Skemmti­lega sögu­hornið: Allir geta orðið eins og skóla­töskur í framan! - Vísir

Skemmti­lega sögu­hornið: Allir geta orðið eins og skóla­töskur í framan! - Vísir

Skemmti­lega sögu­hornið: Allir geta orðið eins og skóla­töskur í framan! - Vísir

Eða brúnkukremið.

Nú eða ljósabekkina…

Það að að vera sólbrún þótti nú samt lengst af ekkert smart. Að minnsta kosti lagði aðallinn í Evrópu það á sig að nota hvítt andlitspúður og snyrtivörur til að ýkja hvíta fölvann sem var svo eftirsóttur.

Hvað breyttist?

Varð óvart brún

Ástæðan fyrir því að yfirstéttin í Evrópu lagði svo mikla áherslu á föla og hvíta húð öldum saman var einfaldlega þessi:

Að vera sólbrún eða útitekin gaf til kynna að viðkomandi ynni úti. Við landbúnað, sjómennsku eða aðra líkamlega vinnu.

Í sumum samfélögum tengdist dekkri húð einnig lægri samfélagsstöðu: Þrælum.

Hvíta andlitspúðrið varð því sérstaklega vinsælt hjá evrópsku yfirstéttinni á 17. og 18. öld. Og það þótt sumar vörurnar væru nánast baneitraðar: Innihéldu blý sem gat valdið alvarlegum eitrunum.

Þá, eins og nú, var fólk hins vegar til í að leggja ýmislegt á sig fyrir útlitið.

Kvikmyndin Dangerous Liaisons (1988) hlaut Óskarinn, meðal annars fyrir búninga og leikmynd en í þeirri mynd má vel sjá hversu eftirsótt föl húð var hjá evrópska aðlinum. Hér mynd af Glenn Close og John Malkovich í hlutverki franska aðalsins.

En förum nú um hundrað ár aftur í tímann.

Nánar tiltekið árið 1923.

Coco Chanel var þá fertug og þegar orðin gríðarlega áhrifamikil í tískuheiminum. En búin að brjóta niður ýmis gömul viðmið um það hvernig fínar konur ættu að líta út og klæða sig.

Coco Chanel boðaði nýja tíma:

Smart konur í einfaldari fötum, sýndu meira línurnar, jafnvel með styttra hár og yfirhöfuð konur sem lifðu lífstíl mun sjálfstæðari kvenna en fyrri viðmið höfðu áður boðað.

Sumarið 1923 er Coco Chanel síðan á siglingu við frönsku Riveríuna. Í viðtölum síðar sagði hún um ferðina að hún hefði reyndar fengið meiri sól en hún ætlaði sér í þessari ferð.

Enda var hún sólbrún og sæt þegar hún kom til baka.

Chanel steig frá borði í Cannes í Frakklandi. Við höfnina biðu ljósmyndarar, æstir í að mynda fræga fólkið þá eins og nú.

Sólbrúnka Chanel fór ekki fram hjá neinum. Seinna lýsti Vogue því í umfjöllun hjá sér hvernig þessi ferð Chanel varð í raun til þess að sólbrúnkan varð að nýju tískufyrirbrigði.

Bylgja sem breytti miklu

Fyrir fyrri heimsstyrjöldina hafði ríka fólkið í Norður-Evrópu sótt frönsku ríveríuna heim sem vetrardvalarstað. Fólk vildi njóta mildara loftslags en þó ekki yfir sumartímann þegar heitast var.

Hvað þá að liggja þá hálfnakið og baka sig í sólinni!

Á þriðja áratugnum breytist þetta. Staðir eins og Cannes, Antibes, Jual-les-Pins og Saint-Tropez verða smám saman staðir þar sem ríka og fræga fólkið fer að sjást á ströndinni.

Sumsé: Sólbrúnkan var nú komin í tísku!

Mjög skemmtileg innsýn í þennan tíma er serían Summer36 sem nú má finna á Netflix. Í henni má sjá hvernig ríka fólkið er að aðlaga sig þessum sólar- og sumarferðum. Nýjar vörur að koma inn á markaðinn sem algjörar byltingar: sólvarnir og sólarolíur!

