Íslendingar hrífast af þorpi fyrir heilabilaða

Íslendingar hrífast af þorpi fyrir heilabilaða

Íslendingar hrífast af þorpi fyrir heilabilaða

Eldri kona slær til starfsmanns inni í húsi. Starfsmaðurinn bregst ekki við og tekur ekki fram fyrir hendurnar á henni þegar hún tekur í húninn, opnar dyrnar og gengur út úr húsinu. Hún strunsar áfram, í hvarf. Tveimur mínútum síðar birtist hún aftur. Hún raular. Á andliti hennar er blítt bros. Hún virðist hafa gengið af sér reiðina.

Þessi kona býr í heilabilunarþorpinu Hogeweyk í Hollandi, skammt frá Amsterdam. Hún er ein af þeim 188 sem þar búa og eiga það öll sameiginlegt að vera með langt gengna heilabilun.

Íslenskt heilbrigðisstarfsfólk hefur reglulega lagt leið sína í þorpið á síðustu árum. Í samtölum við Kveik nefndi það þetta úrræði ítrekað sem fyrirmynd að þjónustu við heilabilaða sem þurfa sólarhringsþjónustu. Ráðgjafi hjá þorpinu segir að Íslendingarnir nefni helst að regluverk gæti staðið í vegi fyrir því að sambærilegt úrræði verði opnað á Íslandi.

Þorpið er enda um margt ólíkt þeim heilabilunardeildum sem boðið er upp á hér á landi.

Um er að ræða ágætlega stórt lokað þorp, byggt upp af húsum heimilismanna – sem þeir búa sex til sjö saman í – matvöruverslun, veitingahúsi, kaffihúsi, bar, göngustígum og torgum. Innan þess eru íbúarnir frjálsir, þeir geta gengið út af heimilum sínum þegar þá lystir en fæstir íbúanna mega fara einir út fyrir þorpið.

„Opinberlega er þetta hjúkrunarheimili en þér líður ekki eins og þetta sé hjúkrunarheimili,“ segir Iris Van Sloothen, ráðgjafi hjá BeAdvice, ráðgjafafyrirtæki Hogeweyk. „Tilfinningin er frekar að þetta sé venjulegt hverfi.“

Kveikur heimsótti þorpið nýverið og það er rétt sem Iris segir að það er mjög ólíkt því að koma inn á venjulegt hjúkrunarheimili. Það minnir frekar á venjulegt líf.

„Einhvern veginn varð í umönnun heilabilaðra mjög flókið að bjóða fólki venjulegt líf,“ segir Iris.

Heilabilunargreining eftir rifrildi

Jan Kroeze flutti í þorpið fyrir fimm mánuðum. Mieke, eiginkona hans, heimsækir hann nánast daglega.

„Jan er ástin í lífi mínu, í alvöru,“ segir Mieke og hlær. „Þegar ég sá hann fyrst hugsaði ég: „Þetta er maðurinn minn!““

Hjónin hafa verið saman í 55 ár. Það eru liðin nokkur ár síðan fyrstu heilabilunareinkenni Jans komu fram en þau voru til að byrja með smávægileg. Atvikið sem varð til þess að þau leituðu til læknis snerist ekki einungis um gleymskuna.

Jan vildi elda kjúklingasúpu, súpu sem hann var vanur að elda. Þegar komið var í búðina keypti hann kolranga hluti. Hann brást illa við leiðréttingum Mieke og svo fór að hjónin hnakkrifust í hátt í heilan sólarhring.

„Þetta var ekki fallegt,“ segir Mieke og hristir höfuðið. Þau leituðu til læknis og í ljós kom að Jan var með heilabilun. Þegar hann gat ekki búið lengur heima var Mieke ekki alveg viss um hvað hún ætti að gera. Hún kenndi sjálf hjúkrunarfræði og þekkti ágætlega hefðbundin hjúkrunarheimili.

