„Henni leið illa með það að vera ein eftir“ - Vísir

„Henni leið illa með það að vera ein eftir“ - Vísir

„Henni leið illa með það að vera ein eftir“ - Vísir

Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition-málið svokallaða, sem á engan sinn líka í íslenskri réttarfarssögu. Frönsk fjölskylda, hjón og 29 ára dóttir þeirra, komu hingað til lands júní 2025 í þeim tilgangi að fremja sjálfsvíg saman á Edition-lúxushótelinu. Þegar lögregla kom á vettvang voru eiginmaður og dóttir Ming Ting Mancel látin af völdum stungusára en Ming Ting sjálf lifði af. Hún afplánar nú tólf ára fangelsisdóm í fangelsinu á Hólmsheiði.

Í fyrsta þætti nýrrar seríu af Eftirmálum er farið yfir málið og dóminn yfir Ming Ting með Ómari Erni Bjarnþórssyni verjanda hennar.

„Það getur vel verið að það skilji enginn og muni aldrei skilja af hverju þetta gerðist, af hverju þessi ákvörðun var tekin og af hverju dóttir þeirra var yfirhöfuð með í þessari ferð. Hún er ekkert að biðja fólk um að skilja eitt né neitt, og ég sem verjandi hennar er heldur ekkert að því. Engu að síður hefur hún reynt að segja með eins ítarlegum hætti og hún getur frá því sem átti sér þarna stað. Hún hefur gert það bæði hjá lögreglu og fyrir dómi. Það er svo bara dómstóla að meta hvort hún sé að segja satt og rétt frá eða ekki,“ segir Ómar Örn.

Málið er um margt sérstakt, ekki aðeins vegna þess sem gerðist inni á hótelherberginu heldur einnig vegna þeirra upplýsinga sem komu smám saman í ljós næstu mánuði: banvæn veikindi eiginmannsins, fjölskyldudeilur vegna mikilla eigna, erfðaskrár sem voru sendar frá Íslandi, hreinsuð raftæki og frásögn Ming Ting um að þau þrjú hefðu komið hingað til lands með það að markmiði að deyja saman.

Héraðsdómur komst hins vegar að annarri niðurstöðu hvað varðaði Catherine, dóttur hjónanna, og taldi Ming Ting bera refsiábyrgð á dauða hennar.

Alvarlegt atvik á Edition

Að morgni 14. júní 2025 birtist fyrsta frétt um málið á Vísi undir fyrirsögninni „Rannsaka „alvarlegt atvik á Edition“.

Lögregla og sérsveit höfðu verið kölluð á Edition-hótelið í miðborg Reykjavíkur á áttunda tímanum um morguninn. Fjórir sjúkrabílar voru einnig sendir á staðinn og aðgerðir stóðu yfir á fjórðu hæð hótelsins.

Fáar upplýsingar lágu fyrir í fyrstu en nokkrum klukkustundum síðar var ljóst að tveir erlendir ferðamenn hefðu fundist látnir á hótelherbergi. Þriðji ferðamaðurinn, frönsk kona á sextugsaldri, hafði verið flutt alvarlega særð á sjúkrahús.

Síðar sama dag kom fram að konan hefði stöðu sakbornings og væri grunuð um að hafa banað eiginmanni sínum og dóttur með eggvopni. Maðurinn var á sextugsaldri og dóttirin 29 ára.

„Ég fæ símtal snemma á laugardags- eða sunnudagsmorgni um að það væri kona þungt haldin á Landspítalanum sem þyrfti á aðstoð verjanda að halda þar sem hún væri grunuð um að hafa banað tveimur manneskjum,“ rifjar Ómar Örn upp í samtali við Eftirmál.

„Ég mætti þarna upp á spítala og var tilbúinn að aðstoða þessa konu. Hún var auðvitað í slæmu ásigkomulagi þarna, eins og komið hefur fram, var með stungusár í brjóstkassanum þannig að hún var þarna á gjörgæsludeild Landspítalans og þar var fyrsta skýrslan af henni tekin af lögreglu,“ segir Ómar og bætir við að ástandið á Ming Ting hafi verið þess eðlis að það var erfitt að átta sig strax á því hvað hafði raunverulega gerst; hún hafi verið stórslösuð og undir áhrifum verkja- og kvíðastillandi lyfja.

Ming Ting hafi þó jafnað sig tiltölulega fljótt og var útskrifuð af gjörgæslu nokkrum dögum síðar, þótt hún dveldi áfram á sjúkrahúsinu í einhverjar vikur. Í kjölfarið voru teknar fleiri skýrslur þar sem hún fór ítarlegar yfir atburðarásina.

