Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir

Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir

Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir

Hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði horfinn – en sagan situr eftir

Hvarf lít­ils hjarnskafls í Esj­unni er smá­vægi­leg­ur at­burð­ur í sam­an­burði við hörf­un ís­lenskra jökla. En hann er hluti af stærri mynd: vax­andi orkuó­jafn­vægi jarð­ar hit­ar loft og höf og bræð­ir snjó, jökla og haf­ís.

Andri Snær Magnason lýsir í Tímanum og vatninu hvernig deyjandi jökull hverfur ekki endilega með látum. Ísinn bráðnar í hita og sól, veikist og hverfur að lokum hljóðlega. Það sama á við, í miklu smærri mælikvarða, um gamla hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði. Deyjandi hjarnskafl er ekki dramatísk sjón. Hann þynnist, brotnar upp í litlar leifar og einn daginn er hann einfaldlega ekki lengur þar.

Þannig er nú komið fyrir hjarnskaflinum í Gunnlaugsskarði í Esju. Síðast var staðfest að hjarnskaflinn væri enn til staðar 12. september. Þá voru aðeins tvær litlar hjarnleifar eftir. Emil Hannes Valgeirsson, sem lengi hefur fylgst með snjóalögum í Esju, sá hann ekki lengur með sjónauka 14. september, þótt hann sæi enn glitta í skaflinn við Kerhólakamb. Pétur Ásbjörnsson hafði daginn áður lýst Gunnlaugsskarðsskaflinum sem litlum og alveg að hverfa og sá hann ekki heldur að morgni 14. september.

Í könnunarferð 14. september var aðeins ísleif eftir, 157 cm á breidd, 187 cm á lengd og um 4 cm á þykkt. Daginn eftir, 15. september, var skaflinn horfinn. Ég náði ekki að horfa á síðustu andartökin – þegar síðasti klakinn bráðnaði og síðustu droparnir runnu í Kollafjarðará.

ÍsleifarÍsleifar 14. september kl. 17:18

Skaflinn í Gunnlaugsskarði hefur lengi verið eins konar náttúrulegur loftslagsvísir í Esjunni. Veðurfræðingurinn Páll Bergþórsson tók saman heimildir um afdrif hans aftur á 19. öld og benti á sterk tengsl milli hitafars og þess hvort skaflinn lifði sumarið. Athygli Reykvíkinga á skaflinum á sér langa sögu. Í Tímanum árið 1962 var Gunnlaugsskarði lýst sem hvilftinni sem blasir við frá Reykjavík, „og snjórinn tollir lengst í“.

Athuganirnar hafa raunar lengi verið eins konar borgaravísindi. Jón Eyþórsson veðurfræðingur skráði hjá sér hvenær fannir í Esju hurfu og hvatti Reykvíkinga sem fylgdust með snjóalögum fjallsins til að bæta við upplýsingum úr eigin dagbókum. Sú hefð lifir enn.

Þegar hvarfárin eru sett upp frá 1847 til dagsins í dag kemur skýrt mynstur í ljós. Skaflinn hefur lifað af í um 80% þeirra ára sem upplýsingar ná til, en hvarfárin eru langt frá því að vera jafndreifð í tíma. Samkvæmt samantekt Páls Bergþórssonar lifði skaflinn af öll sumrin 1965–1997. Nýfundnar samtímaheimildir vekja þó spurningar um einstök ár á tímabilinu og sú heimildavinna stendur enn yfir, en frá lokum 20. aldar hafa hvarfárin hins vegar orðið mun tíðari. Einstök ár ráðast þó ekki af sumarhita einum.

Vetrarsnjór og fjölær hjarnforði mynda þann „höfuðstól“ sem sumarið gengur á, en hiti, sólgeislun, vindur, raki og yfirborð skaflsins ráða síðan miklu um hversu hratt hann bráðnar.

Hjarnskaflinn í GunnlaugsskarðiSamantektir Páls Bergþórssonar og Veðurstofu Íslands, samtímaheimildir úr dagblöðum og síðari vettvangsathuganir. Gögn 1847–2026 tekin saman og endurrýnd af höfundi.

Bráðnunin reiknuð fyrirfram

Þegar skaflinn var mældur 5. september var hann 17,5 metrar á lengd og mest 6,5 metrar á breidd. Á mælistað voru að minnsta kosti 35 sentimetrar af gömlum hjarni niður á harðan ís.

