Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu lentu alls fjórir bílar, með átta manns innanborðs, í árekstri. Að minnsta kosti hluti hópsins slasaðist alvarlega en tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar voru kallaðar út auk tveggja sjúkraflugvéla til að flytja þá sem slösuðust mest á sjúkrahús.Fram kemur í nýju tilkynningunni að allir sem lentu í slysinu séu erlendir ríkisborgarar sem séu ýmist búsettir hér á landi eða ferðamenn.
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar