Á 18. og 19. öld voru margir Íslendingar dæmdir annaðhvort heima í héraði eða á Alþingi til þess að taka út refsingu sína í þrælakistum og betrunarhúsum Kaupmannahafnar. Sum árin voru svo margir fluttir út að heilu blaðsíðurnar fylltust af íslenskum nöfnum í fangaskránum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fyrsta þætti Betrunar, þáttaraðar um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð á Rás 1.
Sigríður Hjördís Jörundsdóttir sagnfræðingur hefur rannsakað afdrif íslenskra sakamanna 1736–1830. Hún fann upplýsingar um 166 Íslendinga í fangaskrám fangelsanna sem voru starfandi í Kaupmannahöfn á þessum tíma. Flestir þeirra voru sendir í Stokkhúsið sem var eitt alræmdasta fangelsi Evrópu á þessum tíma.
Langflestir sakamannanna voru sendir út um miðja 18. öld þegar mikil harðindi ríktu á Íslandi.
Hungrað fólk á vergangi
Seinni hluti 18. aldar einkenndist af miklum harðindum eins og sést ef Öldinni okkar er flett. 1747 var dæmafátt óþurrkasumar sunnanlands. Harðæri og fiskleysi með búfjárfelli og vesöld í mönnum olli því að sýslumenn þurftu að opna búðir kaupmanna um veturinn til að sækja þar matvöru örþrota fólki til lífsbjargar. Engu að síður féll fólk úr hor og farsóttum sem herjuðu á Íslendinga. Svo má ekki gleyma náttúruhamförum. Í september 1755 hrundu bæir og menn drukknuðu í jarðskjálftum á Norðurlandi og aðeins mánuði síðar dundi ný hörmung yfir: Kötlugos með feikna jökulhlaupi og öskufalli.
1756 er síðan lýst í Öldinni okkar: „Um land allt hafa bændur flosnað upp hópum saman vegna harðindanna enda var síðastliðinn vetur fádæma grimmur og hvarvetna hrynur fólk nú niður af bjargarskorti. Hjú voru rekin á vergang því enginn vildi taka við þeim.
Búpeningur er nálega gerfallinn og mjólkurpeningur sem hjarir er nytjalítill ef ekki steingeldur. Allra hörmulegast er ástandið í brunasveitunum í Vestur-Skaftafellssýslu, er heita má eyddar af kvikfénaði.
Ofan á allt annað lá hafís við land langt fram á sumar og kuldinn slíkur að það var ís á ám þannig að hægt var að ríða yfir á þurru.
Í vetur og vor mátti víða sjá tært og klæðalítið fólk liggja dag eftir dag dorgandi á ísum, í von um að veiða einhverja bröndu til þess að seðja hungrið eða snöltrandi á fjörum ef þar fyndist eitthvað sem hungraður maður gæti gleypt í sig. Í vor hafa holtarætur og harðasækjur verið grafnar upp um allt land og þótt ljúffengur matur í hungursneyðinni.“
Sigríður segir að einn anginn af þessum harðindum sé að mikill fjöldi íslenskra sakamanna hafi verið fluttur út til Kaupmannahafnar, sumir fyrir litlar sakir. „Allt frá því að stela einu færi eins og einn. Hann stal færi og var dæmdur fyrir það; færi sem hann ætlaði bara að skila aftur og nota til þess að ná sér í eitthvað í soðið.“
Brennimerkt og húðstrýkt fyrir þjófnað
Hún segir að margt veki furðu í dag þegar dómar fyrri alda eru skoðaðir. Fólk sem gerðist sekt um þjófnað var dæmt í fangelsi, brennimerkt og húðstrýkt. „Lífstíðarfangelsi og með mark á líkamanum alla ævi um að þú hafir gerst brotlegur. En á þessum harðindaárum þá er það að eiga kind mikilvægt og miklu mikilvægara heldur en það að jafnvel að myrða einhvern einstakling. Eignarrétturinn er svo sterkur og svo er bara spurning um hver lifir af. Þannig að það er tekið mjög hart á þjófnaðarbrotum.“
Langflestir þeirra Íslendinga sem sendir voru í fangelsi í Kaupmannahöfn voru dæmdir fyrir þjófnað og enduðu yfirleitt í Stokkhúsinu. Stokkhúsið var ekki betrunarhús heldur þrælahús þar sem fangarnir voru hlekkjaðir í járn.
Björn Th. Björnsson rithöfundur og listfræðingur segir í Á hafnarslóð, þáttaröð sem hann gerði um Kaupmannahöfn og sýnd var í sjónvarpi 1990, að mörg hundruð Íslendingar hafi verið sendir í Stokkhúsið á 17., 18. og 19. öld.
Í fyrsta þætti Betrunar er spilað hljóðbrot úr þætti Björns um Jónshús sem stendur á horni Austur-Voldgade og Stokkhúsgötu. Þegar Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir eiginkona hans bjuggu þar gátu þau horft yfir í garðinn þar sem íslensku fangarnir hímdu klæðalitlir og í hlekkjum.