„Á þeim sá ég ýmislegt sem gerði mig leiða,“ segir Mieke. Hún þekkti manneskju sem vann í Hogeweyk og ákvað að kynna sér staðinn betur. „Ég er svo glöð að Jan sé hér í dag.“

En það hefur ekki alltaf verið auðvelt fyrir Jan að búa á nýjum stað. Á einum tímapunkti var tekin ákvörðun um að setja hann á róandi lyf. Mieke segir að það hafi gengið vel til að byrja með „en svo var Jan ekki lengur hann sjálfur,“ segir Mieke. „Svo við ákváðum að hann skyldi hætta á þeim.“

Hvað var gert í staðinn?

„Þau nálguðust hann bara þannig að hann væri stöðugur, settust hjá honum, fóru með hann út að ganga, létu hann vera með bókunum sínum.“

Anne van den Brink, sem hefur unnið við umönnun í Hogeweyk í um tvo áratugi, segir að stundum geti geðlyf verið hjálpleg þegar aðrar leiðir virka ekki til þess að hjálpa íbúum að líða betur. Oft gangi vel upp að hjálpa fólki með öðrum hætti.

„Ef einhver verður reiður, gakktu það af þér. Farðu út undir bert loft. Það er það besta sem ég get látið mér detta í hug á því augnabliki. Stundum hjálpar það til. Stundum hjálpar bara að láta fólk vera. „Vertu reiður, það er allt í lagi. Ég er stundum reið. Og ef það er allt í lagi hjá þér, komdu þá til mín og við tölum um þetta.““

Gekk um þorpið á nóttunni

Enginn dagur er eins í Hogeweyk. Anne tekur fyrrverandi bareiganda sem bjó í þorpinu sem dæmi. Konan var vön óhefðbundnum sólarhring og hélt í hann eftir að hún flutti í þorpið.

Hún svaf gjarnan til hádegis og fór ekki í rúmið fyrr en klukkan þrjú eftir miðnætti. Á nóttunni gekk hún gjarnan um þorpið. Stundum fékk hún sér blund úti á bekk.

„Við sögðum henni ekki að hún þyrfti að vera komin heim klukkan níu og fara í rúmið. Ef hún vildi ganga um á nóttunni þá var það bara hennar mál,“ segir Anne. „Þannig að hún bjó hér en hún lifði sínu eigin lífi og það var allt í lagi.“

Og það gerði þitt líf, eða þína vinnu, ekki erfiðara?

„Nei, hún gerði það jafnvel enn sérstakara,“ segir Anne og brosir.

Á kostnað hvers er öryggið?

Í þessu samhengi vaknar spurningin um öryggi fljótt. Er öruggt að leyfa konu sem er með heilabilun að ganga um þorpið að nóttu til? Iris telur að umönnun heilabilaðra víða um heim miði í dag að miklu leyti að því að tryggja öryggi þeirra.

„Það kemur frá þeirri hugsun að við sjáum fólk með heilabilun sem viðkvæmt fólk sem við þurfum að ofvernda. Með því að gera það þá tökum við líka frá þeim lífsgæði. Ef við ætlum að halda fólki öruggu ættum við að setja það í stól og leyfa því ekki að hreyfa sig allan daginn. Kannski heldur það fólki öruggu, en á kostnað hvers?“ spyr Iris.

„Við þurfum að sætta okkur við að lífinu fylgja ákveðnar áhættur. Það breytist ekki þegar við eldumst, það breytist ekki þegar þú ert með heilabilun. Þú átt enn rétt á að upplifa þessar áhættur því ef við fjarlægjum þær þá tökum við líka af þér lífsgæði.“

„Nú skil ég“

Á veitingastaðnum í Hogeweyk setjumst við niður með Mieke sem hefur lítinn tíma til að spjalla við okkur. Hún á í hrókasamræðum við íbúa úr þorpinu sem er að sýna henni miða. Þau ræða saman á hollensku. Maðurinn virðist aðeins ringlaður en hann gleðst yfir einhverju sem Mieke segir. Hann virðist hafa áttað sig.

