Alþýðusamband Íslands styður áform dómsmálaráðherra um að veita fólki utan EES ekki dvalarleyfi til að koma hingað til lands sem au-pair. Sá hluti frumvarps ráðherra var unninn í samráði við ASÍ. Átta af hverjum tíu sem fengu slík leyfi í fyrra komu frá Filippseyjum.
Ungmenni frá Filippseyjum, mest konur, hafa komið í stórum stíl til Íslands síðustu ár á svokölluðu Au-pair leyfi, í vistráðningu. Frá 2017 til 2024 voru 766 dvalarleyfi gefin út og 78% þeirra voru til Filippseyinga. Á síðasta ári fóru 80 prósent allra leyfa til fólks utan EES til Filippseyinga.
Nái frumvarp dómsmálaráðherra fram að ganga verður útgáfu leyfa til fólks utan EES, vegna vistráðningar, hætt. Þau sem þegar hafa dvalarleyfi halda því þó út leyfistímann. Þá verður enn hægt að koma á au-pair sambandi innan Evrópu.
Nýlega var sama breyting gerð í Noregi. Verkalýðshreyfingin hefur viðrað áhyggjur af vistráðningarkerfinu, sér í lagi vegna fólks sem kemur frá ríkjum utan EES, því það hefur nær engin réttindi og ekki leyfi til að sækja aðra vinnu í landinu ef vistin gengur illa og hefur lítið bakland.
Leið til að fá ódýrt vinnuafl inn á íslensk heimili
„Upprunalegur tilgangur er menningarskipti en þetta virðist vera orðin leið til þess að fá ódýrt vinnuafl inn á íslensk heimili,“ segir Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ.
Fólk sé þá farið að vinna mun meira en gert er ráð fyrir og njóti ekki réttinda kjarasamninga né stéttarfélaga. Eins og lögin eru núna má einstaklingur í vistráðningu aðstoða fjölskylduna í allt að 30 klukkustundir á viku og fá vasapening sem nemur 60 þúsund krónum á mánuði.
Oft að vinna mun meira en leyfilegt er en njóta engra réttinda
„Þessir einstaklingar, þó þeir megi ekki vinna, eru stundum á tveimur heimilum að vinna að reyna að afla sér auka peninga, þannig að við teljum að þarna hafi kerfið einhvern veginn þróast frá upprunalegum tilgangi þessi,“ segir Saga. Fólk sé að vinna mun meira en gert er ráð fyrir og njóti ekki réttinda kjarasamninga né stéttarfélaga.
Auglýsa eftir meiri vinnu eða hvort fólk sé til í að „deila au-pair“
Ekki þarf að leita lengi á samfélagsmiðlum til að sjá að dæmi eru um að einstaklingar hafi unnið mun meira en leyfilegt er, fólk auglýsi eftir au-pair sem sé til í að taka að sér aukavinnu, passa fleiri börn, þrif eða hreinlega hvort tvö heimili séu til í að deila einni au-pair.
Úrskurður kærunefndar útlendingamála frá 2022 sýni fram á misnotkun kerfisins hér á landi. Þá hafi Útlendingastofnun, sem gefur út leyfin, fengið þó nokkrar kvartanir og ábendingar um illa meðferð.
Ekki raunhæft að hafa eftirlit með þeim hætti að nóg væri að herða reglur
Hefði ekki verið eðlilegra að ykkar mati að herða reglur eða skýra frekar en að taka algjörlega fyrir það að fólk utan EES geti komið hingað sem Au-Pair?
„Við teljum ekki raunhæft að hægt sé að hafa nægilegt eftirlit með þeirra kjörum og passa nógu vel upp á þau,“ segir Saga.
Því þetta er ekki skilgreind vinna og þau ekki tryggð af allri þessari umgjörð sem við höfum byggt upp fyrir vinnumarkaðinn. Auk þess er þetta inni á heimilum og það er mjög erfitt að hafa eftirlit með kjörum fólks inni á heimilum, segir Saga.