Donald Trump Bandaríkjaforseti heitir meira en 20 milljónum roskinna landsmanna nærri hundrað dala eingreiðslu til að greiða fyrir iðgjöld í sjúkratryggingakerfinu Medicare B. Það er jafnvirði rúmra tólf þúsund íslenskra króna.
Trump greindi frá þessu á samfélagsmiðlinum Truth Social. B-hluta kerfisins er ætlað að greiða fyrir lækniskostnað og komur á göngudeildir sjúkrahúsa.
Trump segir í færslunni að fjármunir komi úr Medicare-umbótasjóðnum sem Demókratar hafi „einungis nýtt til fjármögnunar svika, sóunar og misnotkunar í þágu sérhagsmuna vina sinna“. Þar utan hafi þeir hækkað kostnað við heilbrigðisþjónustu.
„Nú nýtum við þennan sjóð til að lækka kostnað aldraðra verulega,“ segir Trump og bætir við að hann hafi heitið að vernda og varðveita Medicare og almannatryggingakerfið sem hafi verið komið að fótum fram vegna athæfis Joes Biden.
„Af heimsku og illvilja hleypti hann tugum milljóna ólöglegra innflytjenda inn í landið og það er einmitt það sem við erum að gera fyrir aldraða í Bandaríkjunum.“
Trump sagði jafnframt að með því að tryggja öldruðum þessa greiðslu sem hann hefði lofað sæju allir að hann stæði við loforðið um að greiða öllum fimm þúsund dali, ef og þegar Repúblikanar hafa sigur í miðkjörtímabilskosningunum í nóvember.