Í kjölfarið var sett upp einfalt bráðnunarlíkan. Það byggði fyrst á svonefndri gráðudagaaðferð en var síðan leiðrétt fyrir sólgeislun, vindi, raka og ástandi gamla hjarnsins. Spáin var gerð meðan skaflinn var enn mælanlegur og benti til þess að hann gæti horfið um miðjan september. Hvarfið 15. september varð þannig prófun á spá sem hafði verið sett fram meðan skaflinn var enn mælanlegur, en ekki skýring sem var smíðuð eftir á.

Hjarnskafli að hverfa

Kerhólakambur gæti tekið við keflinu

Sagan á sér líka áhugaverðan hliðarlegg. Páll Bergþórsson taldi vert að rannsaka skaflinn við Kerhólakamb vestar í Esju. Hann taldi að sá skafl hyrfi oftar og gæti því gefið viðbótarupplýsingar á kaldari tímabilum þegar Gunnlaugsskarðsskaflinn lifði ár eftir ár. Hann taldi slíka rannsókn þó of vandasama á sínum tíma.

Haustið 2026 kom upp óvenjuleg staða. Kerhólakambsskaflinn sást enn með sjónauka 14. september en Gunnlaugsskarðsskaflinn ekki. Emil Hannes Valgeirsson, sem lengi hefur fylgst með snjóalögum í Esju, gekk að Kerhólakambsskaflinum 15. september. Skaflinn sást ekki úr fjarlægð en leyndist enn í litlum slakka og mældist um 3,4 × 3,2 metrar, eða 6-7m² en skaflinn var óreglulegur að lögun. Að sögn Emils er óvenjulegt að hann endist lengur en Gunnlaugsskarðsskaflinn, en skráningar hans benda til þess að það hafi einnig gerst árið 2012. Skaflinn var þá að þrotum kominn og kann að hafa horfið í slagveðrinu daginn eftir.

Atvikið sýnir jafnframt hversu varlega þarf að túlka eldri heimildir sem byggjast eingöngu á því hvort skaflar sáust frá Reykjavík.

Áhugi á slíkum snjó- og hjarnsköflum er ekki bundinn við Ísland. Í Skotlandi hefur Sphinx-skaflinum í Garbh Choire Mòr verið fylgt lengi og vísindamenn í áströlsku Ölpunum hafa rannsakað breytingar á tugum langlífra snjóskafla. Þessir litlu snjóforðar geta varðveitt upplýsingar um samspil vetrarsnjóar, sumarhita og staðbundinna aðstæðna sem stærri loftslagsmælikvarðar sýna ekki með sama hætti.

Hvarf lítils hjarnskafls í Esjunni er smávægilegur atburður í samanburði við hörfun íslenskra jökla. En hann er hluti af stærri mynd: vaxandi orkuójafnvægi jarðar hitar loft og höf og bræðir snjó, jökla og hafís. Á Norður-Atlantshafi fylgjast vísindamenn jafnframt með áhrifum hlýnunar og aukins ferskvatns á stærri haf- og loftslagskerfi, þar á meðal AMOC.

Fönnin í Gunnlaugsskarði og veginn hiti í ReykjavíkHeimildir: Mánaðarhiti í Reykjavík frá Veðurstofu Íslands og NOAA GHCN-M. Hvarfár byggja á samantekt Páls Bergþórssonar, samtímaheimildum og síðari athugunum. Hitinn er veginn samkvæmt aðferð Páls.

Fönnin sem hitamælir

Páll Bergþórsson veðurfræðingur sýndi sterk tengsl milli hitafars og þess hvort hjarnskaflinn í Gunnlaugsskarði lifði sumarið. Myndin uppfærir samanburð Páls til ársins 2025 og sýnir hvarfið 2026 sérstaklega, en hitatímabilinu 2026 var ekki lokið þegar greinin var skrifuð. Rauðir punktar sýna ár þegar skaflinn hvarf en bláir þegar hann lifði af. Hitinn er veginn samkvæmt aðferð Páls: hver mánuður frá maí til september vegur tvöfalt á við mánuðina frá október til apríl. Sumarhitinn fær þannig um 59% vægi en hiti undanfarandi vetrar um 41%. Hvarfárin þéttast greinilega á hlýrri tímabilum. Veginn hiti ársins 2025 var 6,94 °C og skaflinn hvarf þá strax um 6. ágúst. Skaflinn hvarf þó einnig árið 2024, þegar veginn hiti var aðeins 5,75 °C. Sá munur undirstrikar að hitinn einn segir ekki alla söguna. Snjósöfnun, stærð skaflsins að vori og uppsafnaður fjölær hjarnforði hafa einnig veruleg áhrif.