„Hann var að velta fyrir sér hvað upplýsingarnar á miðanum þýddu,“ segir Mieke við okkur. „Sonur hans hafði skrifað honum miða sem á stóð: „Ég kem klukkan fjögur.““

Þegar við göngum aftur út sjáum við manninn aftur. Hann er að bera miðann undir starfsmann. „Ah!“ hrópar hann svo upp yfir sig. „Nú skil ég.“ Hann heldur göngu sinni áfram kátur, þangað til hann stoppar næsta vegfaranda.

#fyrir #heilabilaða #hrífast #íslendingar #þorpi


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-04-islendingar-hrifast-af-thorpi-fyrir-heilabilada-488646

📰 Aðrar fréttir

Hverjum gagnast vælutalið?
📅 05.10.2026 👁️ 0
Hverjum gagnast vælutalið?
Hverjum gagnast vælutalið? Fréttin5. október 2026Björn Bjarnason, Innlent, StjórnarfarLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Að kalla gagnrýni væl s...
Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Tíu manns veitt sál­gæsla eftir bana­slysið - Vísir
Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í slysinu sem varð rétt fyrir hádegi á Laugardag á þjóðvegi eitt á Jökuldalsheiði við Háreksstaðakvísl....
Litlu mátti muna fyrir Hrund og fjölskyldu þegar orlofsíbúð sprakk í Aþenu - „Þetta var einum degi frá því að vera við“
📅 05.10.2026 👁️ 0
Litlu mátti muna fyrir Hrund og fjölskyldu þegar orlofsíbúð sprakk í Aþenu - „Þetta var einum degi frá því að vera við“
Afreksíþróttakonan Hrund Scheving hélt í september til Grikklands til að keppa á heimsmeistaramótinu í ólympískum lyftingum. Hana óraði þó ekki fyrir ...
Ögur­stund í kjara­samninga­málum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ögur­stund í kjara­samninga­málum - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.  Tveir ferðamenn sem fluttir voru þungt haldnir til Reykjavíkur á laugardag eftir ...
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði
📅 05.10.2026 👁️ 0
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði
Nágrannar Úkraínu í ESB hafna nýrri beiðni frá Kænugarði Fréttin5. október 2026InnlendarLeave a Comment Loftmynd af þurrvöruskipinu Razoni, sem flutti...
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Val­höll“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
„Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Val­höll“ - Vísir
„Ég staðfesti þetta. Davíðstíminn – sjálfstæð saga lands og leiðtoga. Þetta er 490 síðna bók, „ballanseruð“ frásögn af þessum valdatíma þar sem rauði ...
Flydubai co-pilot planned to crash plane into airport, reports suggest
📅 05.10.2026 👁️ 0
Flydubai co-pilot planned to crash plane into airport, reports suggest
The Omani national was a "lone wolf" extremist, according to the reports.
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu
Byrlun, blaðamennska og ásakanir um spillta lögreglu Fréttin5. október 2026Fjölmiðlar, InnlentLeave a Comment Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Jakob Bjar...
Ekki fleiri kynferðisbrot í fimm ár
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ekki fleiri kynferðisbrot í fimm ár
Lögreglu bárust rúmlega fjórðungi fleiri tilkynningar um kynferðisbrot fyrstu sex mánuði ársins en á fyrri hluta árs í fyrra. Ef litið er til meðaltal...
Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Guð­mundur Péturs­son hlaut Gullnöglina - Vísir
Afhending verðlaunanna fór fram í salnum Ægi 220 í Hafnarfirði við hátíðlega athöfn á laugardag en Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður, gítarleikari ...
Jewish Greens chair says she could leave party over 'Zionism is racism' motion
📅 05.10.2026 👁️ 0
Jewish Greens chair says she could leave party over 'Zionism is racism' motion
The motion, which has divided senior party figures, backs a "single democratic Palestinian state in all of historic Palestine".
