Leikararnir Hilmar Guðjónsson og Saga Garðarsdóttir mættu fyrir hönd KR. Andstæðingar þeirra voru þau Guðmundur Emil og Þórunn Antonía sem voru í Hamarsbúningnum.
Í þættinum var skemmtileg saga af Hemma Gunn heitnum rifjuð upp. Hilmar hafði sem sagt mætt í spurningaþátt til hans á Bylgjunni. Hemmi vildi hafa þáttinn skemmtilegan og að keppendum myndi ganga vel.
Því kinkaði Hemmi alltaf kolli fyrir framan Hilmar þegar hann var á réttri leið með svarið og síðan gaf hann það sterklega í ljós þegar Hilmar var á rangri leið.
Björn Bragi hafði sömu sögu að segja enda var hann einnig gestur í sama þætti. Hér að neðan má sjá brot úr þættinum. En hægt er að sjá alla Kviss þættina í heild sinni á Sýn+.