Fimm ára stúlka og 67 ára karlmaður eru í lífshættu að sögn lögreglunnar í Nýja-Suður-Wales. Hin átta séu sömuleiðis á sjúkrahúsi en ástand þeirra stöðugt. Þeirra á meðal er önnur fimm ára stúlka og tveggja ára stúlka.
Lögreglan segist hafa handtekið átján ára gamlan mann sem ók bifreiðinni og vera að rannsaka hvað hafi gerst. Hún segir að ekki sé litið á atvikið sem hryðjuverk.
AP-fréttaveitan greinir frá en þúsundir manna eru sagðir hafa verið viðstaddir æfingar liðsins í vikunni og hvatt það áfram. Stór hópur fólks hafði komið saman á götunni á laugardagsmorgun til að kveðja liðið áður en það tekur þátt í úrslitaleik ruðningsdeildarinnar á morgun.