Ungmennum líður betur í skólanum og þau neyta síður áfengis
📅 05.10.2026 👁️ 0
Ungmennum líður betur í skólanum og þau neyta síður áfengis
Farsældarvísar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar gefa til kynna að fleiri grunnskólanemum líði vel í lífi og skóla en áður. Farsældarvísarnir eru hluti...
Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 0
Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju - Vísir
Í ákæru þess efnis, sem tekin verður til aðalmeðferðar á föstudaginn, segir að maðurinn sé ákærður fyrir líkamsárás og hótun með því að hafa veist að ...
Stofnun sem heiðrar leiðtoga Hizbollah setur Þorgerði Katrínu á áróðursskilti skilti í Íran rétt fyrir komu Marco Rubio
📅 05.10.2026 👁️ 1
Stofnun sem heiðrar leiðtoga Hizbollah setur Þorgerði Katrínu á áróðursskilti skilti í Íran rétt fyrir komu Marco Rubio
Mynd og ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa verið sett á risaskilti í Teheran í Íran sem hluti af opinberri áróðursherferð ...
Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi
📅 05.10.2026 👁️ 1
Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi
Hlutabréf í Alvotech hafa hækkað um tæp sjö prósent í verði í dag. Fyrirtækið tilkynnti í morgun að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefði veit...
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði
📅 05.10.2026 👁️ 1
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði
Þremenningar hljóta Nóbelsverðlaun fyrir ljóserfðafræði Banda­ríski vís­inda­mað­ur­inn Karl Deiss­eroth og þýsku vís­inda­menn­irn­ir Peter Hegemann ...
Vikan á Instagram: „Önnur okkar bítur“
📅 05.10.2026 👁️ 1
Vikan á Instagram: „Önnur okkar bítur“
Vikan á Instagram er fastur liður á DV.is á mánudagsmorgnum þar sem við skoðum hvaða myndir slógu í gegn á Instagram síðustu daga. Þetta er fólkið sem...
Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Einelti eykst meðal yngstu nemenda – Reykingar tvöfaldast hjá þeim elstu
Einelti meðal yngri grunnskólanemenda hefur aukist ár frá ári undanfarin ár. Nú segjast 22 prósent nemenda í 4. og 5. bekk hafa orðið fyrir einelti, s...
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er al­gjör­lega á hvolfi“ - Vísir
Dorrit var gestur Mörtu Maríu Winkel í hlaðvarpinu Marta María býður heim þar sem þær fóru um víðan völl og ræddu um æsku Dorritar, samband hennar og ...
Bandarískir og þýskir vísindamenn hljóta Nóbelsverðlaun í læknisfræði
📅 05.10.2026 👁️ 1
Bandarískir og þýskir vísindamenn hljóta Nóbelsverðlaun í læknisfræði
Bandaríski geð- og taugasjúkdómalæknirinn Karl Deisseroth og þýskir samstarfsmenn hans, Peter Hegemann og Georg Nagel, hlutu í dag Nóbelsverðlaun í læ...
Vill breyta um­deildum gatna­mótum - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Vill breyta um­deildum gatna­mótum - Vísir
Í fyrrasumar voru gerðar umfangsmiklar breytingar við fimm gatnamót Höfðabakka til að bæta umferðaröryggi og aðgengi vegfarenda. Meðal annars voru svo...
Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld
📅 05.10.2026 👁️ 1
Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld
Stjórn VR ætlar í kvöld að óska eftir heimild til að segja upp kjarasamningum ef ekkert breytist í samskiptum þeirra og Samtaka atvinnulífsins á næstu...
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár sagt upp störfum
📅 05.10.2026 👁️ 1
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár sagt upp störfum
Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár hefur verið sagt upp störfum. Hluti starfsfólksins fær starf hjá öðrum hótelum á vegum Íslandshótela.Davíð Torfi ...
Barns­faðir Gypsy Rose fannst látinn - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Barns­faðir Gypsy Rose fannst látinn - Vísir
