Ástralska skákkonan Hannah Sayce var handtekin þegar hún kom til Íslands til að taka þátt í Reykjavíkurskákmótinu í mars síðastliðnum. Þetta gerðist eftir að grunaður eltihrellir hennar sendi íslenskum yfirvöldum falska ábendingu um að hún væri að smygla fíkniefnum.ChessBase greinir frá þessu í ítarlegri umfjöllun um mál Sayce sem hefur á undanförnum árum byggt upp stóran fylgjendahóp á Twitch með beinum útsendingum frá skákum sínum.
Áströlsk skákstjarna handtekin á Íslandi eftir falska ábendingu eltihrellis