Tæplega 200 manns hafa verið sett í einangrun að fyrirskipun heilbrigðisyfirvalda í Irkutsk-héraði í Síberíu í Rússlandi. Sú ákvörðun var tekin eftir að tæplega þrítugur kvenkyns starfsmaður á rannsóknarstofu sóttvarnarstofnunar héraðsins lést af völdum lungnapestar eða plágu.
Samkvæmt frétt Moscow Times tjáði konan heilbrigðisstarfsfólki að hún hefði við sýnatöku fyrir slysni brotið tilraunaglas með lifandi bakteríum. Konan var lögð inn á sjúkrahús á þriðjudag með einkenni alvarlegrar lungnabólgu, var sett í öndunarvél og andaðist á fimmtudag.
Sérstök heilbrigðisnefnd fyrirskipaði þá að sjúkrahúsið yrði sett í sóttkví og öll þau sem hún átti í samskiptum við fóru í einangrun. Ekkert þeirra er með sjúkdómseinkenni. Moscow Times hefur þetta eftir fréttamiðlum í Síberíu og embættismönnum.
Sýkingin sé líklegast lungnapest sem borist getur milli manna með dropasmiti. Yfirvöld í Irkutsk frestuðu öllum opinberum viðburðum og lögregla hóf rannsókn á hvort brotið hefði verið gegn heilbrigðisreglum í aðdraganda andláts konunnar. Almenningur var hvattur til að halda ró sinni.
Alexei Tsydenov, leiðtogi Búrjatíu í suðurhluta Síberíu, staðfestir að konan hefði látist úr ótilgreindri tegund plágu en segir hana aldrei hafa komið þangað. Tsydenov segir engan faraldur geisa í Búrjatíu að meðtöldum svæðum við landamærin að Mongólíu. Embættismenn í Irkutsk höfðu áður lýst veikindum hennar sem sérstaklega hættulegri sýkingu.