Ken Urker átti 34 ára afmæli þann 1. október þegar hann fannst látinn á heimili sínu í Louisiana-fylki. Orsök andlátsins liggur ekki fyrir en Gypsy Ro...
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
„Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ - Vísir
Bókun 35 verður lögð fyrir Alþingi í vikunni í kjölfar þess að máli íslenska ríkisins var vísað til EFTA-dómstólsins. Rætt var við Sigríði og Pawel í ...
Nobel Prize 2026 awarded for showing how nerve cells shape feelings
📅 05.10.2026 👁️ 1
Nobel Prize 2026 awarded for showing how nerve cells shape feelings
US psychiatrist and neurologist Karl Deisseroth and his German colleagues Peter Hegemann and Georg Nagel have been awarded for their work.
Nobel Prize 2026 awarded for showing inner workings of the brain
📅 05.10.2026 👁️ 0
Nobel Prize 2026 awarded for showing inner workings of the brain
US psychiatrist and neurologist Karl Deisseroth and his German colleagues Peter Hegemann and Georg Nagel have been awarded for their work.
Sjaldséð mótmæli í Moskvu
📅 05.10.2026 👁️ 0
Sjaldséð mótmæli í Moskvu
Um 60 mótmælendur voru handteknir í Moskvu í gær þegar um 2.000 manns komu saman á vegum Kommúnistaflokks landsins. Í fyrstu var efnt til samkomu til ...
Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 1
Mæðgurnar á bak við Kalkliti mæta í Skútu­vog - Vísir
Þær hvetja fólk sem er með verkefni í huga, stórt eða smátt, til að nýta tækifærið og koma við. Þar gefst gestum kostur á að ræða hugmyndir sínar við ...
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
📅 05.10.2026 👁️ 2
Ólafur bendir á sláandi mun á Íslandi og öðrum löndum – „Hver eru rökin?“
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, gagnrýnir háa skattlagningu á áfengi hér á landi og spyr hvaða rök séu fyrir því að skattar...
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
📅 05.10.2026 👁️ 2
Lögregla tjáir sig ekki um handtöku athafnamannsins – „Sjáum til þegar líður á daginn“
„Við höfum bara ekki gefið eitt né neitt út um þetta mál heilt yfir,“ segir Elín Agnes Eide Kristínardóttir, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuð...
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fá Nóbels­verð­laun fyrir upp­götvun á ljósstýrðri erfða­tækni - Vísir
Vísindamennirnir þrír fá verðlaunin fyrir uppgötvun sína á ljósstýrðri erfðatækni (e. optogenetics). Í tilkynningu nefndarinnar er því lýst sem aðferð...
Hálkublettir að hausti
📅 05.10.2026 👁️ 1
Hálkublettir að hausti
Hálkan hefur snúið aftur og er ráðlegt fyrir bílstjóra að huga að henni á nokkrum vegum.Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrek...
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
📅 05.10.2026 👁️ 1
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll
Selja afskekkt einbýli með sundlaug og reiðhöll Laugaból Jörðin Laugaból í Mosdal við Arnarfjörð í Ísafjarðarbæ hefur verið sett á sölu. Ásett verð er...
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 2
Fluttu allar sprengju­flug­vélar frá RAF Fair­ford - Vísir
Embættismenn bandaríska varnarmálaráðuneytisins staðfestu í gær að vélarnar, sem taldar eru vera tólf B-1 sprengjuflugvélar, hefðu verið fluttar aftur...
Why has Spain's PM called a snap election?
📅 05.10.2026 👁️ 2
Why has Spain's PM called a snap election?
A series of measures to tackle the housing crisis were defeated in parliament on Friday
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Bein út­sending: Hver hlýtur Nóbels­verð­launin í læknis­fræði? - Vísir
Ár hvert veitir Nóbelnefndin hin virtu Nóbelsverðlaun í flokkunum lífefna- og læknisfræði, eðlisfræði, efnafræði, bókmenntum og að lokum friðarverðlau...
