Forsetakosningar verða haldnar í Brasilíu í dag. Kjósendur velja einnig þingmenn á löggjafarþing lands og fylkja, nokkra öldungadeildarþingmenn og fylkisstjóra.
Alls gefa þrettán kost á sér í forsetaembættið og skoðanakannanir sýna að mjög mjótt er á mununum með sitjandi forseta Luiz Inacio Lula da Silva og öldungardeildarþingmanninnum Flavio Bolsonaro.
Hann er sonur Jair Bolsonaro, fyrrverandi forseta sem situr í fangelsi fyrir uppreisnartilraun eftir nauman ósigur fyrir Lula í kosningunum 2022. Hvorugur þeirra þykir líklegur til sigurs í fyrri umferðinni og því er fastlega búist við að síðari umferð forsetakosninga verði haldin 25. október.
Alls eru tæpar 159 milljónir á kjörskrá, 16 ára og eldri. Fólki á aldrinum 18 ára til sjötugs er skylt að mæta á kjörstað að undanskildum hermönnum sem ekki mega kjósa meðan þeir gegna herskyldu.
Hafi Bolsonaro betur bætist Brasilía í stækkandi hóp ríkja Rómönsku Ameríku þar sem hægrisinnaðir frambjóðendur hafa náð kjöri. Lula hefur sagt fullveldi Brasilíu í húfi vegna þrýstings frá Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Hann hefur ekki lýst opinberlega yfir stuðningi við Bolsonaro en kveðst fylgjast grannt með kosningunum. Lula forseti hefur varað við mögulegri erlendri íhlutun í kosningarnar.
Bolsonaro hefur lagt áherslu á harða öryggisstefnu og aðhald í ríkisfjármálum. Hann hefur sakað Lula um vanhæfni og bent á síhækkandi framfærslukostnað til marks um hana. Báðir hafa hvatt fylgismenn sína til að mæta á kjörstað svo koma megi í veg fyrir aðra umferð.