Varnir gegn sólinni voru þó í reynd ekki markmið fyrr en á fjórða áratugnum. Þegar nýjar vörur bætast við í flóruna, til dæmis frá L‘Oréal sem kom með sína fyrstu sólvörnina sína á markað, Ambre Solaire, árið 1935 og var raunverulega ætlað að vernda húðina. Ekki þannig að fólk yrði ekki sólbrúnt heldur var kremið sagt tryggja að fólk fengi fallegri brúnku.

Í áðurnefndri Netflix-seríu má sjá áhrifin sem urðu í Frakklandi þegar verkafólk fékk sín fyrstu launuðu sumarfrí. Því það sem breyttist við þau var að frí á ströndinni var ekki lengur eitthvað sem aðeins ríka og fræga fólkið gat leyft sér. Heldur allir hinir líka!

Það sem áður þótti merki um að þú þyrftir að vinna mikið og værir verkamaður eða af lægri samfélagsstéttum var nú orðið að flottri sólbrúnku sem staðfesti að þú gast leyft þér að fara í gott frí og sóla þig.

Ekkert ólíkt því sem við þekkjum enn í dag.

Summer '36 serían á Netflix gefur góða innsýn í það þegar evrópski aðallinn var að aðlagast því að fara í sumar- og sólarfrí. Því lengst af fór yfirstéttin til frönsku riveríunnar til vetrardvalarstaðar. Sólvarnir og fleira koma við sögu í þáttunum.

Fyrsta bikiníið og djúpbrúnkan

Við hlaupum hratt yfir næstu áratugi. Þó er gaman að minnast á að fyrsta bikiníið kom á markaðinn árið 1946 og á sjöunda og áttunda áratugnum var sólbrúnka orðin svo eftirsótt að nú var sóst í það sem kallaðist djúp-brúnka.

Sem líkja má við ofurbrúnku!

Það sem hafði þá bæst við var að djúp, bronslituð brúnka varð að eftirsóttu útliti. Sem snyrtivöruiðnaðurinn hjálpaði til með því á þessum tíma komu á markaðinn fyrstu sjálfbrúnkuvörurnar.

Tíðarandinn gat verið ansi ýktur á þessum tíma. Þar sem ekki þótti nóg að vera bara útitekinn og brúnn eftir sólina, heldur þótti það enn flottara ef húðin var mjög dökk og bronslituð, svo ekki sé talað um áberandi augnförðun og mikið af maskara sem þóttu afar smart á þessum tíma.

Fyrsta nútímabikiníið var kynnt af Louis Réard 5.júlí 1946 en það þótti svo efnislítið að venjulegar fyrirsætur neituðu að klæðast því. Úr varð að dansarinn Micheline Bernardini tók að sér að sitja fyrir á myndum en til hægri má sjá bronsbrúnku eins og hún þótti hvað flottust: Leikkonan Farrah Fawsett.

Ljósabekkirnir slá í gegn!

Eins og oft gerist með nýjungar verða þær nánast óvart til.

Þannig varð það með vinsældir ljósabekkjanna, en upphaflega var ljósabekkurinn hannaður með útfjólubláu ljósi sem liður í ljósameðferð fyrir íþróttafólk.

Þýski vísindamaðurinn Friedrich Wolff hannaði ljósið og fljótlega kom í ljós aukaverkun sem vakti athygli:

Fólk varð brúnt!

Wolff áttaði sig strax á viðskiptatækifærinu, byrjaði að framleiða og selja ljósabekki með bróður sínum árið 1975 og árið 1977 opnaði fyrsta ljósabekkjarstofan í Berlín.

Í Bretlandi fóru ljósabekkirnir að njóta vinsælda frá 1978 og það verður að segjast að Ísland var líka snemma að kveikja á perunni.

Eða réttara sagt: UV-ljósinu!

Í Morgunblaðinu 29. júní 1980 birtist auglýsing fyrir Ljósastofu JSB þar sem stendur:

NÝTT – NÝTT – NÝTT

Það þótti allra meina bót að skella sér í ljós þegar ljósabekkirnir slógu fyrst í gegn. Enda voru ljósin talin skaðlaus fyrstu árin. Hér má sjá texta sem birtist í auglýsingu ljósastofu JSB 6.september 1980 í Vísi.

