Úkraínumenn byrjuðu sjálfir að þróa vopn til að verjast innrásarher Rússa eftir allsherjarinnrásina 2022 og þróunin í hergagnaframleiðslu þeirra hefur síðan verið hröð. Þá er stríðsreksturinn frábrugðinn því sem þekktist á síðustu öld. Fjallað er um málið í fréttaskýringaþættinum Heimskviðum á Rás 1 eftir hádegisfréttir.
„Það má segja að við séum að upplifa ákveðna byltingu í hernaðartækni,“ segir Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur. „Og stríðið í Úkraínu er mjög einkennilegt, það er annars vegar hálfgerður skotgrafahernaður eins og menn myndu kannast við úr fyrri heimsstyrjöld þar sem stórskotalið er enn mjög mikilvægt. Hins vegar er þetta mikla drónabelti beggja vegna víglínunnar þar sem árásir eru tíðar. Þannig að þetta er nokkurs konar vísindaskáldskapur en líka gamaldags stríð sem rennur þarna saman.“
Erlingur segir Úkraínu hafa verið þokkalega vopnum búna þegar Rússar hófu allsherjarinnrásina. Aðallega hafi þetta þó verið gömul sovésk vopn. Einnig höfðu Úkraínumenn fengið vopn frá bandamönnum innan Atlantshafsbandalagsins í aðdraganda innrásarinnar. Síðan hafi Úkraína fengið vopnasendingar frá NATO-ríkjum en að það hafi þó ekki verið nægjanlegt til að bregðast við áskorunum á vígvellinum og til að verja almenna borgara.
Þannig að það hefur orðið það sem mætti kalla sprengingu í innlendum hergagnaiðnaði og hugviti í Úkraínu til að leysa það vandamál og nú er mjög blómlegur, ef nota má það orð, hergagnaiðnaður í Úkraínu.
Ódýr dróni geti skemmt skriðdreka
Drónar, íhlutir og önnur vopn eru framleidd víðs vegar um Úkraínu og eðli málsins samkvæmt á leynilegum stöðum. Ekki hafa allir tekið þessu framtaki Úkraínumanna fagnandi og það vakti athygli í sumar þegar framkvæmdastjóri þýska vopnaframleiðandans Rheinmetall gerði lítið úr nýsköpun Úkraínumanna og sagði í viðtali að þetta væri nú ekki merkilegt, frekar eins og að leika sér með Lego-kubba. Þetta væri engin nýsköpun. Vopnin sem Úkraínumenn væru að framleiða væru miklu síðri en þau sem stærstu vopnaframleiðendur í Evrópu gera. Þetta væru amatörar, húsmæður með þrívíddarprentara í eldhúsinu að framleiða íhluti í dróna.
Það stóð ekki á svörum frá Úkraínu og einn ráðgjafa Zelenskýs forseta sagði almenna borgara hafa unnið þrekvirki við að framleiða vopn til að beita gegn innrásarhernum. Konur til jafns við karla hefðu staðið í ströngu og ættu fyrir það skilda virðingu. Þá sagði Iarolav Kalinin, framkvæmdastjóri úkraínska vopnasölufyrirtækisins Infozahyst, að nýsköpun í hernaði ætti að dæma eftir því hversu vel hún reyndist á vígvellinum, ekki eftir því hversu tæknilega flókin hún væri. Dróni sem kostaði 500 dollara gæti skemmt skriðdreka sem kostaði milljónir og það hlyti að kallast nýsköpun, skrifaði hann í færslu á Facebook.
Þá skrifaði úkraínskur fjárfestir í færslu á samfélagsmiðlum að þessi ummæli framkvæmdastjóra Rheinmetall sýndu að hann misskildi hugtakið nýsköpun, þar sem hann hefði áratugum saman starfað í vopnaiðnaði sem liti á tíu ára gamla framleiðslu sem nýsköpun. Staðreyndin væri hins vegar sú að þungvopn eins og skriðdrekar ættu líklega ekki eftir að sjást í stríðum framtíðarinnar; þetta væri farið að raungerast í Úkraínu.
Þessi rimma endaði þannig að Rheinmetall skrifaði í færslu á samfélagsmiðlum að fyrirtækið bæri mikla virðingu fyrir Úkraínumönnum og tilraunum þeirra til að verja land sitt. Þá hrósaði fyrirtækið Úkraínu fyrir nýsköpunarkraftinn og baráttuandann og bauð fram aðstoð sína.
