Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að flutningur margs konar mannúðaraðstoðar til Gaza einkennist af síendurteknum töfum og gagnrýnir langvinnan skort á lækningavörum. Reinhilde Van de Weerdt, fulltrúi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Palestínu, segir stöðu heilbrigðismála á Gaza ennþá afar alvarlega enda ekkert sjúkrahús þar fullstarfhæft.
Langt í frá sé að næg hjálpargögn berist svo endurreisa megi heilbrigðisþjónustu með markvissum hætti. Flöskuhálsinn sé innan regluverks Ísraels um samþykki afhendingar lækningavara og annarra neyðarbirgða.
Ferlið sé þunglamalegt og tímafrekt auk þess sem árangur sé alls óviss. Van de Weerdt segir að samkvæmt nýjustu greiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar líði að meðaltali 74 dagar frá umsókn og þar til leyfi til innflutnings hjálpargagna er veitt.
„Þá hefst þetta langdregna og flókna kerfi að nýju,“ segir Van de Weerdt. Iðulega sé sömu sendingunni hafnað æ ofan í æ. Brýnt sé að opna fleiri leiðir inn á Gaza. Lyf og almenn lækningatæki séu yfirleitt samþykkt fljótt en samþykki fyrir flóknari tækjum tefjist von úr viti.
Regluverkið taki einnig sífelldum breytingum. Ísraelsk stjórnvöld segjast með þessu vilja koma í veg fyrir að til Gaza berist hlutir sem unnt sé að beita í hernaðarlegum tilgangi. Þau segjast gruna Hamas-hreyfinguna um að undirbúa grimmdarverk á borð við hryðjuverkaárásina 7. október 2023.
Fimm drepnir í loftárás á Gazaborg
Fimm Palestínumenn voru drepnir í loftárás Ísraelshers á fjölbýlishús í Gazaborg í gærkvöld. Reuters-fréttastofan hefur þetta eftir heilbrigðisyfirvöldum á Gaza en Ísraelsher hefur ekki enn tjáð sig um málið.
Brotthvarf Ísraelshers af Gaza og afvopnun Hamas hafa verið helstu ásteitingarsteinar í átt að varanleika vopnahlésins sem komst á fyrir milligöngu Bandaríkjanna á síðasta ári.
Ísraelsk stjórnvöld segja Hamas hafa sankað að sér vopnum og gert árásir í trássi við vopnahléð og hafa á síðustu vikum gert fjölda árása á bækistöðvar samtakanna. Leiðtogar Hamas hafna ásökunum Ísraela og segja þá vilja grafa undan stoðum vopnahléssamkomulagsins.