Þann 6. september 1980 birtist sambærileg auglýsing í Vísi fyrir Ljósastofu JSB. Ávinningur ljósatímanna – fyrir dömur og herra – var þá útskýrður nánar og meðal annars sagður felast í því að losa fólk við gigt og vöðvabólgu, fá vítamín í kroppinn, laga bólótta húð, losna við auma fituhnúða, halda psoriasis og exemi í skefjum og síðast en ekki síst:

Að verða brún!

Svo það sé svo sem nefnt hér líka, má benda á að ljós höfðu verið notuð töluvert fyrr í lækningaskyni. En segja má að þessi brúnkumenning hafi tekið á sig nýja mynd um og upp úr 1980.

Enda gætu heilu árgangarnir staðfest að varla gengu fermingarbörnin upp að altarinu næstu árin á eftir, nema búið væri að klára að minnsta kosti tíu ljósatíma fyrir stóra daginn!

Eins og skólatöskur í framan!

Næstu árin á eftir poppuðu upp ljósastofur á Íslandi eins og enginn væri morgundagurinn. Meira að segja smæstu sjávarpláss og þorp á landsbyggðinni fjárfestu í ljósabekkjum og vart fannst staður þar sem ekki var hægt að skella sér í ljós.

En sælan fór brátt að dala. Því á níunda og tíunda áratugnum fóru vísindalegar áhyggjur að heyrast af útfjólublárri geislun og fjölgun húðkrabbameinstilfella.

Landlæknisembættið lagði til að ljósabekkir yrðu bannaðir fólki undir 18 ára. Það bann tók gildi árið 2011 en þó náðist ekki pólitísk samstaða fyrstu árin.

Fyrrum aðstoðarlandlæknir, Matthías Halldórsson, var meðal þeirra sem voru ekki sáttir við að krakkar gætu enn sótt ljósin og vísaði þá til þess að fyrst og fremst hefði vantað á pólitískan vilja.

Í frétt á Vísi þann 13. október 2005 segir:

„Hann segir unga krakka ekki skilja nægilega vel hvað felist í húðkrabbameini. 

Húðin verði „ljót og hrukkótt og þeir sem eru lengi í sól verða eins og skólatöskur í framan,“ 

segir Matthías.“

Stóra höggið fyrir þá sem voru í bissness með ljósabekki kom þó ekki fyrr en árið 2009. Því það árið varð mjög afgerandi breyting á alþjóðlegri umræðu þegar Alþjóðakrabbameinsrannsóknarstofnunin IARC – sem heyrir undir WHO – flokkaði UV-geislun frá ljósabekkjum sem krabbameinsvaldandi.

Hinn kunni blaðamaður, Atli Steinn Guðmundsson, skrifaði þá frétt um málið á Vísi. Þar sem einfaldlega segir:

Ljósabekkir ávísun á húðkrabba

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þetta var.

Og þó.

Því sólbrúnka virðist enn í tísku og er mjög eftirsótt.

Sjálfbrúnkukrem seljast sem aldrei fyrr, sólarferðir eru vinsælar um allan heim og enn er frekar stuðst við að það að vera svolítið sólbrúnn sé merki um hreysti frekar en hitt.

Virðist þó að hluta til enn versna í því. Því svo eftirsótt er sólbrúnkan að fólk er jafnvel að leitast við að kaupa ólögleg og stórhættuleg efni til að sprauta sig með, til að verða brúnni.

Í sjónvarpsfrétt Sýnar í vor segir Jenna Huld Eysteinsdóttir húðlæknir í viðtali við Elísabetu Ingu fréttamann að þótt nýrnabilun og heilabjúgur geti verið meðal aukaverkana á ólöglega peptíðlyfinu Meló séu foreldrar jafnvel að kaupa lyfið fyrir börn sín og vini þeirra.

Sem Jenna Huld telur skýrast af fleiri þáttum en sólbrúnkunni eftirsóttu.