800 -1.000 fyrirtæki sem framleiða vopn
Erlingur segir að Rússar hafi hætt notkun skriðdreka að mestu leyti enda hafi Úkraínumenn grandað þeim hvar sem þeim hafi verið beitt. „En fregnir frá víglínunni, frá vestrænum blaðamönnum, eru að Úkraínumenn séu enn að nota bryndreka og skriðdreka í takmörkuðum mæli og þá þegar þeir hafa tryggt sér einhvers konar yfirburði gagnvart drónaárásum.“
Stuttu eftir að Rússlandsher hóf allsherjarinnrásina sendu stjórnvöld út ákall til fyrirtækja í landinu um að það skorti alls kyns búnað og varnartækni, segir Erlingur og að drónarnir sem var beitt í upphafi hefðu sumir verið af einföldustu gerð, jafnvel eins og þeir sem almenningur getur keypt úti í búð. Stjórnvöld í Úkraínu hafi sagt að hluti framleiðslunnar sé þannig að fólk þrívíddarprenti vopn heima hjá sér í eldhúsinu.
Talið er að í Úkraínu séu á milli 800 og 1.000 vopnaframleiðslufyrirtæki, allt frá litlum sprotafyrirtækjum til mun stærri fyrirtækja. „Þar fer þróunin fram og þessir aðilar, í gegnum stjórnvöld, fá síðan upplýsingar um hvernig tæknin nýtist við víglínuna og það er talað um þróunarhringrás. Það er um tveggja vikna tími sem líður frá því að ný tækni er sett fram á vígvöllinn þar til það þarf að uppfæra hana til að mæta nýjum áskorunum.“
Úkraínumenn framleiða ýmiss konar vopn og þróunin hefur verið hröð.
Það má segja að því miður er stríð gríðarlega góður kennari og gjarnan í umfangsmiklum átkum verða miklar tækniframfarir þar sem prófun og þróun vopna er daglegt brauð.
Það sem helst einkenni hergagnaiðnaðinn í Úkraínu, þó að hann spanni allt sviðið, sé framþróun á sviði notkunar á drónum, segir Erlingur. Drónar eru nýttir til eftirlits, árása og loftvarna, það er til að skjóta niður þá dróna Rússa sem beint er að úkraínskum borgurum.
Líka hafa verið framleiddir árásardrónar sem hægt er að beita á sjó, neðansjávardrónar og róbótar. Þeir eru fjarstýrðir og notaðir til að flytja vistir og skotfæri til hermanna á víglínunni, til að flytja hermenn til og líka til að flytja særða hermenn burt frá víglínunni. „Þannig að þetta er mjög umfangsmikil framleiðsla á tækjum. Síðan hafa Úkraínumenn framleitt langdræg vopn sem að Vesturlönd hafa neitað þeim um, til árása djúpt inni í Rússlandi eins og við höfum séð á undanförnum mánuðum.“
Þessar árásir Úkraínumanna á Rússland í mörg hundruð kílómetra fjarlægð frá víglínunni eru taldar marka nokkur þáttaskil í stríðinu. Eftir að þeim fjölgaði fóru sífellt fleiri Rússar að finna fyrir því að landið þeirra væri í stríði. Árásir áttu sér ekki aðeins stað í útlöndum.
Með langdrægum flaugum sem Úkraínumenn hafa framleitt hafa þeir sprengt mikilvæga orkuinnviði í Rússlandi, eins og gasverksmiðjur og olíuhreinsistöðvar. Þurft hefur að loka flugvöllum í Rússlandi meðan árásirnar hafa verið sem mestar. Ráðamenn í Úkraínu segjast gera þessar árásir til að trufla orkuframleiðslu Rússa. Með til dæmis sölu á olíu takist þeim að fá gjaldeyri og knýja stríðsvélina áfram.