Dauðvona eiginmaður

Tíu dögum eftir að málið kom upp birtist síðan frétt sem varpaði nýju ljósi á frönsku fjölskylduna.

Eiginmaður Ming Ting, Emeric Xavier Mancel, hafði glímt við alvarlega nýrnabilun og þurft reglulega að gangast undir nýrnaskilun. Hann var frá Nýju-Kaledóníu en fjölskyldan hafði búið í Dublin á Írlandi.

Samkvæmt frásögn Ming Ting hafði sjúkdómurinn versnað verulega og haft mikil áhrif á líkamlegt og andlegt ástand eiginmannsins. Hann átti orðið erfitt með að einbeita sér, var farinn að glíma við minnisleysi og komst suma daga varla út úr húsi. Hann hafi sjálfur talið sig eiga stutt eftir ólifað.

Ómar segir að Ming Ting hafi frá upphafi verið skýr um ástæður þess að fjölskyldan kom til Íslands.

Hún hefur alltaf haldið því fram að fjölskyldan hafi verið hér á landi í þeim tilgangi að njóta síðustu daganna saman og ætla svo að svipta sig lífi. Hún hefur verið skýr með það í öllum skýrslum lögreglu og fyrir dómi að enginn hafi verið sviptur lífi gegn sínum vilja. Þetta hafi bara verið ákvörðun fjölskyldunnar.

Ming Ting neitaði sök allan tímann og hafnaði því að hafa framið þann verknað sem henni var síðar gefinn að sök.

Erfðaskrár frá Íslandi

En málið átti eftir að verða enn undarlegra.

Í byrjun júlí greindi Vísir frá því að fjölskyldan hefði sent ættingjum sínum þrjár erfðaskrár frá Íslandi.

Eignir fjölskyldunnar voru sagðar nema rúmum milljarði króna. Jafnframt kom fram að grunur væri um að fleiri en einu eggvopni hefði verið beitt og að fjölskyldan hefði sjálf tekið hnífana með sér til landsins.

Ómar segir Emeric hafa komist yfir talsverða fjármuni á sínum tíma og ávaxtað þá.

„Hann fékk arf á sínum tíma sem mér skilst að hafi verið vegna einhverra skaðabóta sem hann fékk út af læknamistökum í æsku. Hann notaði þá fjármuni og ávaxtaði þá og efnaðist, að mér skilst, töluvert.“

Á sama tíma stóð yfir hatrömm erfðadeila milli Emeric og systur hans sem hafði tekið mjög á fjölskylduna. Ming Ting hafði að mestu verið heimavinnandi, Emeric sinnt hlutabréfaviðskiptum að heiman og Catherine starfað hjá fyrirtæki tengdu Airbnb.

Ómar lýsir fjölskyldunni sem óvenju náinni og nokkuð einangraðri.

„Þessi fjölskylda öll er kannski ekkert svona hefðbundin fjölskylda í þeim skilningi sem ég legg í hefðbundna fjölskyldu. Þau voru mjög náin en lifðu ekki mjög viðburðaríku lífi utan veggja heimilisins,“ segir hann.

Þau voru bara sjálfum sér nóg. Þau umgengust nánast ekki neitt annað fólk, hvorki sín eigin skyldmenni né aðra.

„Sérðu ekki að ég er búin að myrða tvo?“

Eitt af því sem vakti mikla athygli við rannsókn málsins voru orð Ming Ting sjálfrar þegar starfsfólk hótelsins kom á vettvang. Hún hafði hringt niður í móttöku og óskað eftir aðstoð en verið mjög óskýr. Starfsmenn fóru því upp að herberginu og bönkuðu. Þegar Ming Ting opnaði var hún illa á sig komin og virtist við það að missa meðvitund. Hún var með sjáanlegt sár á bringunni. Annar starfsmannanna fór inn í herbergið til að sækja handklæði en kom þá auga á mann liggjandi undir rúmfötum á gólfinu. Catherine lá látin í rúminu.

„Aðkoman hefur auðvitað ekki verið góð fyrir hótelstarfsmennina og mikið áfall fyrir þau að þurfa að sjá það sem var inni á herberginu,“ segir Ómar.

Lögreglan var komin á vettvang nokkrum mínútum síðar. Á þessum fyrstu mínútum sagði Ming Ting bæði við starfsmann hótelsins og síðar lögreglu að hún hefði drepið tvær manneskjur.

Ómar segir þó ekki rétt að líta á þessi orð sem játningu í hefðbundnum skilningi.

