Grípum til vopna

Þröstur Jónsson skrifar.
Kristnir í þessu landi sem víðar þurfa að taka sig á og ganga fram fyrir Krist af meir djörfung en nú tíðkast. Kúldursháttur og feimni við að viðurkenna Jesú Krist meðal trúleysingja er allt of útbreitt.
Enn verri er svo nefnd „helgislepja“ sem fólgin er í umburðarlyndi fyrir öllu, jafnvel ilsku og afvegaleiðingu. Í því efni er rétt að benda á Orðskv. 8.13:
„Að óttast [þóknast] Guð er að hata hið illa“.
Á djarfa framgöngu okkar í Kristi, fyrir Krist leggur ritningin víða mikla áherslu.
Byrjum á upphafi versanna í II Kór. 6.4-7 þar sem Páll talar til safnaðarins í Kórintu hinni fornu.
„Í öllu læt ég sjást að ég er þjónn Guðs…“
Ekki bara sumu heldur öllu. Síðan telur hann upp það sem þar skiptir máli: Með miklu þolgæði, grandvarleik, þekkingu [á heilagri ritningu], þolinmæði, mildi og falslausum kærleika. Einnig fer Páll yfir það sem þarf til að ná framangreindu fram: Heilagan Anda sem í okkur á að búa, Kraft Guðs (sem býr í okkur gegnum trú og Heilagan Anda) og ríka réttlætisþrá til sóknar og varnar í hvaða aðstæðum sem er.
Margir veigra sé við slíkri framgöngu allstaðar eins og Páll hvetur okkur til. Við megum fastlega búast við háði og spotti, jafnvel árásum frá mönnum og ekki síður frá „andaverum vonskunnar í himingeimnum“.
Þegar slíkt gerist getum við eingöngu glaðst, því það á að segja okkur að við erum að ganga rétt fram, vegna þess að:
- „Sælir verið þér þá er menn atyrða yður og ofsækja og tala ljúgandi allt illt um yður mín [Krists] vegna“ [Matt. 5.11]
Munum vel í slíkum atgangi:
„Mildilegt svar stöðvar bræði en fúkyrði vekja reiði.“ [Orðskv. 15.1]
Allt þetta kallast síðan á við vers 6.14-18 í Efesus bréfinu um „Alvæpni Guðs“, þar sem Páll fer yfir hver öll sex vopn Guðs eru sem við eigum að bera alltaf „frá toppi til táar“:
- Hjálmur hjálpræðisins – Guð er hjálpin í öllum aðstæðum, bægir frá vondum tilfinningum.
- Brynja réttlætisins – ver hið góða og sanna hjarta.
- Belti sannleikans – standa fast á sannleika Krists.
- Skór fúsleikans – til að þjóna og flytja boðskap Krists.
- Skjöldur trúarinnar – treysta Guði, standast efasemdir, ótta og árásir illskunnar.
- Sverð Heilags Anda – sem er heilög ritning ómenguð.
Að ná þannig þessum markmiðum kristins manns er vinna, æfing og ekki síst sjálfsskoðun:
„Rannsakið hvort trú ykkar kemur fram í breytni ykkar, prófið ykkur sjálf.“ [II Kór.13.5]
Ef til þessa vantar hjálp og styrk þá má leita til bænar Davíðs konungs í Davíðssálmi 139:
„Prófa mig, Guð, og þekktu hjarta mitt,
rannsaka mig og þekktu hugsanir mínar
og sjá þú hvort ég geng á glötunarvegi
og leið mig hinn eilífa veg“
Kristur sjálfur margsinnis áréttar að okkur ber að fylgja í fótspor hans og kannast við hann. Eitt af því sterkasta sem hann sagði í þeim efnum má finna í Matt. 10.32-32:
„Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum.
En þeim sem afneitar mér fyrir mönnum mun og ég afneita fyrir föður mínum á himnum.“
Þetta er alvarleg aðvörun Krists sjálfs, sem við ættum að huga vel að.
Mörgum finnst þess hvatning ef til vill harkaleg og verið að gera of háar kröfur, en minnumst þá orða Guðs við Gideon þegar hann átti við ofurefli að etja:
„Farðu í styrkleika þínum og…“
Að lokum hugum að þessi versi úr II Tím. 1.7:
„Ekki gaf Guð oss anda hugleysis, heldur anda máttar og kærleika og stillingar“
Sá andi er Heilagur Andi sem í okkur býr og við höfum tekið við fyrir trúna á Jesúm Krist.
Góðar stundir
Höfundur er áhugamaður um kristna umbót í stjórnmálum.