Í vopnaframleiðslu Úkraínumanna er gervigreind notuð á umfangsmikinn hátt. Þeir hafa þróað hugbúnað til að fá yfirsýn yfir átökin og þar er skráð hver einasta árás og allt það tjón sem Úkraínumenn og Rússar valda hvor öðrum. „Þar er gervigreindin notuð til að finna veilur í vörnum óvinarins eða sjá fyrir árásir. Síðan er hún notuð líka til að stýra drónum eða sverma drónum til árása og við höfum núna fyrstu dæmin um það að drónar hafi verið sendir út á ákveðið afmarkað svæði þar sem þeir máttu granda skotmörkum og þá höfðu Úkraínumenn fullvissað sig um að þar væru ekki borgaraleg skotmörk heldur bara rússneskt herlið og þar tekur dróni í fyrsta skipti, sem vitað er um, ákvörðun um að fella andstæðinginn.“
Úkraínumenn vilja deila þekkingu sinni með öðrum
Utanríkisráðherra Úkraínu, Andrii Sybiha, var hér á landi á dögunum og fundaði meðal annars með utanríkisráðherra Íslands, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Í viðtali í Kastljósi sagði Sybiha að Úkraína væri orðin að alþjóðlegu drónaveldi. Úkraínumenn hefðu öðlast mikla reynslu af átökum og að ríkið gæti lagt sitt af mörkum til að tryggja öryggi annarra landa og væri tilbúið að deila þekkingu sinni með vinaþjóðum. Það er Úkraína einmitt farin að gera.
Eftir að Bandaríkin og Ísrael gerðu árásir á Íran fyrr á árinu svöruðu Íranar með árásum á bandarískar herstöðvar í Persaflóaríkjunum, meðal annars með írönskum drónum. Slíka dróna hefur Rússlandsher einnig notað gegn Úkraínu. Í vor bárust fregnir af því að Volodymyr Zelenský, forseti Úkraínu, hefði farið í heimsókn til nokkurra ríkja til viðræðna við stjórnvöld.
Erlingur segir Úkraínumenn búa yfir þeirri tækni til að skjóta niður að minnsta kosti þessa hægfara dróna sem verið sé að beita í miklu magni. Úkraínumenn hafi sagst hafa gert tíu ára samninga við Sádí-Arabíu, Sameinuðu arabísku furstadæmin og Katar. „Þar sem þeir veita þeim drónatækni til loftvarna en líka þess að beita drónum á sjó. Eins er tækni sem flokkast sem rafrænn hernaður, það er þá að beita einhvers konar merkjasendingum til að trufla stjórnskilaboð drónanna og granda þeim þannig án þess að þurfa að skjóta þá niður. Þannig að Úkraína er búin að fara úr því að vera þiggjandi hernaðaraðstoðar, sem þeir eru vissulega ennþá, í að vera veitandi mjög mikilvægrar aðstoðar og við vitum að þeir hafa aðstoðað Bandaríkin líka með slíka tækni.“
Úkraína talin með öflugasta varnarher Evrópu
Eins og staðan er núna er líklegt að enn fleiri ríki eigi eftir að falast eftir einhvers konar varnarsamstarfi við Úkraínumenn í framtíðinni. „Á þetta hafa sumir ráðamenn í Evrópu og yfirmenn herja Evrópu bent, að Úkraína er núna öflugasti varnarher Evrópu þó að þeir séu ekki komnir í Atlantshafsbandalagið þannig að ef það næst farsæl niðurstaða í þessu stríði, sem við vonum öll, þá er ljóst að í framtíðinni verður Úkraína mjög mikið bolmagn sem bremsar Rússa kannski frá einhvers konar frekari hernaðaraðgerðum til vesturs og eins verða þeir mikilvægur útflytjandi á varnartækni, fyrst og fremst með drónum og gervigreind, sem þeir hafa þróað í gegnum þessi erfiðu átök.“
Sibyha utanríkisráðherra sagði að á fundinum með utanríkisráðherra Íslands hefði hann sagt Úkraínumenn tilbúna að leggja öryggismálum á Íslandi lið. Eins kom fram í úkraínskum fjölmiðlum að rætt hefði verið um samstarf í drónavörnum og drónatækni.
Hvað sér Erlingur fyrir sér að myndi felast í slíku samstarfi? „Þá eru íslensk stjórnvöld væntanlega að velta því fyrir sér að við hér á Íslandi sem og öll Evrópuríkin erum ansi berskjölduð gagnvart svona drónaárásum, hvort sem það eru örfáir drónar til að valda einhvers konar tjóni á innviðum eða umfangsmeiri átök sem menn óttast að geti brotist út við Rússland. Þá er það mjög ábyrgt að velta fyrir sér með hvaða hætti við getum verið að efla okkar varnargetu í þeim skilningi.“