Allt útlit er fyrir að miðhægriflokkur forsætisráðherrans Andris Kulbergs hafi unnið sigur í þingkosningum sem haldnar voru í Lettlandi í gær. Þegar yfir helmingur atkvæða hefur verið talinn hlaut flokkurinn 35,8 prósent atkvæða sem er miklu hærra hlutfall en skoðanakannanir bentu til.
Kulbergs, sem tók við forsætisráðherraembættinu í maí, kvaðst fagna þessum árangri og vonast til að gegna því áfram. Útlit er þó fyrir að Kulbergs þurfi að mynda stjórn með öðrum flokkum þar sem samstarfsflokkarnir hafa tapað nokkru fylgi.
Fjögurra flokka ríkisstjórn Kulbergs tók við völdum í lok maí eftir að stjórn Eviku Silina hraktist frá völdum vegna deilna um drónavarnir. Stjórnarflokkarnir sem eru fylgjandi samstarfi við Evrópusambandið og NATO hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að efla varnir landsins.
Útilokar samstarf við flokka halla undir Rússa
Kulbergs kveðst útiloka samstarf við alla flokka sem hallir eru undir Rússa. Lettland fyrst, sem hefur höfðað til rússneska minnihlutans í landinu með gagnrýni á stuðning við Úkraínumenn í innrásarstríðinu, er næststærstur með 13,4 prósent atkvæða.
Popúlískir flokkar virðast hafa nælt sér í talsverðan stuðning með því að leggja áherslu á innanríkismál á borð við síhækkandi framfærslukostnað, lág laun og álag á heilbrigðiskerfið.
Opinberra bráðabirgðaniðurstaðna er að vænta síðar í dag og þá hefjast stjórnarmyndunarviðræður sem gætu tekið talsverðan tíma.
Öryggismál, Úkraínustríðið og samskipti við Rússland hafa þó verið helsta bitbein stjórnmálaflokkanna fjórtán í kosningabaráttunni og kjósendur eru margir uggandi yfir mögulegum ágangi Rússa.
Útgjöld til varnarmála hafa hækkað verulega frá upphafi innrásarinnar og nema nú um fimm af hundraði og flestir flokkar sem ná mönnum á þing styðja aukin útgjöld og áframhaldandi liðsinni við Úkraínu.