Landsstjórnin í Færeyjum hyggst kanna áhuga olíufélaga á að leita að olíu á hafsvæðinu umhverfis Færeyjar. Þetta hefur færeyski fréttamiðillinn Dimmalætting eftir Jacob Vestergaard atvinnuvegaráðherra Færeyja.
700 þúsund dönskum krónum, sem er jafnvirði tæpra 13 milljóna íslenskra króna, verður ráðstafað í fjárlögum næsta árs til að kynna Færeyjar fyrir olíufélögum og vekja áhuga þeirra á olíuleit við landið.
Vestergaard segir að leitað verði eftir olíu rétt sunnan við færeysku lögsöguna og þá bendi margt til þess að finna megi olíu innan hennar líka.
Innspýting fyrir afleidda starfsemi
„Þetta er ekki nýtt mál en það hefur fengið aukna þýðingu nú þegar orka og hráefni eru orðin þýðingarmikill hluti af samkeppni á alþjóðavettvangi,“ segir hann.
Þá bendir hann jafnframt á að verkefnið snúist ekki eingöngu um að finna olíu. Afleidd starfsemi í kringum leit og vinnslu muni líka skapa fjölda nýrra tækifæra fyrir færeyskt atvinnulíf.
„Skipasmíðastöðvar, iðnfyrirtæki, fjarskiptafyrirtæki og aðrir birgjar geta notið góðs af aukinni starfsemi,“ segir Vestergaard og gerir ráð fyrir að þeim 700 þúsund krónum sem varið verður til að efla olíuleit muni innan skamms skila verulegum verðmætum til baka til samfélagsins.
Sjaldgæfir málmar á tilteknum svæðum
Jarðfræðistofnun Færeyja, Jarðfeingi, hefur í mörg ár stundað rannsóknir á færeyskum hafsbotni.
Auk olíu segir stofnunin að á tilteknum svæðum við landið sé einnig að finna sjaldgæfa málma og önnur hráefni sem skipta sköpum við framleiðslu á hátæknibúnaði, þar á meðal tækni sem notuð er í grænum orkuskiptum.