Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, segist ekki hafa tekið nægilega hart á hópnauðgun sem framin var í skólanum árið 2024. Kotlikoff sagði þetta í átta mínútna löngu ávarpi til stúdenta og starfsfólks í gær.
Hann segir atvikið skelfilegt og heitir auknu gegnsæi. „Það nístir hjartarætur að hugsa um hvað stúlkan mátti þola,“ sagði Kotlikoff. Málið kveiki erfiðar spurningar um kynferðislega misnotkun, skort á virðingu fyrir mannlegri reisn og skuggahliðar skemmtanahalds, áfengis- og fíkniefnaneyslu.
Málið hefur vakið mikla athygli undanfarið eftir að konan höfðaði mál vegna þess að gerendurnir voru ekki saksóttir á sínum tíma. Ríkisstjóri New York hefur skipað Letitiu James sem sérstakan saksóknara til að rannsaka ásakanir konunnar, sem segir sjö nemendur hafa byrlað sér ólyfjan og nauðgað sér.
Enginn 57 þátttakenda í hópspjalli, þar sem gerendur hvöttu fleiri til þátttöku í brotinu, hefði brugðist við til að stöðva það. Lögmaður konunnar sagði stjórnendur Cornell hafa rekið tvo úr skólanum en boðið hinum mildari refsingu gegn ritgerðarskrifum.