„Þú færð ógleði og minnkar þannig matarlystin þannig að þú getir grennst og svo á kynhvötin að verða meiri,“ segir Jenna Huld sem dæmi um aukaverkanir sem virðast gera lyfið jafnvel enn eftirsóknarverðara en ella.

Sólvarnarmálin og tískan

Það gleður íslenska þjóð fátt jafn mikið og gott veður. Samfélagið lyftist upp. Þjóðin verður einfaldlega hamingjusamari.

En það þarf að læra betur á sólvarnir segja læknar.

Í sjónvarpsfréttum Sýnar vorið 2005 ræðir Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður við Elísabetu Reykdal, húð- og kynsjúkdómalækni, sem segir Íslendinga þurfa að nota meira af sólvörnum og oftar.

Í sömu frétt ræðir Lillý líka við Sunnu Kristínu Hannesdóttur, sérnámslækni í húðlækningum, sem segir:

„Fólk notar of þunnt lag en maður þarf að nota dálítið vel af vörunni til þess að hún skili tilskyldum árangri.“

Sunna segir fólk auðvitað eiga að njóta sólarinnar. En læra að nota réttar vörur á réttan hátt, enda geti það komið í veg fyrir skaðsemi allt að 97% geislanna.

Því eitt af því sem er svo áhugavert við sólbrúnkutískuna er að hún hefur áhrif á öldrun húðarinnar og ef eitthvað er hefur baráttan gegn aldrinum aldrei verið jafn sýnileg í útlitsdýrkun og nú.

„Eitthvað sem margir vita ekki er að áttatíu prósent af öldrun húðarinnar, hrukkur og svona, er tengd sólinni,“ segir Elísabet Reykdal læknir til dæmis í viðtali við Reykjavík síðdegis nú í sumar.

En þrátt fyrir allt virðast vinsældir sólbrúnkunnar frekar vera að sækja í sig veðrið frekar en hitt. Í það minnsta segir í fyrirsögn á Vísi í sumar:

Húðlæknir bregst við brúnkutískunni

Kannski að sólbrúnkan þyki einfaldlega enn jafn smart?

Helstu heimildir:

A Short Cultural History of the Tan Line

Sience Museum: The story of sun cream

National Library of Medicine: The Rise and Fall of The Sunbed in Britain

IARC - WHO: Sunbeds and UV Radiation

Vísir.is

#allir #geta #orðið #skemmtilega #söguhornið


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262923433d/skemmti-lega-sogu-hornid-allir-geta-ordid-eins-og-skola-toskur-i-framan-