Hrannar Hólm, leiðsögumaður í Kaupmannahöfn, segir að fangelsið hafi verið rifið á sínum tíma og þar byggður Tækniháskóli Danmerkur, DTU. Í dag er Jarðfræðistofnun Danmerkur og Grænlands þar til húsa. Skuggaleg saga fangelsins vofði yfir íbúum götunnar, sem ber nafn fangelsisins, og reyndu þeir jafnvel að fá nafninu breytt því þeim þótti svo leitt að búa við götu sem var kennd við illræmdasta fangelsi borgarinnar.
Voru ekki fangar heldur þrælar
„Stokkhúsið var upprunalega byggt fyrir fanga hersins og var eingöngu notað fyrir herfanga. Síðan var annað fangelsi sem hét Trunken og var úti á Brimarhólma. Á íslensku hefur það yfirleitt verið kallað Brimarhólmi þótt það hafi aldrei heitið Brimarhólmi,“ segir Hrannar.
Aðstæður fanga í Stokkhúsinu hafi verið svo ömurlegar að það sé ekki einu sinni hægt að ímynda sér þær. „Enda eru náttúrulega ekki nema hundrað ár síðan fólk fór að líta á fátækt fólk og fanga sem venjulegt fólk. Þetta voru náttúrulega bara vinnudýr sem mátti hirða af götunni og láta þræla. Þess vegna voru fangarnir ekki kallaðir fangar heldur þrælar.“
Íslendingarnir fengu ekkert öðruvísi meðferð en aðrir fangar. Það sem var sérstakt við þá íslensku var að dánartíðnin var hærri en meðal danskra fanga. Það var ekki endilega vegna verri meðhöndlunar heldur var ónæmiskerfið annað. Íslendingarnir höfðu aldrei áður komist í kast við þær farsóttir sem geisuðu í Kaupmannahöfn á þessum tíma og einfaldlega dóu ef þeir sýktust. Annað sem var sérstakt við Íslendingana var að þeir voru þeir einu sem voru ánægðir með matinn enda nánast hungurmorða þegar þeir komu til Kaupmannahafnar með haustskipum danskra kaupmanna.
Dó á leið í frelsið
Aðeins hluti fanganna lifði vistina af og ekki er vitað hvað varð um marga þeirra. 17 enduðu í Finnmörk, nyrsta fylki Noregs, og verður fjallað nánar um þann afkima íslenskrar betrunarsögu í þriðja þætti Betrunar. Einn þeirra dó í skipinu á leiðinni til Finnmerkur og telur Björn Th. Björnsson að það geti hafa verið Þorleifur Jónsson.
Þorleifur hafði hlotið þann vafasama heiður að verða fyrstur Íslendinga til að gista í Stokkhúsinu. Þangað kom hann árið 1745 og var þá 26 ára. Heima í Barðastrandarsýslu hafði hann verið dæmdur fyrir sinn fjórða þjófnað til lífstíðarrefsivistar. Hann afrekaði það einnig að vera lengst Íslendinga í Stokkhúsinu, eða 18 ár. Það er því heldur dapurlegt að hugsa til þess að, hafi þetta verið hann sem dó á skipinu, að loksins þegar hann, 44 ára, var að verða frjáls hafi hann dáið.
Þrátt fyrir að fjölmargir Íslendingar hafi afplánað í Stokkhúsinu, og í rauninni miklu fleiri en á Brimarhólmi, þá er tungunni tamt að nefna Brimarhólm þegar rætt er um málefni fanga á fyrri öldum. Sem dæmi um þetta er fyrirsögn á forsíðu Lesbókar Morgunblaðsins 1956: „Fáráðlingur dæmdur ævilangt á Brimarhólm“.
Greinin fjallar um örlög ungs manns í Borgarfirði sem var fundinn sekur um sauðaþjófnað snemma á 19. öld.
„Þorsteinn Einarsson skal fyrir stuld á einum veturgömlum sauð og fimm lömbum missa húð sína við staur og þrælka ævilangt í Kaupmannahafnar þrælavarðhaldi.“
Höfundur greinarinnar gefur sér það að Þorsteinn hafi verið dæmdur á Brimarhólm þrátt fyrir að Stokkhúsið hafi tekið við hlutverki Brimarhólms 70 árum áður. Árið 1739 var ákveðið að hætt skyldi að dæma menn á Brimarhólm og tveimur árum síðar voru allir fangar þaðan fluttir í Stokkhúsið.
Sigríður segir að með því að dæma menn á Brimarhólm hafi ekkert endilega verið átt við að viðkomandi ætti að fara á Brimarhólm, heldur hafi þetta orð í fyrstu verið notað sem hugtak yfir refsivist.
Betrun er á dagskrá Rásar 1 á þriðjudögum. Hægt er að hlusta á þáttinn í heild hér fyrir ofan.