir samdægurs. Meiðsli talin minniháttar.“
Tveir létust í slysinu við Háreksstaðakvísl