Hún segir við hótelstarfsmanninn sem hún óskar eftir því að hringi eftir aðstoð: „Viltu hringja á lögregluna? Sérðu ekki að ég er búin að myrða tvo?“ Hún hefur svo gefið skýringar á því hvað hún átti þarna við og sagt að þetta hafi ekki verið rétt hjá henni.

Skömmu síðar, á leiðinni á bráðamóttöku, sagði Ming Ting að eiginmaður hennar hefði veitt bæði henni og dóttur þeirra áverkana.

Þrír hnífar

Tæknideild lögreglu rannsakaði vettvanginn ítarlega og meðal annars voru þrír hnífar teknir til rannsóknar.

„Þetta er allt rannsakað af tæknideild lögreglu, farið yfir fingraför og DNA-snið og annað slíkt. Það var ekkert hægt að leiða nákvæmlega í ljós hvaða hnífur á við, um hvaða stungu, á hvern, og hver hélt á hnífnum. Það voru þó vísbendingar um að það hefði ekki verið hún heldur eiginmaður hennar sem framkvæmdi það sem hún er svo ákærð fyrir. Dómurinn fellst á það að einhverju leyti.“

Ómar bendir á að dómurinn hafi raunar talið líklegra, meðal annars með hliðsjón af DNA-gögnum, að Ming Ting hefði ekki sjálf beitt hnífnum.

Úr gæslu í farbann

Rannsókn málsins varð afar umfangsmikil og teygði anga sína bæði til Frakklands og Írlands.

Húsleit var framkvæmd á heimili fjölskyldunnar í Dublin og íslensk lögregla beið mánuðum saman eftir gögnum erlendis frá.

Ming Ting sat á sama tíma í gæsluvarðhaldi. Þegar tólf vikna viðmiði gæsluvarðhalds var náð reyndi lögregla að fá varðhaldið framlengt á grundvelli brýnna rannsóknarhagsmuna. Landsréttur féllst þó ekki á það og Ming Ting var þess í stað sett í farbann. Hún hafði enga aðstöðu hér á landi og dvaldi því á gistiheimili með aðstoð Reykjavíkurborgar.

Erlendir aðilar sem eru í svona sérstökum aðstæðum, eins og sakborningar sem sæta farbanni, geta fengið styrk frá Reykjavíkurborg til að útvega sér gistingu og matarkort og eitthvað slíkt. Ming Ting var því upp á Reykjavíkurborg komin allan þennan tíma.

Á meðan á farbanninu stóð hóf Ming Ting flesta daga á sama hátt.

„Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi þar sem þau hvíla,“ segir Ómar.

Ming Ting hafði óskað eftir því að eiginmaður hennar og dóttir yrðu jarðsett á Íslandi.

Hún sagði að þau hefðu öll ákveðið að þetta yrði þeirra lokaáfangastaður og þar af leiðandi vildi hún að þau yrðu jörðuð hér.

Ákærð fyrir manndráp

Rannsókn lögreglu tók 219 daga áður en málið var sent héraðssaksóknara. Ming Ting var síðan ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi. 

Samkvæmt ákærunni hafði hún, í samráði við Emeric, banað Catherine með því meðal annars að halda henni fastri, bregða snöru um háls hennar og stinga hana tvisvar í brjóstkassann.

Ming Ting hélt hins vegar fast við sína frásögn: að Catherine hefði viljað deyja með foreldrum sínum.

Í aðalmeðferðinni lýsti hún því að fjölskyldan hefði farið saman út að borða áður en hún fór aftur upp á hótel. Þar hefðu þau hlustað á tónlist og horft á sjónvarpið þar til Emeric sagði að tíminn væri kominn.

Samkvæmt frásögn hennar hefði Catherine viljað fara fyrst. Hún hefði farið inn á baðherbergi og sest þar á koll. Emeric hefði stungið hana í brjóstið á meðan Ming Ting kraup við hliðina á henni og hélt í hönd hennar. Síðar hefði Catherine verið lögð upp í rúm og beðið föður sinn að stinga sig aftur. Ming Ting hélt því fram að þetta hefði allt verið gert með samþykki dótturinnar.

En gat frásögnin staðist? Þar lá ein stærsta spurning málsins.

Hvergi fundust bein skrifleg samskipti eða önnur ótvíræð gögn þar sem Catherine lýsti því yfir að hún ætlaði að deyja með foreldrum sínum. Ming Ting sagði fjölskylduna hafa rætt málið áður og Catherine hafa verið ákveðna í því að hún vildi ekki lifa án foreldra sinna. Ómar segir hins vegar að málið hafi frá sjónarhóli lögreglu og síðar héraðsdóms snúist að verulegu leyti um hvort Catherine hefði raunverulega getað tekið slíka ákvörðun sjálfstætt.

