Lögreglan er með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi. Fréttastofu barst ábending um að lögreglubílar væru í götunni en ekki hefur fengist staðfest hver ástæðan er.
Vélhjólasamtökin Vítisenglar eru með félagsheimili í Auðbrekku og á vef Vísis segir að boðað hafi verið til veislu á þeirra vegum og vélhjólaklúbbsins Red Devils.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem lögregla er með mikinn viðbúnað við höfuðstöðvar Vítisengla, meðal annars í maí á þessu ári og tvisvar í september í fyrra þegar minnst þrír voru handteknir. Þá sagði fulltrúi lögreglu að full ástæða væri fyrir slíkum viðbúnaði þar sem samtökin stunduðu skipulagða brotastarfsemi.