Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út að Háreksstaðaleið á Austurlandi vegna alvarlegs hópslyss við Hárekstaðakvísl. Hópslysaáætlun var virkjuð.
Átta voru í fjórum bílum sem lentu í slysinu en ekki liggja fyrir upplýsingar um ástand þeirra að svo stöddu en Kristján Ólafur Guðnason yfirlögregluþjónn segir slysið alvarlegt og viðbragð eftir því.
Kristján Ólafur segir þyrlur gæslunnar rétt ókomnar og að fólk verði flutt undir læknishendur með þeim. Hann sagðist ekki hafa upplýsingar um hvort þeir sem hafi verið í bílunum væru erlendir ferðamenn eða Íslendingar né á hvaða aldri þeir væru.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi barst tilkynning um slysið klukkan hálf tólf í dag. Auk lögreglu og Landhelgisgæslu voru sjúkralið, björgunarsveitir og Rauði krossinn boðuð á vettvang. Kristján segir vinnu á vettvangi ganga ágætlega en taka tíma.
Vegurinn um Háreksstaðaleið er lokaður meðan vinna á vettvangi stendur yfir. Ekki er á þessu stigi hægt að gefa frekari upplýsingar.
Fréttin hefur verið uppfærð með nýrri mynd. Þá var staðsetningin skýrð. Slysið átti sér stað á Hárekstaðaleið en ekki á Jökuldal.