Vísindamenn hafa fundið nýja eðlutegund í næstum fimm kílómetra hæð í Andesfjöllum í Perú. Stjórnendur Náttúrusögusafns Háskóla heilags Markúsar í höfuðborginni Líma greindu frá uppgötvuninni í svissneska vísindaritinu Diversity.
Hann er elsti háskóli í Ameríku. Eðlan hlaut fræðiheitið Liolaemus archipensis, er sex til átta sentímetrar að lengd og kynin hafa ólíkt litamynstur. Kvendýrin eru með ferhyrnda bletti á bakinu en karldýrin skáhalla bletti og hvítar hreisturflögur.
Það segja vísindamenn að hjálpi eðlunum að falla inn í grýtt umhverfið í fjöllunum. Eðlan nærist á plöntum og smáum liðdýrum á borð við köngulær, bjöllur og skordýralirfur.
Líffræðingurinn Ling Huamani-Valderrama, sem stýrði rannsókninni, segir í samtali við AFP uppgötvun og lýsingu nýrra tegunda marka mikilvægt framfaraskref fyrir líffræðilegan fjölbreytileika í Perú. Að hans sögn eiga 296 eðlutegundir heimkynni í landinu.