Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna er að treysta réttindi tölvuleikjaspilara en þær snúa að því að tryggja gagnsæi og sanngirni við notkun sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum.
Greint var frá aðgerðunum á vef framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þær eru liður í að fylgja eftir áætlun ESB um ákveðnar meginreglur um sýndargjaldmiðla tölvuleikja sem kynntar voru á síðasta ári.
Aðgerðirnar snúa að því að ganga úr skugga um að tölvuleikjaframleiðendur fylgi eftirfarandi reglum:
- Gagnsætt verð: Að neytendur geti séð raunverulegt verð muna innan tölvuleikja og sýndargjaldmiðla sem þeir verða að kaupa til að geta spilað leikinn.
- Skýr kostnaður: Að fyrirtæki forðist að hafa marga gjaldmiðla eða gjaldmiðlaskipti innan leiksins sem gera raunverulegt verð þeirra óljóst.
- Bann við því að þrýsta á kaup á gjaldmiðlum: Spilurum á ekki að finnast þeir verða að kaupa óhóflegt magn sýndargjaldmiðla til að komast áleiðis í eða njóta tölvuleiks.
- Virðing fyrir réttinum til að slíta kaupum: Kynna á fyrir spilurum þann rétt að slíta kaupsamningi innan 14 daga eða tveggja vikna. Það á meðal annars við um ónotaða sýndargjaldmiðla.
- Sanngjarnir og skiljanlegir skilmálar: Skilmálar tölvuleiks eiga að vera sanngjarnir og skiljanlegir spilurum.
- Vörn berskjaldaðra neytenda: Fyrirtæki eiga að hafa ákveðnar varnir uppi til að verja neytendur, sérstaklega berskjaldaða neytendur eins og börn.
Iðnaðurinn ekki fylgt settum reglum
Samstarfsnet neytendaverndarstofnananna hóf að beita sér fyrir því að staðið yrði við meginreglurnar á síðasta ári. Í tilkynningu Evrópusambandsins segir að samstarf með tölvuleikjaiðnaðinum hafi ekki skilað tilætluðum árangri. Því hafi verið ráðist í rannsókn á markaðnum og ákveðið að nokkra tölvuleiki þyrfti að skoða frekar.
„Hluti af þessari aðgerð snýst um að skoða hvernig sýndargjaldmiðlar eru seldir, hvernig persónuupplýsingum um spilara er safnað, hvort tölvuleikir séu hannaðir til að vera ávanabindandi, hvernig foreldrastillingar eru, markaðssetningu sem beinist að börnum, miðlun upplýsinga fyrir kaup og lokun tölvuleikjaaðganga,“ segir í tilkynningunni.
Leikirnir sem voru teknir til frekari skoðunar eru til dæmis Minecraft, Candy Crush Saga, Valorant, Clash of Clans og For Honor. Aðgerðirnar ná meðal annars til Ubisoft, Mojang, Riot Games og Crytek. Þá vinnur samstarfsnetið einnig með Activision Blizzard UK til að tryggja að fyrirtækið fylgi evrópskum neytendalögum í tölvuleikjunum Diablo Immortal og Call of Duty: Mobile.
„Sérstök áhersla er lögð á að fylgt sé evrópskum neytendalögum þegar kemur að breytilegum verðlaunakerfum, svokölluðum lukkuboxum [e. loot box], sérstaklega þegar slíkum kerfum er beint að börnum,“ segir í yfirlýsingu frá samstarfsnetinu.
Lukkubox eru algeng í fjölda tölvuleikja, til dæmis FC, áður FIFA, og Call of Duty-seríunum, og eru oftar en ekki seld fyrir sýndargjaldmiðla. Þau hafa verið gagnrýnd fyrir að vera form af fjárhættuspili, sérstaklega í ljósi þess að margir spilarar eru börn og ungmenni.