„Grunur lögreglu, og héraðsdómur féllst á það að minnsta kosti að einhverju leyti, var að stúlkan hefði verið háð foreldrum sínum og af þeim sökum gæti hún ekki mögulega hafa tekið þessa ákvörðun ein og óstudd,“ segir hann.

Hafi hún þá verið beitt einhvers konar þrýstingi eða eitthvað hafi valdið ójafnvægi sem hafði áhrif á ákvörðun hennar, hafi hún tekið þessa ákvörðun.

Ming Ting hafnaði því alfarið að dóttir hennar hefði verið þroskaskert. Catherine hafði gengið í skóla og starfað á almennum vinnumarkaði.

Ómar segir Ming Ting þó alltaf hafa verið hreinskilna um hversu náin fjölskyldan var.

Enginn geðsjúkdómur

Við rannsókn málsins var Ming Ting send í geðmat. Hún taldi sjálf enga ástæðu fyrir því og vildi upphaflega ekki undirgangast matið. Niðurstaðan studdi sjónarmið hennar að því leyti að ekkert kom fram sem benti til alvarlegs geðsjúkdóms eða persónuleikaröskunar.

Hún vissi það svo sem sjálf og hafnaði því á sínum tíma að undirgangast matið, taldi það algjöran óþarfa.

Ómar hafnar því einnig að Ming Ting hafi verið þvinguð af eiginmanni sínum til að taka þátt í áætluninni. Þvert á móti hefði það getað verið henni í hag við málsmeðferðina að halda því fram. Hún gerði það ekki.

Ósáttur við umfjöllunina

Aðalmeðferð málsins vakti gríðarlega athygli og fréttamenn sátu í dómsal dag eftir dag. Athygli vakti meðal annars að Ming Ting virtist sýna lítil viðbrögð þegar fjallað var um dauða dóttur hennar en felldi hins vegar tár þegar hún ræddi eiginmann sinn.

Ómar gagnrýnir þá framsetningu.

„Hún snýr í fyrsta lagi baki við fjölmiðlum og ég sé framan í hana, ekki þeir. Ég sá alveg hversu erfitt það var fyrir hana að tala um þetta allt saman, og var búinn að sjá það undanfarið heila árið í margítrekuðum skýrslutökum hjá lögreglu.“

Honum hafi fundist ósanngjarnt að draga þá ályktun að hún væri einungis að syrgja eiginmann sinn en ekki dóttur sína.

Mér fannst það óviðeigandi framsetning. Ég held að það sé bara alls ekki þannig.

Ming Ting fór í fjórar eða fimm langar lögregluskýrslur og sat síðan undir spurningum í marga klukkutíma fyrir dómi.

„Það var alltaf erfitt fyrir hana að rifja upp. Kannski varð það auðveldara eftir því sem hún þurfti oftar að segja frá því sem hún mundi eftir. En ég held að þetta hafi alltaf verið henni erfitt.“

Við lok aðalmeðferðar fór ákæruvaldið fram á sextán ára fangelsi. Ómar krafðist hins vegar sýknu í öllum ákæruliðum.

Hann lagði áherslu á að ekki væri hægt að sanna að Ming Ting hefði sjálf beitt Catherine hnífi eða snöru.

Markmið okkar allan tímann var auðvitað bara að hún yrði sýknuð. Hún er búin að neita sök og neitar því að hafa gerst sek um þá háttsemi sem ákæran greinir um.

Héraðsdómur taldi hins vegar sannað að Ming Ting hefði veitt eiginmanni sínum fullan stuðning við framkvæmd verknaðarins og sefað dóttur sína á meðan. Hún hefði verið þátttakandi í aðdragandanum, á verknaðarstundu og þar til yfir lauk. Þátttaka hennar væri því slík að líta bæri á hana sem aðalmann ásamt Emeric.

Ekki tókst hins vegar að sanna þann hluta ákærunnar að Catherine hefði verið haldið fastri með því að grípa um upphandlegg hennar.

Tólf ára fangelsi

Dómur í málinu féll þann 28. júlí síðastliðinn. Ming Ting Mancel var dæmd í tólf ára fangelsi fyrir manndráp og brot í nánu sambandi.

Dómurinn taldi sumt í framburði hennar trúverðugt en annað ekki.