Skaflinn er lítill, en sagan sem hann segir er mikil.

#gunnlaugsskarði #hjarnskaflinn #horfinn #sagan #situr


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27280/hjarnskaflinn-i-gunnlaugsskardi-horfinn-en-sagan-situr-eftir/

📰 Aðrar fréttir

Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
📅 03.10.2026 👁️ 0
Psilocybin dró úr merkjum um heilaskaða eftir endurtekin höfuðhögg
Ný ritrýnd rannsókn á rottum sýnir minni heilabjúg, minna magn óeðlilegs tau-próteins og breytingar á tengingum heilans eftir gjöf psilocybins. Vísind...
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
📅 03.10.2026 👁️ 0
Banna áfengissölu í Kujalleq í Grænlandi
Frá og með gærdeginum er bannað að selja og framreiða áfengi í sveitarfélaginu Kujalleq á Grænlandi. Heimastjórn Grænlands barst beiðni frá sveitarstj...
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 0
La Gradiva hlaut Gullna lundann - Vísir
Stiklu úr La Gradiva má sjá hér að neðan. Í fréttatilkynningu frá hátíðinni er greint frá verðlaunahöfum hátíðarinnar en alls voru veitt sex verðlaun ...
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
📅 03.10.2026 👁️ 0
Fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands segir Pútín ekki þora að viðurkenna að stríðið hafi verið mistök
Mikhail Kasyanov, fyrrverandi forsætisráðherra Rússlands, segir Vladimír Pútín Rússlandsforseta ekki reiðubúinn til að semja um stríðslok í Úkraínu. H...
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segja raunverulegan rannsóknarlögreglumann minna mjög á Ólaf Darra í Ófærð
Tveir umsjónarmenn eins vinsælasta fréttaskýringarþáttar í heimi um sönn sakamál líkja rannsóknarlögreglumanni sem leysti morðmál, þar sem maður var m...
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda - Vísir
New York Times greinir frá því að flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum hafi upplýst strandgæsluna um að samskipti við flugvélina hefðu rofnað um klukkan s...
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segir af sér eftir misheppnaða aftöku
Frank Strada, fangelsismálastjóri í Tennessee í Bandaríkjunum, hefur sagt af sér. Það gerir hann í kjölfar þess að aftaka Christu Pike mistókst á miðv...
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mun mögulega hefja sérstaka athugun á málshraða atvinnuvegaráðuneytisins vegna ítrekaðra kvartana
Umboðsmaður Alþingis hefur upplýst atvinnuvegaráðuneytið um að til skoðunar sé að embættið taki upp frumkvæðisathugun vegna ítrekaðra kvartana yfir þe...
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hrekktu pabba Fannars í söfnunarþætti Reykjalundar
Gunna Dís og Fannar Sveinsson, sem stýrðu skemmtidagskrá í söfnunarþætti fyrir endurbætur á Reykjalundi slógu á létta strengi í viðtali við Svein Guðm...
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
📅 03.10.2026 👁️ 0
Man shot dead in East Acton as people gather for memorial service
The 40-year-old died at the scene in west London from a gunshot wound, the Met Police said.
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tennessee prison chief to resign after Christa Pike's failed execution
Pike survived two lethal injections on Wednesday and is currently in critical condition in hospital.
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Haustbingó Blökastsins í beinni - Vísir
Þremenningarnir Auðunn Blöndal, Egill Einarsson og Steindi Jr. hafa gert það að árlegri hefð að halda bingó á haustin og í ár verður engin breyting á....
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Allir eru að tala um gervigreind en fáir greiða fyrir notkun hennar
Aðeins um 2% bandarískra heimila greiddu fyrir gervigreindarþjónustu í apríl síðastliðnum, samkvæmt nýrri samantekt fjárfestingarfélagsins Andreessen ...
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
📅 03.10.2026 👁️ 2
RÚV harðlega gagnrýnt fyrir myndbirtingu frá slysstaðnum á Jökuldal - „Þetta er bara ekki í lagi„
Fréttastofa RÚV hlýtur töluverða gagnrýni á Facebook-síðu sinni fyrir að birta mynd frá Jökuldal þar sem alvarlegt umferðarslys átti sér stað fyrr í d...
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega
Þörf á að styrkja endurhæfingu barna verulega Alma Möller heil­brigð­is­ráð­herra hef­ur rætt við Ingu Sæ­land fé­lags­mála­ráð­herra um óljós mörk á ...
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
„Okkur finnst við vera undan­skilin“ - Vísir
