Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna
Ágúst Líndal Ágústsson varð máttlaus í hálfu andlitinu eftir meðferð gegn fjórða stigs krabbameini í heila. Hann lagðist í djúpt þunglyndi en er þakklátur fyrir að hafa ekki gefist upp.
„Núna langar mig að sjá hluti og upplifa,“ segir Ágúst Líndal Ágústsson og brosir út í annað munnvikið. Hann var 19 ára þegar hann greindist með heilaæxli og þrátt fyrir vel heppnaða meðferð leit um tíma út fyrir að líf hans væri engu að síður komið á endastöð.
Ágúst býr núna með föður sínum og alnafna í huggulegri íbúð í miðborginni. Á veggjunum eru plaköt af tvífara Ágústs eldri, James Dean, kvikmyndastjörnunni goðsagnakenndu sem lést fyrir aldur fram. Á borði í stofunni, innan um minjagripi frá knattspyrnufélaginu Chelsea og ljósmyndir af feðgunum á leik á Stamford Bridge í vor, stendur verðlaunagripur sem vinir Ágústs færðu honum eftir að hann greindist. Á hann er letrað: „Ágúst Líndal – Kóngurinn“.

Þar er einnig að finna bréf dagsett í janúar í fyrra, …