Lögreglumenn brugðust við tilkynningu manns í úthverfi sem óttaðist að annar sæti um sig vegna óuppgerðra mála og sögðu þeim grunaða að hætta og hypja sig. Ofurölvi maður gekk í veg fyrir bíla og hafði í hótunum við gangandi vegfaranda í vesturhluta Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt.
Hann var handtekinn og vistaður í fangaklefa að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Tveir dyraverðir voru handteknir í miðborginni fyrir að veitast að manni með höggum og spörkum en var sleppt eftir skýrslutöku.
Að öðru leyti virðast verkefni næturinnar hafa snúið að fólki sem í ölvunar- eða þreytuástandi þurfti á liðsinni lögreglu að halda. Þar á meðal var maður sem dauðþreyttur hafði lagt sig fram á stýri bíls síns.
Lögreglan var með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi í gærkvöld. Fréttastofu barst ábending um að lögreglubílar væru í götunni á tólfta tímanum en ekki hefur fengist staðfest hver ástæðan er.
Vélhjólasamtökin Vítisenglar eru með félagsheimili í Auðbrekku og á vef Vísis segir að boðað hafi verið til veislu á þeirra vegum og vélhjólaklúbbsins Red Devils.
Þetta væri ekki í fyrsta skipti sem lögregla er með mikinn viðbúnað við höfuðstöðvar Vítisengla. Þannig háttaði meðal annars í maí á þessu ári og tvisvar í september í fyrra þegar minnst þrír voru handteknir.