„Dómurinn metur framburðinn hjá henni og trúverðugleika hans með ákveðnum hætti. Sumt af því sem hún hefur sagt við meðferð málsins og fyrir dómi var að mati dómsins trúverðugt en annað ótrúverðugt,“ segir Ómar.

Niðurstaðan sé þó ekki endanleg.

„Ég held að það sé alveg óhætt að halda því fram að dómurinn hafi talið hana frekar ótrúverðuga í flestu, svona í ljósi þess hver niðurstaðan var. En þetta er ekki endanlegur dómur í málinu.“

Málinu hefur verið áfrýjað til Landsréttar þar sem meðal annars verður hægt að endurmeta trúverðugleika framburðar Ming Ting og annarra vitna.

Leið illa með að vera ein eftir

Ming Ting afplánar nú tólf ára fangelsisdóm á Hólmsheiði.

Félagslegt tengslanet hennar hér á landi er lítið. Ein mágkona hennar hefur heimsótt hana auk þess sem Ómar hefur kíkt til hennar þegar hann hefur átt leið í fangelsið vegna annarra mála.

Fjölskyldan sem áður átti miklar eignir er horfin. Eiginmaðurinn og dóttirin eru látin og Ming Ting sjálf á lítið sem ekkert eftir.

Ómar segir afstöðu hennar til þess sem gerðist á Edition ekki hafa breyst. Aðspurður um hvernig Ming Ting horfi sjálf á það sem gerðist segir hann hana ekki hafa farið leynt með að ætlunin hafi verið að hún léti einnig lífið.

„Henni leið illa með það að vera ein eftir. Hún var alveg skýr með það að það var hennar vilji að fara með þeim. Það kom fram við meðferð málsins fyrir dómi að heilbrigðisstarfsmenn sem önnuðust hana upplifðu hana í raun bara vonsvikna með að heyra hversu litlu hefði munað að hún hefði látið lífið sjálf.“

#henni #illa #leið #með #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262942476d/-henni-leid-illa-med-thad-ad-vera-ein-eftir-

📰 Aðrar fréttir

Áströlsk skákstjarna handtekin á Íslandi eftir falska ábendingu eltihrellis
📅 03.10.2026 👁️ 1
Áströlsk skákstjarna handtekin á Íslandi eftir falska ábendingu eltihrellis
Ástralska skákkonan Hannah Sayce var handtekin þegar hún kom til Íslands til að taka þátt í Reykjavíkurskákmótinu í mars síðastliðnum. Þetta gerðist e...
Sam­göngur í lama­sessi eftir enn eina á­rás á brú - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Sam­göngur í lama­sessi eftir enn eina á­rás á brú - Vísir
Árásin olli skemmdum á veginum og rafmagnsleiðslum vagnlesta á brúnni sem margir Úkraínumenn reiða sig á til að ferðast um borgina. Umferð þar um var ...
Veittist að flug­stjóranum með öxi í til­raun til að fremja hryðju­verk - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Veittist að flug­stjóranum með öxi í til­raun til að fremja hryðju­verk - Vísir
Er þetta meðal þess sem fram kemur í umfjöllun fréttaveitunnar Reuters um málið en þar er haft eftir ríkissaksóknara Sameinuðu arabísku furstadæmanna ...
Krummi minnist föður síns í persónulegasta lagi sínu
📅 03.10.2026 👁️ 1
Krummi minnist föður síns í persónulegasta lagi sínu
„Bak við fjöllin“ er þriðja smáskífan af væntanlegri sólóplötu Krumma Björgvinssonar – lagið varð að óði til föður hans, Björgvins Halldórssonar. Tónl...
Hversu vel fylgist þú með fréttum? Taktu kvissið - RÚV.is
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hversu vel fylgist þú með fréttum? Taktu kvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvaða stofnun hefur höfðað mál gegn Íslandi, hvaða áhrifavald íslensk ungmenni flykktust að og fors...
„Mér líður eins og Reykjalundur þurfi að selja kleinur og klósettpappír til þess að geta rekið sig“
📅 03.10.2026 👁️ 1
„Mér líður eins og Reykjalundur þurfi að selja kleinur og klósettpappír til þess að geta rekið sig“
Arthur Bogason fyrrum formaður smábáteigenda var í viðtali í landsöfnuninni fyrir endurbætur á Reykjalundi í gærkvöldi. Hann sagði í viðtali við þau S...
Keyrði inn í mann­fjölda norður af Sydney - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Keyrði inn í mann­fjölda norður af Sydney - Vísir
Fimm ára stúlka og 67 ára karlmaður eru í lífshættu að sögn lögreglunnar í Nýja-Suður-Wales. Hin átta séu sömuleiðis á sjúkrahúsi en ástand þeirra stö...
Átakalínur: Íslenska vinnumarkaðsmódelið
📅 03.10.2026 👁️ 2
Átakalínur: Íslenska vinnumarkaðsmódelið
Íslenska vinnumarkaðsmódelið er nú aftur komið í umræðuna vegna nýafstaðinna verkfalla flugvirkja og viðkvæmu ástandi núverandi kjarasamninga. En hver...
Húðin breytist með aldrinum Hag­kaup leggur aukna á­herslu á fræðslu - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Húðin breytist með aldrinum Hag­kaup leggur aukna á­herslu á fræðslu - Vísir
Hagkaup heldur áfram að leggja áherslu á fræðslu um húðumhirðu og býður nú til sérstaks Lancôme kvölds í Hagkaup Kringlunni miðvikudaginn 7. október k...
Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið - Vísir
Í kvöld er síðan útlit fyrir að miðja lægðarinnar verði yfir landinu og þá dragi nokkuð víða úr vindi en áfram verði blautt. Svo hljóðar núgildandi sp...
Landið sem neyddist til að verða drónaveldi
📅 03.10.2026 👁️ 2
Landið sem neyddist til að verða drónaveldi
Úkraínumenn byrjuðu sjálfir að þróa vopn til að verjast innrásarher Rússa eftir allsherjarinnrásina 2022 og þróunin í hergagnaframleiðslu þeirra hefur...
Hand­tekinn grunaður um að beita piparúða - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Hand­tekinn grunaður um að beita piparúða - Vísir
Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en atvikið kom inn á borð stöðvar sem sinnir miðborg, vesturbæ Reykjavíkur og Seltjarna...
Rigning víðast hvar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Rigning víðast hvar
Rigningar er að vænta í dag. Samkvæmt Veðurstofu Íslands má gera ráð fyrir suðaustan- og sunnanátt upp á 8-13 metra á sekúndu og hita á bilinu 7-12 st...
Flydubai co-pilot attacked captain with axe, UAE official says
📅 03.10.2026 👁️ 2
Flydubai co-pilot attacked captain with axe, UAE official says
The flydubai plane plunged more than 17,000ft two and a half hours into its journey before passengers and crew overpowered the attacker.
Son saves father's life with CPR guided over the phone in Lanzarote
📅 03.10.2026 👁️ 1
Son saves father's life with CPR guided over the phone in Lanzarote
A young man helped save his father's life in Lanzarote after being talked through CPR over the phone while an ambulance raced to their home. The emerg...
Exploring the Gold Coast by car
📅 03.10.2026 👁️ 2
Exploring the Gold Coast by car
The Gold Coast is far more than its famous beaches. Beyond the surf and skyline lies a lush hinterland of rainforest, waterfalls, and mountain village...