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
📅 05.10.2026 👁️ 3
Samfylkingin sakar Sjálfstæðisflokkinn um trúnaðarbrest
„Það varð ákveðinn trúnaðarbrestur sem varð til þess að við gátum ekki haldið áfram. Þetta er leiðinleg staða,“ segir Svavar Grétarsson, oddviti Samfy...
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
📅 05.10.2026 👁️ 3
Average five-year mortgage rate hits 6% for first time in three years
The cost of a new fixed-rate mortgage has been rising in recent weeks as lenders face higher costs.
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
📅 05.10.2026 👁️ 2
Vinsælt að fá sjálfu með íslenska hestinum
„Það sem við erum að gera er í sjálfu sér ekkert merkilegt en ferðamenn hafa eimitt áhuga á því sem okkur finnst hversdagslegt,“ segir Hrafnhildur Guð...
Spain's Prime Minister Pedro Sánchez calls early election
📅 05.10.2026 👁️ 0
Spain's Prime Minister Pedro Sánchez calls early election
Sánchez says Spain will head to the polls on 29 November after recent defeats on measures aimed at addressing the country's housing crisis.
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Höfðar mál gegn lög­reglunni vegna húsleitarinnar - Vísir
Andrew var handtekinn snemma morguns þann 19. febrúar 2026 á heimili sínu í Sandringham-höll. Sex lögreglubílar og átta lögreglufulltrúar mættu á heim...
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
📅 05.10.2026 👁️ 3
Rigndi 37 daga í röð í Tókýó
Mestu rigningartíð sem heimildir eru til um í Tókýó, höfuðborg Japans, er lokið. Hún stóð í 37 daga, lengur en nokkru sinni fyrr, og úrkoman var þrefö...
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
📅 05.10.2026 👁️ 3
Geta tvöfaldað framleiðslu á AVT02
Alvotech hefur fengið samþykktan viðauka við markaðsleyfi á Bandaríkjamarkaði fyrir AVT02, sem er hliðstæða við Humira-líftæknilyfið. Í tilkynningu fr...
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
📅 05.10.2026 👁️ 3
Var búinn að nota Ozempic í ár þegar hann tók eftir bletti í auganu – Varð blindur viku seinna
Bandaríski faðirinn Edward Gillen, 59 ára, segist hafa misst sjónina varanlega eftir að hafa notað Ozempic. Hann hefur höfðað mál gegn framleiðanda ly...
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
📅 05.10.2026 👁️ 3
Slitu sam­starfinu vegna trúnaðar­brests „sem ekki var hægt að líta fram­hjá“ - Vísir
Meirihlutinn sprakk í gær en engar nánari skýringar hafa fengist á því hvers vegna samstarfi flokkanna lauk.  Bæjarfulltrúum barst póstur frá forseta ...
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
📅 05.10.2026 👁️ 3
Krakkarnir taka ekkert mark á pabba sínum
Leikarinn og leikstjórinn Ben Affleck segir að krakkarnir hans hafi engan áhuga á sambandsráðum hans.Hann sagði í spjallþætti Jimmy Kimmel að hann hef...
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
📅 05.10.2026 👁️ 2
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm
Dómstóll í Lundúnum tekur á fimmtudag fyrir mál Andrew Mountbatten-Windsor gegn bresku lögreglunni vegna húsleitar sem var gerð á heimili hans í febrú...
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
📅 05.10.2026 👁️ 3
Íslenskur athafnamaður handtekinn í Leifsstöð í gærkvöldi
Íslenskur karlmaður sem grunaður er um tengsl við stórt peningaþvættis- og fíkniefnamál var handtekinn á Keflavíkurflugvelli í gærkvöldi. RÚV greinir ...
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
📅 05.10.2026 👁️ 3
Borga fyrir taka leka sílikonpúða úr brjóstum en ekki fyrir að lækna fylgikvillana
Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur staðfest synjun Sjúkratrygginga Íslands á umsókn konu um greiðsluþátttöku í lækniskostnaði erlendis, vegna fylgikvi...