Ekki hefur náðst í lögreglu vegna aðgerðarinnar en lögreglumenn hafa ítrekað áður staðið í aðgerðum á svæðinu vegna samkoma Vítisengla.
Á plakati sem hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum er einmitt boðað til veislu í húsakynnum Vítisengla að Auðbrekku 1 en þar segir að veislan sé á vegum Vítisengla auk annars mótorhjólaklúbbs að nafni Red Devils.
Sjónarvottur lýsti því að hafa séð fjölda lögreglubíla á vettvangi, þar af nokkra með viðbragðsljósin kveikt.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.
Vítisenglar eða Hells Angels, eins og þeir eru þekktir fyrir utan landsteinana, eru víðast hvar skilgreind sem glæpasamtök.
Sem fyrr segir hefur lögreglan áður ráðist í aðgerðir á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Lögregla var með mikinn viðbúnað á svæðinu á sama tíma og klúbburinn hélt upp á fimmtán ára afmæli sitt í maí á þessu ári.
Í september 2025 voru þrír handteknir á samkomu þeirra og svo var aftur lokað fyrir umferð á svæðinu þegar þeir héldu aðra samkomu tveimur vikum síðar.
Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is eða með fréttaskoti hér.