Beitti piparúða í slagsmálum
📅 03.10.2026 👁️ 2
Beitti piparúða í slagsmálum
Lögregla skarst í leikinn þegar piparúða var beitt í slagsmálum í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins. Sá sem úðanum beitti var handtekinn og vistaður í ...
Fernt í gæsluvarðhaldi grunað um morð
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fernt í gæsluvarðhaldi grunað um morð
Tvær konur á þrítugs- og fimmtugsaldri og tveir átján ára karlmenn hafa verið handtekin og ákærð fyrir að hafa myrt 37 ára gamlan karlmann í bænum Nan...
Segir Ríkis­sjón­varpið bregða fyrir sig fæti - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Segir Ríkis­sjón­varpið bregða fyrir sig fæti - Vísir
Hlemmur, sem er orðin tuttugu ára gömul, hefur ekki farið hátt en gengið manna á millum og nýverið var myndinni deilt á YouTube og hrannast upp áhorfs...
Unglingavinnan var tískupallurinn í París - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
Unglingavinnan var tískupallurinn í París - Vísir
Alísa Helga er fædd árið 2003 og ætlaði sér snemma stóra hluti í tískuheiminum. Hún ræddi við blaðamann um ævintýrin víða um heim, þar á meðal í Tókýó...
Óttar Guðmundsson skrifar: Erfið jarðarför
📅 03.10.2026 👁️ 1
Óttar Guðmundsson skrifar: Erfið jarðarför
Mynd Í Íslenskri fyndni sem Gunnar Sigurðsson alþingismaður f
Stefnir í mannskæðasta ebólufaraldur sögunnar
📅 03.10.2026 👁️ 1
Stefnir í mannskæðasta ebólufaraldur sögunnar
Yfir fjögur þúsund manns hafa dáið í ebólufaraldrinum sem geisað hefur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan í maí og rúmlega 8.300 smit hafa verið stað...
Shellenberger sakar fjölmiðla um að segja ranga sögu af óeirðunum í Frakklandi
📅 03.10.2026 👁️ 1
Shellenberger sakar fjölmiðla um að segja ranga sögu af óeirðunum í Frakklandi
Bandaríski blaðamaðurinn Michael Shellenberger sakar stóra fjölmiðla um að gefa villandi mynd af orsökum þeirra umfangsmiklu skólamótmæla og óeirða se...
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
📅 03.10.2026 👁️ 1
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end...
„Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkju­garðinn í Foss­vogi“ - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 1
„Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkju­garðinn í Foss­vogi“ - Vísir
Fá mál hafa vakið jafn mikla athygli og óhug og Edition-málið svokallaða, sem á engan sinn líka í íslenskri réttarfarssögu. Frönsk fjölskylda, hjón og...
Trump heitir milljónum eldri borgara eingreiðslu
📅 03.10.2026 👁️ 2
Trump heitir milljónum eldri borgara eingreiðslu
Donald Trump Bandaríkjaforseti heitir meira en 20 milljónum roskinna landsmanna nærri hundrað dala eingreiðslu til að greiða fyrir iðgjöld í sjúkratry...
Calima and sunshine return to the Canary Islands this weekend
📅 03.10.2026 👁️ 1
Calima and sunshine return to the Canary Islands this weekend
Calima, sunshine and rising temperatures will shape the weather across much of the Canary Islands this weekend, although conditions will vary consider...
New €41.6 million five-star hotel approved in Maspalomas
📅 03.10.2026 👁️ 1
New €41.6 million five-star hotel approved in Maspalomas
A new five-star hotel with 249 rooms is set to be built in Maspalomas after planning permission was granted for a €41.6 million development by Lopesan...
Russia strikes second major bridge in Kyiv, mayor says
📅 03.10.2026 👁️ 1
Russia strikes second major bridge in Kyiv, mayor says
The attack on Northern Bridge comes after repeat attacks on another major bridge in recent days.
Frétta­tía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 2
Frétta­tía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Framleiðsla jókst á nauta- og fuglakjöti í ágúst
📅 03.10.2026 👁️ 1
Framleiðsla jókst á nauta- og fuglakjöti í ágúst
Prósenti meira var framleitt af kjöti á Íslandi í ágúst síðastliðnum en á sama tíma fyrir ári. Hagstofa Íslands segir að alls hafi þá verið framleidd ...
Rússar sprengdu aðra brú í Kíev í nótt
📅 03.10.2026 👁️ 1
Rússar sprengdu aðra brú í Kíev í nótt
Stór brú í Kíev, svonefnd Norðurbrú, var sprengd í árás Rússlandshers í nótt.Vitali Klitschko borgarstjóri Kíev segir að lokað sé fyrir alla umferð um...
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gagnrýnir tafir á afhendingu hjálpargagna til Gaza
📅 03.10.2026 👁️ 1
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin gagnrýnir tafir á afhendingu hjálpargagna til Gaza
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að flutningur margs konar mannúðaraðstoðar til Gaza einkennist af síendurteknum töfum og gagnrýnir langvinnan skort ...
Norðurlöndin aftarlega á merinni í framleiðni
📅 03.10.2026 👁️ 2
Norðurlöndin aftarlega á merinni í framleiðni