Samkvæmt greiningu sem sambandið fékk hagfræðing frá Context til að gera eru tekjur ríkissjóðs sem rekja má til Austurlands 54,2 milljarðar á ári en ú...
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þúsundir manna mót­mæla í 50 borgum - Vísir
Fréttastofa Breska ríkisútvarpsins greinir frá. Mótmælendur kalla eftir betri löggjöf fyrir leigjendur en tillögur ríkisstjórnarinnar gegn húsnæðiskre...
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Gul viðvörun vegna skriðuhættu á Vestfjörðum
Gul viðvörun er í gildi vegna skriðuhættu á norðanverðum Vestfjörðum. Á vef Veðurstofu Íslands segir að síðustu dagar hafi verið mjög úrkomusamir víða...
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
📅 03.10.2026 👁️ 1
Telur að það mætti breyta vinnumarkaðslöggjöfinni
„Sumir segja að hún hafi bara þjónað vel. Ég held að það sé hægt að breyta. Ég hef bent á það að ég vilji sjá eina löggjöf,“ segir Gylfi Dalmann Aðals...
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
📅 03.10.2026 👁️ 2
Verkleg og bókleg ökupróf ekki lengur í boði á Hvolsvelli
Ökukennari í Rangárvallasýslu furðar sig á þeirri ákvörðun Samgöngustofu og Frumherja að hætta að leyfa þeim sem eru að læra á bíl að taka ökupróf, ve...
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag - Vísir
Greint var frá rannsókninni á Vísi en hún er unnin af alþjóðlegri hugveitu að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og er sú fyrsta sinnar tegundar. Um ...
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sigmundur Ernir skrifar: Áráttan sú arna að hafa ekki efni á samfélagi
Mynd Það skiptir máli hvort stjórnað er af félagshyggju eða frjá
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fundu hvor aðra í prjónaskapnum - Vísir
Nanna er rafmagnsverkfræðingur og stofnaði Knittable til að hjálpa prjónurum að vera sjálfstæðari í sköpun sinni með hjálp tækni. Thelma er fatahönnuð...
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alvarlegt umferðarslys á Austurlandi
Um klukkan hálf tólf í dag barst lögreglu á Austurlandi tilkynning um alvarlegt umferðarslys á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Þetta kemur fram í tilky...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Jökuldal: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss. Hópslysaáætlun var virkjuð.Átt...
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Austurlandi: Átta manns í fjórum bílum
📅 03.10.2026 👁️ 0
Tvær þyrlur kallaðar út að alvarlegu slysi á Austurlandi: Átta manns í fjórum bílum
Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðaleið á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss við Hárekstaðakvísl. Hópslysaáætlun var vir...
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þriggja prósenta raunvextir milli stýrivaxta og verðbólgu „náttúrlega bara galið“
Langtímaatvinnuleysi er að aukast, segir forseti ASÍ sem telur stýrivexti Seðlabankans koma niður á samfélaginu öllu. Formaður efnahags- og viðskiptan...
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
📅 03.10.2026 👁️ 2
Bæjarstjóra hampað af Time fyrir að taka sér fæðingarorlof
Shoko Kawata vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún tilkynnti að hún hygðist taka sér fæðingarorlof, fyrst allra bæjarstjóra í Japan. Fyrir ákvörð...
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Kristrún miðlæg í starfsaftökum
Kristrún miðlæg í starfsaftökum Fréttin3. október 2026Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Starfsaftökur í stjórnarráð...
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
📅 03.10.2026 👁️ 2
Alison Hammond returns home from hospital after rushing off This Morning
The This Morning presenter said she believes she experienced a panic attack on Friday's show.
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Truflun á stafrænum ökuskírteinum
Truflun veldur því að ekki virkar að uppfæra stafræn ökuskírteini í Ísland.is smáforritinu um þessar mundir. Stafrænu ökuskírteinin eru því ekki nothæ...
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Mótmælt í meira en 50 borgum og bæjum
Skipulögð mótmæli fara fram í meira en 50 borgum og bæjum á Spáni í dag. Mótmælin snúa að húsnæðismálum, ekki síst leigumarkaðnum.Mótmælin hófust efti...
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
📅 03.10.2026 👁️ 2
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa
Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er ...
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
📅 03.10.2026 👁️ 2
Sagðist flýja ofbeldi íslensks eiginmanns – brottvísun staðfest
Kærunefnd útlendingamála hefur staðfest brottvísun konu frá Namibíu og tveggja ára endurkomubann. Konan sagðist hafa yfirgefið íslenskan eiginmann sin...
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
📅 03.10.2026 👁️ 2
Notaði öxi og ætlaði sér að fremja hryðjuverk
Saksóknari í Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem rannsakar árás flugmanns á flugstjóra FlyDubai segir að hann hafa ráðist að honum með öxi og hann ha...
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Taka sig upp á ógnar­hraða og smella beltinu af - Vísir
Ökumennirnir sýna þá ökuhraðann á mælaborðinu og sýna sjálfa sig smella öryggisbeltinu af áður en þeir deila myndefninu á samfélagsmiðlum. Orðið ökuní...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna á­reksturs - Vísir
Hópslysaáætlun hefur verið að virkjuð á Austurlandi vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal.
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tvær þyrlur sendar og hóp­slysaáætlun virkjuð vegna al­var­legs slyss - Vísir
Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi fyrst frá. Tvær þyrlur hafa verið kallaðar út vegna slyssins. Lögregl...
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Átta í bílunum fjórum: Sumir al­var­lega slasaðir - Vísir
Greint verður frá nýjust vendingum í lifandi fréttavakt hér neðst.  Greint er frá slysinu í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi en RÚV greindi f...
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
📅 03.10.2026 👁️ 3
Furðar sig á viðbrögðum Ásdísar við gagnrýni á umdeilt útboð - „Bæði stjórnmálamenn og því kannski eðlilegt að við stundum stjórnmál“
Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í bæjarstjórn Kópavogs furðar sig á viðbrögðum Ásdísar Kristjánsdóttur, bæjarstjóra og oddvita Sjálfstæði...
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
📅 03.10.2026 👁️ 3
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu...
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
📅 03.10.2026 👁️ 2
HOUSING PROTESTS TAKE TO THE STREETS IN FOUR CANARY ISLANDS
Housing protests are taking place across four Canary Islands this weekend as campaigners demand action over rents, evictions and access to affordable ...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 3
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss í Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs í Jökuldal á Austurlandi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsin...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs á Jökuldal á Austurlandi.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnarfélagsins...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðaslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á...
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs umferðarslyss á Jökuldal
Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð vegna fjögurra bíla áreksturs við Háreksstaðakvísl á Jökuldal á Austurlandi.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á ...
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 3
Smella af sér bílbeltunum á ógnar­hraða og breytingar í Kerlingar­fjöllum - Vísir
Orðið ökuníðingur sé notað í jákvæðri merkingu meðal afmarkaðs hóps.  Við kynnum okkur einnig atvik sem varð á Hólmsheiðinni í gær þar sem að flugvél ...
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
📅 03.10.2026 👁️ 3
Electricity blackout affects 70,000 people in Lanzarote and disrupts drinking-water supply
A major power failure across Lanzarote this morning shut down the island’s desalination plants, interrupting drinking-water production and prompting w...
Protesters across Spain demand action over housing crisis
📅 03.10.2026 👁️ 3
Protesters across Spain demand action over housing crisis
More than 50 protests are planned to take place on Saturday after the government failed to get emergency legislation through parliament.
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
📅 03.10.2026 👁️ 3
Bubbi og Kristmundur Axel tóku lagið fyrir Reykjalund
Bubbi Morthens og Kristmundur Axel tóku saman lagið „Kominn heim“ í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í gærkvöldi. Meira en 111 millj...