📰 Aðrar fréttir

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Fall ríkisstjórnarinnar
📅 04.10.2026 👁️ 0
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Fall ríkisstjórnarinnar
Mynd Alkunna er að innmúraðir og innvígðir Sjálfstæðis
Kyiv bridge hit in further Russian drone attack as German chancellor makes surprise visit
📅 04.10.2026 👁️ 0
Kyiv bridge hit in further Russian drone attack as German chancellor makes surprise visit
Unverified video shows a drone hitting the Northern Bridge as vehicles move across it, creating a large fireball.
Þrír særðir í skotárás í Halden
📅 04.10.2026 👁️ 0
Þrír særðir í skotárás í Halden
Þrír voru skotnir í skotárás í bænum Halden í Noregi snemma í morgun. Greint er frá árásinni á vef norska ríkisútvarpsins, NRK. Þar segir að lögregla ...
Íslendingar í dönskum þrælakistum
📅 04.10.2026 👁️ 0
Íslendingar í dönskum þrælakistum
Á 18. og 19. öld voru margir Íslendingar dæmdir annaðhvort heima í héraði eða á Alþingi til þess að taka út refsingu sína í þrælakistum og betrunarhús...
Bad weather causes two days of flight disruption in Tenerife
📅 04.10.2026 👁️ 0
Bad weather causes two days of flight disruption in Tenerife
Bad weather caused two consecutive days of disruption at Tenerife North Airport, resulting in cancelled flights and aircraft being diverted to other a...
Hvassir vindstrengir á Suðausturlandi
📅 04.10.2026 👁️ 0
Hvassir vindstrengir á Suðausturlandi
Búast má við hvössum suðvestan- og vestanvindstrengjum suðaustanlands fram yfir hádegi, einkum í Mýrdal og Öræfum. Veðurstofa Íslands hvetur ökumenn á...
Fundið brak úr flug­vélinni sem týndist á leið frá Bermúda - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Fundið brak úr flug­vélinni sem týndist á leið frá Bermúda - Vísir
Kemur þetta fram í yfirlýsingu sem bandaríska strandgæslan sendi frá sér en þar kemur einnig fram að skip, þyrlur og flugvélar tækju þátt í leitinni, ...
Grípum til vopna
📅 04.10.2026 👁️ 2
Grípum til vopna
Grípum til vopna Fréttin4. október 2026Aðsend greinLeave a Comment Þröstur Jónsson skrifar. Kristnir í þessu landi sem víðar þurfa að taka sig á og ga...
Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana
📅 04.10.2026 👁️ 1
Hormússund verður ekki opnað nema Bandaríkjamenn fallist á sjö meginkröfur Írana
Bandaríkjamenn þurfa að fallast á alla vopnahlésskilmála Íransstjórnar sem fram koma í samningsdrögunum sem gerð voru í Pakistan áður en opnað verður ...
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósa­staur - Vísir
Er þetta meðal þeirra 68 mála sem voru skráð í kerfi lögreglunnar frá klukkan 17:00 í gær til klukkan 05:00. Það gistu í það minnsta þrír í fangageyms...
Brak úr flugvél fannst við Nantucket-eyju
📅 04.10.2026 👁️ 2
Brak úr flugvél fannst við Nantucket-eyju
Björgunarsveitir hafa fundið brak úr flugvél undan ströndum Nantucket-eyju við Massachusetts í Bandaríkjunum.Bandaríska strandgæslan segir að þarna sé...
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 2
Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði al­veg strax - Vísir
Er þetta meðal þess sem kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en þar segir einnig að síðdegis muni draga eitthvað úr bæði vindi...
Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 1
Há­grét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn - Vísir
Í dag er Davíð 21 árs og vinnur að þróun á snjallforriti sem ætlað er fólki sem glímir við spilafíkn. Ekki síst ungu fólki sem á erfitt með að stíga f...
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna
📅 04.10.2026 👁️ 3
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna
Fékk máttinn á Kleppi til að byrja endurhæfinguna Ág­úst Lín­dal Ág­ústs­son varð mátt­laus í hálfu and­lit­inu eft­ir með­ferð gegn fjórða stigs krab...
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — einnig viðbúnaður í Kópavogi
📅 04.10.2026 👁️ 3
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — einnig viðbúnaður í Kópavogi
Lögreglumenn brugðust við tilkynningu manns í úthverfi sem óttaðist að annar sæti um sig vegna óuppgerðra mála og sögðu þeim grunaða að hætta og hypja...
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — viðbúnaður í Kópavogi
📅 04.10.2026 👁️ 1
Lögreglumenn handtóku mann sem gekk í veg fyrir umferð í miðborginni — viðbúnaður í Kópavogi
Lögreglumenn brugðust við tilkynningu manns í úthverfi sem óttaðist að annar sæti um sig vegna óuppgerðra mála og sögðu þeim grunaða að hætta og hypja...
Australia investigating Flydubai co-pilot's links to country
