„Bak við fjöllin“ er þriðja smáskífan af væntanlegri sólóplötu Krumma Björgvinssonar – lagið varð að óði til föður hans, Björgvins Halldórssonar.
Tónlistarmaðurinn Krummi Björgvinsson sendi í vikunni frá sér nýtt lag, „Bak við fjöllin“, þriðju smáskífuna af væntanlegri sólóplötu sinni. Krummi segir lagið það persónulegasta sem hann hefur sent frá sér til þessa.
Lagið fjallar um föður hans, tónlistarmanninn ástsæla Björgvin Halldórsson, fráfall hans og söknuðinn sem fylgir því að þurfa að læra að lifa áfram án hans.
Krummi greinir frá útgáfunni á Facebook og segir lagið upphaflega hafa verið með allt öðrum texta, á ensku. Eftir að faðir hans lést ákvað hann hins vegar að henda þeim texta og byrja upp á nýtt.
„Ég settist niður og orti ljóð til hans á íslensku, aðlagaði það að laginu og tók sönginn upp á nýtt,“ segir Krummi.
Varð að óði til föður hans
Útkoman varð því allt önnur en Krummi hafði upphaflega séð fyrir sér.
„Bak við fjöllin“ varð að óði til föður hans og lýsir Krummi merkingu lagsins með áhrifamiklum orðum:
„Pabbi hvarf eins og kvöldsól. En minningin um hann rís með morgunsólinni, bak við fjöllin, þar sem söngur hans heldur áfram að bergmála.“
Björgvin Halldórsson lést skyndilega fyrr á þessu ári. Í einlægri kveðju til föður síns skömmu eftir andlátið lýsti Krummi honum ekki aðeins sem einum fremsta söngvara þjóðarinnar heldur fyrst og fremst sem föður sínum, besta vini og manninum sem hefði hvatt hann til að finna sína eigin rödd og eigin leið í tónlistinni.
Krummi sagði þá jafnframt sérstaklega sárt að faðir hans fengi ekki að upplifa útgáfu fyrstu sólóplötu hans í fullri lengd. Hann hefði viljað sjá Björgvin halda á vínilplötunni og vita að hann væri stoltur af syni sínum.
Nú verður „Bak við fjöllin“ hluti af þeirri plötu, og um leið persónuleg kveðja sonar til föður síns.
Þriðja lagið af væntanlegri plötu
Nútíminn hefur áður fjallað um útgáfu fyrstu tveggja smáskífanna af væntanlegri plötu Krumma. Fyrsta lagið naut meðal annars góðs gengis á vinsældalista Rásar 2 og sat þar samfleytt í tíu vikur.
„Bak við fjöllin“ er nú komið út á helstu streymisveitum.
Krummi segir að lokum við fylgjendur sína:
„Vona að þið njótið lagsins og megið endilega deila því áfram. Takk 🖤“
Hægt er að hlusta á „Bak við fjöllin“ hér.