Norðurlöndin þurfa að spýta í lófana til að viðhalda samkeppnishæfni sinni. Þetta kemur fram í nýrri greiningu sem unnin var af ráðgjafafyrirtækinu Co...
Woman deceived ex-partner that she gave birth to his babies, judge rules
📅 03.10.2026 👁️ 2
Woman deceived ex-partner that she gave birth to his babies, judge rules
The man paid his ex-partner around £30,000 over two years believing she had given birth to his children.
Verja fé í að hrinda af stað olíuleit við landið
📅 03.10.2026 👁️ 2
Verja fé í að hrinda af stað olíuleit við landið
Landsstjórnin í Færeyjum hyggst kanna áhuga olíufélaga á að leita að olíu á hafsvæðinu umhverfis Færeyjar. Þetta hefur færeyski fréttamiðillinn Dimmal...
Suppliers pile pressure on government over energy bills
📅 03.10.2026 👁️ 2
Suppliers pile pressure on government over energy bills
Immediate action is needed to help households struggling with bills this winter, says trade body Energy UK.
Hákon konungur leggur af ráðstefnu fyrir unga leiðtoga og hæfileikafólk
📅 03.10.2026 👁️ 2
Hákon konungur leggur af ráðstefnu fyrir unga leiðtoga og hæfileikafólk
Hákon Noregskonungur hefur ákveðið að afleggja SIKT-ráðstefnuna í núverandi mynd í ljósi breyttrar stöðu hans sjálfs, að því er segir í fréttatilkynni...
Fjöldi fólks í einangrun eftir að kona lést af völdum lungnapestar
📅 03.10.2026 👁️ 2
Fjöldi fólks í einangrun eftir að kona lést af völdum lungnapestar
Tæplega 200 manns hafa verið sett í einangrun að fyrirskipun heilbrigðisyfirvalda í Irkutsk-héraði í Síberíu í Rússlandi. Sú ákvörðun var tekin eftir ...
Why electric cars might be making some passengers feel sick
📅 03.10.2026 👁️ 1
Why electric cars might be making some passengers feel sick
“I’ve heard about it many, many, many times” says one doctor who treats motion sickness.
Spoilers: Is social media ruining gig surprises?
📅 03.10.2026 👁️ 1
Spoilers: Is social media ruining gig surprises?
Big moments from headline acts are shared online long before many fans see their favourite artists.
Norður-Kórea skaut langdrægri eldflaug í kjölfar ásakana nágrannanna
📅 03.10.2026 👁️ 2
Norður-Kórea skaut langdrægri eldflaug í kjölfar ásakana nágrannanna
Her Suður-Kóreu segir að Norður-Kórea hafi skotið að minnsta kosti einni langdrægri eldflaug í átt að Japanshafi.Eldflauginni var skotið á loft í kjöl...
Tveir handteknir grunaður um skipulagningu hryðjuverks gegn gyðingum í Manchester
📅 03.10.2026 👁️ 3
Tveir handteknir grunaður um skipulagningu hryðjuverks gegn gyðingum í Manchester
Salam Ahmadyan og Rahman Salehi, íranskir karlmenn á fertugsaldri, voru handteknir í Liverpool og Salford og ákærðir fyrir ráðabrugg um hryðjuverk gag...
Tveir ákærðir grunaðir um skipulagningu hryðjuverks gegn gyðingum í Manchester
📅 03.10.2026 👁️ 2
Tveir ákærðir grunaðir um skipulagningu hryðjuverks gegn gyðingum í Manchester
Salam Ahmadyan og Rahman Salehi, íranskir karlmenn á fertugsaldri, voru handteknir í Liverpool og Salford og ákærðir fyrir ráðabrugg um hryðjuverk gag...
Christa Pike í öndunarvél eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 3
Christa Pike í öndunarvél eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike liggur meðvitundarlaus á spítala eftir að tvær tilraunir til að taka hana af lífi fóru út um þúfur.Á miðvikudag átti aftaka Pike að fara ...
Glæparannsókn vegna starfsemi Telenor í Mjanmar: „Fyrirheit voru svikin“
📅 02.10.2026 👁️ 3
Glæparannsókn vegna starfsemi Telenor í Mjanmar: „Fyrirheit voru svikin“
Þann 15. september, klukkan tíu að morgni að staðartíma, fóru norska ríkislögreglan, PST, og norska öryggislögreglan, Kripos, fylktu liði í höfuðstöðv...
Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 3
Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey - Vísir
Það kom aðdáendum í opna skjöldu þegar greint var frá því árið 2024 að Lana Del Rey, sem réttu nafni heitir Elizabeth Woolridge, hefði gengið í það he...
Celebrity Traitors claim their first victim as Richard E Grant tries to save his skin
📅 02.10.2026 👁️ 3
Celebrity Traitors claim their first victim as Richard E Grant tries to save his skin
There was a murder and a recruitment in the latest episode, and that was just in the opening minutes.
Celebrity Traitors: First victim claimed as Richard E Grant tries to save his skin
📅 02.10.2026 👁️ 1
Celebrity Traitors: First victim claimed as Richard E Grant tries to save his skin
There was a murder and a recruitment in the latest episode, and that was just in the opening minutes.
111 milljónir söfnuðust til styrktar Reykjalundi
📅 02.10.2026 👁️ 3
111 milljónir söfnuðust til styrktar Reykjalundi
Alls söfnuðust 111.340.000 krónur til styrktar Reykjalundi í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í kvöld.Brýn þörf er á uppbyggingu og ...