📅 04.10.2026 👁️ 3
Australia investigating Flydubai co-pilot's links to country
State police and the country's security agency are looking into the co-pilot, who attempted to take control of a Flydubai plane travelling to Israel.
Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn
📅 04.10.2026 👁️ 2
Þýskalandskanslari óvænt kominn til Kyiv til að árétta stuðning sinn
Friedrich Merz Þýskalandskanslari er kominn til Kyiv að eigin sögn til að árétta áframhaldandi stuðning við úkraínsk stjórnvöld í innrásarstríði Rússa...
Krakkatía vikunnar: Euro­vision, Harry Potter og Mr. Beast - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 3
Krakkatía vikunnar: Euro­vision, Harry Potter og Mr. Beast - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum
📅 04.10.2026 👁️ 3
Ný tegund eðlu uppgötvaðist hátt í Andesfjöllum
Vísindamenn hafa fundið nýja eðlutegund í næstum fimm kílómetra hæð í Andesfjöllum í Perú. Stjórnendur Náttúrusögusafns Háskóla heilags Markúsar í höf...
What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
📅 04.10.2026 👁️ 3
What to know about Brazil's election pitting Lula against Flávio Bolsonaro
Polls suggest the election will be a closely run contest between the left-wing incumbent and his right-wing rival.
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
📅 04.10.2026 👁️ 3
Tveimur írönskum sendimönnum „sparkað úr landi“
Bandaríska utanríkisráðuneytið vísaði tveimur írönskum erindrekum úr landi, „sparkaði þeim brott“ eins og það er orðað. Þeir höfðu áður hunsað fyrirsk...
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
📅 04.10.2026 👁️ 3
Engan sakaði þegar þrjú skip rákust saman skammt frá Álasundi
Engan sakaði þegar olíuflutningaskip og tvö flutningaskip rákust saman í Valderhaugfirði skammt frá Álasundi í Noregi í nótt. Tvö skipanna eru komin t...
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
📅 04.10.2026 👁️ 3
Burnham scraps controversial plans to curb jury trials
The key policy idea announced by David Lammy when he was justice secretary will no longer go ahead.
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
📅 04.10.2026 👁️ 4
Flokkur forsætisráðherrans stærstur en samstarfslokkarnir dala
Allt útlit er fyrir að miðhægriflokkur forsætisráðherrans Andris Kulbergs hafi unnið sigur í þingkosningum sem haldnar voru í Lettlandi í gær. Þegar y...
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
📅 04.10.2026 👁️ 4
Rektor Cornell biðst afsökunar á meðhöndlun hópnauðgunarmálsins
Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla í Bandaríkjunum, segist ekki hafa tekið nægilega hart á hópnauðgun sem framin var í skólanum árið 2024. Kotl...
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
📅 04.10.2026 👁️ 4
The Celebrity Traitors connections that might surprise you, from Jerry Hall and Richard E Grant to Rob and Romesh
Lots of the stars have worked together, some are good friends - and that can impact the show's dynamics.
When parenting advice becomes too much
📅 04.10.2026 👁️ 4
When parenting advice becomes too much
Many parents feel overwhelmed by the amount of parenting information available
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
📅 04.10.2026 👁️ 4
Snarpur jarðskjálfti austan við Brennisteinsfjöll fannst vel á höfuðborgarsvæðinu
Jarðskjálfti sem fyrstu tölur benda til að hafi verið af stærðinni 3,8 reið yfir austur af Brennisteinsfjöllum klukkan tuttugu mínútur fyrir eitt í nó...
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Skjálfti fannst á höfuð­borgar­svæðinu - Vísir
Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, ...
Höfuð­borgar­svæðið skalf - Vísir
📅 04.10.2026 👁️ 4
Höfuð­borgar­svæðið skalf - Vísir
Jarðskjálfti fannst víða um höfuðborgarsvæðið nú um klukkan tuttugu mínútur í eitt eftir miðnætti. Hann fannst bæði í vesturbæ Reykjavíkur, Kópavogi, ...
UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
📅 04.10.2026 👁️ 4
UK weather: Autumn chill to arrive as temperatures finally drop
After highs of 28C in the final week of September, cooler air will arrive this week with temperatures falling closer to the seasonal norm.
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
📅 04.10.2026 👁️ 4
Afar mjótt á munum með Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
Forsetakosningar verða haldnar í Brasilíu í dag. Kjósendur velja einnig þingmenn á löggjafarþing lands og fylkja, nokkra öldungadeildarþingmenn og fyl...
Afar mjótt á munum milli Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
