Her Suður-Kóreu segir að Norður-Kórea hafi skotið að minnsta kosti einni langdrægri eldflaug í átt að Japanshafi.
Eldflauginni var skotið á loft í kjölfar þess að Suður-Kórea sakaði nágranna sína í norðri um að standa að baki sprengingu á hlutlausa svæðinu svonefnda á milli landanna í síðasta mánuði.
Svæðið hefur markað skil á milli landanna síðan vopnahléi var komið á árið 1953. Vopnahléið stendur enn og eiga löndin því tæknilega séð enn þá í stríði.
Sprengingin særði þrjá suðurkóreska hermenn en stjórnvöld í Norður-Kóreu neita því að þau beri ábyrgð á málinu.