Það eru 20 skipulagðir glæpahópar starfandi á Íslandi, hópar sem í eru bæði Íslendingar og útlendingar og starfa í fleiri en einu landi. Mikilvægt er að sameina lögregluembætti, fækka þeim og efla, m.a. til að lögreglan geti ráðið við þessa nýju stöðu. Stefnt er á þrjú lögregluumdæmi í landinu, eitt öflugt sameiginlegt embætti fyrir höfuðborgarsvæðið og Suðurnes þar sem þorri þjóðarinnar býr og 80% afbrota eru framin. Úti á landi verða þá tvö öflug embætti sem miðast við aðstæður og þarfir þar.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir: Þurfum að stækka og efla lögregluumdæmi til að takast á við 20 skipulögð fjölþjóðleg glæpagengi sem hér starfa