📅 04.10.2026 👁️ 3
Afar mjótt á munum milli Lula og Bolsonaro í skoðanakönnunum
Forsetakosningar verða haldnar í Brasilíu í dag. Kjósendur velja einnig þingmenn á löggjafarþing lands og fylkja, nokkra öldungadeildarþingmenn og fyl...
'Another tax bombshell?' and 'Terror plot targets'
📅 03.10.2026 👁️ 2
'Another tax bombshell?' and 'Terror plot targets'
Several of today's papers feature Andy Burnham's latest plans as PM, including experts warning of a potential tax rise to help cover his social care p...
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri út­sendingu - Vísir
Hin 51 árs Hammond stýrir þættinum This Morning á bresku stöðinni ITV en í þætti gærmorguns virtist hún skyndilega halda um brjóstið á sér á meðan með...
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
📅 03.10.2026 👁️ 4
Cornell University president says school 'must do better' after rape allegations
Michael Kotlikoff described the allegations of a woman who says she was drugged and gang raped as "deeply disturbing".
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
📅 03.10.2026 👁️ 4
Lögregla með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku
Lögreglan er með talsverðan viðbúnað í Auðbrekku í Kópavogi. Fréttastofu barst ábending um að lögreglubílar væru í götunni en ekki hefur fengist staðf...
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
📅 03.10.2026 👁️ 4
Why Canada is preparing for a (longshot) US invasion
Prime Minister Mark Carney has said the military is running scenarios in the unlikely case the US invades Canada.
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 4
Við­búnaður á slóðum Vítisengla - Vísir
Ekki hefur náðst í lögreglu vegna aðgerðarinnar en lögreglumenn hafa ítrekað áður staðið í aðgerðum á svæðinu vegna samkoma Vítisengla. Á plakati sem ...
Jarðskjálftar í Kötluöskju
📅 03.10.2026 👁️ 4
Jarðskjálftar í Kötluöskju
Nokkrir jarðskjálftar í kringum 3 að stærð hafa orðið í Kötluöskju í Mýrdalsjökli í kvöld. Einn 3 að stærð varð klukkan 21:44. Bjarki Kaldalóns Friis,...
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
📅 03.10.2026 👁️ 4
Segjast hafa gert loftárás gegn leiðtoga Hamas
Ísraelsher segist hafa gert loftárás á Gaza í dag gegn leiðtoga Hamas, Ali al-Amoudi. Yfirvöld á Gaza segja fimm hafa verið drepna í árásinni. Ísraels...
Katla skelfur - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Katla skelfur - Vísir
Bjarki Kaldalóns Friis náttúruvársérfræðingur segir í samtali við Vísi að nokkrir skjálftar hafi mælst í kringum klukkan 21.30 í kvöld. Enn eigi eftir...
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Mikill við­búnaður eftir að ó­þekktur hlutur fannst í sjónum - Vísir
Lögreglan í finnsku höfuðborginni skrifar í yfirlýsingu að lögreglunni hafi borist tilkynning upp úr klukkan 19 að staðartíma (kl. 16 að íslenskum tím...
England star Jude Bellingham shows he could become "one of the greatest" as he unlocks new level
📅 03.10.2026 👁️ 2
England star Jude Bellingham shows he could become "one of the greatest" as he unlocks new level
Jude Bellingham's international future was being called into question a year ago, but now he is regarded as potentially one of England's "greatest of ...
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
📅 03.10.2026 👁️ 5
Æfðu opnun fjöldahjálparstöðva vegna rafmagnsleysis um allt land
Í 28 fjöldahjálparkerrum víðs vegar um landið er allt það helsta sem þarf til að opna fjöldahjálparstöð, til dæmis beddar, teppi, skyndihjálparbúnaður...
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
📅 03.10.2026 👁️ 5
Conservatives pledge to scrap £100,000 childcare 'cliff edge'
Party leader Kemi Badenoch tells the BBC that she wants to see "people who work harder" not getting punished for doing so.
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
📅 03.10.2026 👁️ 5
Allir sem lentu í slysinu á Jökuldal eru erlendir ríkisborgarar
Lögreglan á Austurlandi hefur sent frá sér nýja tilkynningu vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð í dag á Jökuldal við Háreksstaðakvísl. Í slysinu le...
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
📅 03.10.2026 👁️ 5
Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá nýkjörnum formanni. Salma, sem er 27 ára, hefur setið í stjórn hreyfingarinnar um nokkurt skeið en hún tekur nú við...
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
📅 03.10.2026 👁️ 3
Ex-City trader How to spot a psychopath at work
Geraint Anderson says some modern workplaces reward psychopathic traits.