Fullvalda þjóð eða ofurseld þjóð

Jón Magnússon skrifar:
Sameinuðu Arabísku furstadæmin (UAE) hafa hótað Bretum að hætta fjárfestingum og draga sumar til baka ef fótboltaliðið Manchester City þarf að þola refsingu skv. reglum knattspyrnusambandsins breska fyrir að búa til falska reikninga, bókhaldssvika auk ýmiss annars. Sérstaklega er lagt að forsætisráðherra Breta sem var borgarstjóri Manchester.
Árið 2006 keypti Sheik Mansour frá UAE félagið og byrjað var að dæla í það peningum þannig að gatan var greið til að kaupa leikmenn og búa til ofurlið, sem raungerðist.
Nú hótar UAE að það muni láta Breta finna fyrir refsiaðgerðum ef lögum og reglum í landinu verði framfylgt. Þetta er ekkert leyndarmál og Daily Telegraph fjallar ítarlega um málið í dag.
Árið 2024 ætluðu fjárfestar frá UAE að kaupa DT. Vegna þess að rödd stórblaðsins var Íslömsku furstunum ekki að skapi. Blaðið sagði sannleika sem þeir vildu að almenningur fengi ekki að heyra. Með aðstoð ríkisstjórnarinnar í Bretlandi tókst að koma í veg fyrir kaup fjárfesta í UAE á DT.
Þessi dæmi sýna vel í hvaða stöðu Bretland er. Hvernig stendur á því að fyrrum stórveldi eins og Bretland er að nokkru ofurselt smáríki með endalausa olíupeninga? Raunar má spyrja þessarar spurningar og vísa henni til fleiri ríkja í Evrópu.
Kröfurnar í þróuðum lýðræðisríkjum eru svo miklar að óábyrgir stjórnmálamenn kjósa velferð á kostnað framtíðarinnar með því að reka ríkissjóð með endalausum halla sem börnum okkar og barnabörnum er ætlað að greiða einhvern tíma. Velferðarkerfi allra ríkja í Vestur Evrópu nema í Noregi þar sem menn hafa olíupeninga til að hlaupa upp á er algjörlega ósjálbært og ógnar sjálfstæði ríkja.
Vandi lýðræðisins nr. 1 í dag eru gjörsamega óábyrgar velferðarhugmyndir og endalaus krafa stjórnmálamanna að enn skuli aukið við.
Innrásin frá Arabíu er því bæði að senda fótgönguliða sem hælisleitendur, til að þiggja framfærslu og velferð úr tómum sjóðum Vesturlanda og fjárfesta í lykilhlutum, sem nota má til að ógna með ef með þarf og/eða ná tökum á vestrænum þjóðfélögum.
Við kusum fullveldi gegn helsi ESB í þjóðaratkvæðagreiðslunni um daginn og þurfum að varðveita það fjöregg sem fullveldið er m.a. með því að skrúfa fyrir velferðarkrana hælisleitenda sem okkur koma ekki við.