Yfir fjögur þúsund manns hafa dáið í ebólufaraldrinum sem geisað hefur í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó síðan í maí og rúmlega 8.300 smit hafa verið staðfest í sjö héruðum landsins. Þetta er 17. og langskæðasti ebólufaraldurinn sem gengið hefur yfir Kongó. Nær tvöfalt fleiri hafa hvorutveggja látist og smitast af ebólu en í þeim næst-skæðasta, sem lagði um 2.300 manns í gröfina á árunum 2018 - 20220.
Í Speglinum var fjallað um faraldurinn, sem að óbreyttu gæti hæglega orðið sá skæðasti frá því að veiran greindist fyrst 1976. Hlusta má á þá umfjöllun í spilaranum hér að neðan eða halda lestrinum áfram þar fyrir neðan.
Aldrei breiðst jafn hratt og víða út
Útbreiðsla veirunnar er meiri og hraðari en nokkur dæmi eru um frá því að hún greindist fyrist fyrir réttri hálfri öld og yfirvöldum gengur afar illa að hamla henni svo nokkru nemi.
Fyrir því eru margar ástæður. Héruðin sem sóttin herjar hvað mest á, Norður-Kivu og Ituri, eru í norðausturhorni landsins, fjarri höfuðborginni Kinshasa, og þótt það hljómi ankannalega að milljónahéruð og jafnvel borgir séu afskekktar þá á það engu að síður við í þessu samhengi.
Innviðir eru þar allir í skötulíki, vegasamgöngur lélegar og heilbrigðiskerfið í molum. Viðvarandi skærur og átök við vopnaðar uppreisnarsveitir nærri landamærum Suður-Súdans, Úganda og Rúanda, torvelda svo og tefja enn frekar öll viðbrögð og aðgerðir heilbrigðisyfirvalda og alþjóðlegra hjálparsamtaka og -stofnana.
Þúsundir smitaðra á flótta eftir að herinn brenndi neyðarbúðir
Nýjasta dæmið um það er eyðilegging stórra neyðarbúða í útjaðri Bunia, höfuðborgar Iturihéraðs, sem heita má upphafspunktur þessa faraldurs. Búðir, sem hýstu meðal annars stóra sóttkví fyrir ebólusmitað fólk sem beið frekari meðferðar. Hermenn réðust inn í þær fyrr í þessari viku, að sögn til að leita vopna, og brenndu þær einfaldlega til grunna til að létta sér leitina. Ekki fer sögum af árangri hennar, en íkveikjan hrakti nítján þúsund manns á flótta, þar á meðal þúsundir ebólu-sjúklinga.
Tortryggni og reiði en hvorki lyf né bóluefni
Landlæg tortryggni og reiði almennings í garð stjórnvalda og heilbrigðisstétta eru heldur ekki til þess fallin að auðvelda baráttuna gegn hraðri útbreiðslu farsóttarinnar, og eru reyndar einn helsti þröskuldurinn í þeirri baráttu. Og eins og þetta sé ekki nóg, þá fyrirfinnst hvorki bóluefni né árangursríkar lyfjameðferðir gegn því afbrigði veirunnar sem nú herjar á Kongóbúa og kennt er við bæinn Bundibugyo í Úganda. Unnið er að þróun hvorutveggja, lyfja og bóluefnis, og tilraunabólusetning heilbrigðisstarfsfólks er hafin - en of snemmt er að segja til um virknina.
Um helmingur smitaðra deyr
Ebóla er ein banvænasta veiran sem þekkist. Þetta er svokölluð þráðveira, sem veldur blæðandi sótthita í fólki, sem stundum er kallað ebólu-blæðingarsótt. Dánarhlutfallið í yfirstandandi faraldri er nær fimmtíu af hundraði og enn hærra í Norður-Kívú héraði, þar sem staðfestum smitum fjölgar hratt um þessar mundir. Höfuðborg þess er Butembo, tveggja milljóna „afskekkt“ borg, og þar er Stephanie Hoffmann svæðisstjóri hjálparsamtakanna Læknar án landamæra.
Í viðtali við fréttamann AFP/France 24 segir hún að miðpunktur faraldursins hafi færst frá upphafspunktinum Bunia í Ituri-héraði til Butembo, sem sé afar þéttbýl og bjóði þar af leiðandi upp kjöraðstæður fyrir veiruna að dreifa sér hratt og víða, sem hún geri svikalaust, jafnt í borginni sjálfri sem aðliggjandi byggðum. Aðspurð, hvort tortryggni fólks sé enn helsti dragbíturinn á aðgerðir heilbrigðisyfirvalda og hjálparsamtaka til að binda enda á faraldurinn segir hún fólk vissulega tortryggið og afar tregt til að leita sér hjálpar.
Hryllilegur sjúkdómur og fólk skiljanlega óttaslegið
„Það er mikil tregða við að leita sér hjálpar og fólk er afar hrætt við ebólu, enda er hún hryllilegur sjúkdómur,“ segir Hoffmann. „Þannig að fólk er mjög hrætt við að viðurkenna að það sé með þennan sjúkdóm, bæði fyrir sjálfum sér og öðrum, og að þetta sé yfirleitt að gerast í þeirra samfélagi.“
Þetta er þó ekki eini stóri vandinn, segir hún, það vantar líka mikið upp á aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu og enn meira upp á að samfélagið sameinist um að gera það sem gera þarf til að hindra frekari útbreiðslu. Og tortryggnin og óttinn við að leita sér aðstoðar á sér fleiri ástæður.
Snýst um annað og meira en að vilja ekki sækja sér hjálp
„Það er mikil einföldun að segja að fólk vilji bara ekki sækja sér hjálp við ebólu því það er svo margt annað að gerast í Norður-Kívú,“ segir Hoffmann, hvort sem það eru aðrar farsóttir, önnur heilsuvandamál, vopnuð átök. „Þannig að þetta er margflókið og flókið fyrir fólk að sækja sér læknisaðstoð vegna ofbeldisins allt um kring.“
Hún minnir á að heilbrigðiskerfið er allt í molum, og sjúkrahús og heilsugæslur afar illa tækjum búnar auk þess sem lyf og lækningavörur hvers konar séu af skornum skammti. Síðast en ekki síst sé mikill skortur á heilbrigðisstarfsfólki, enda ekki eftirsóknarvert að vinna við þær aðstæður sem þarna eru.
Fólkið í framlínunni í hræðilegri stöðu
Meðal þess sem vantar er hvers kyns búnaður til að verjast smiti. Framlínustarfsfólkið sé því berskjaldað fyrir veirunni en þurfi engu að síður að taka á móti nágrönnum sínum, vinum og ættingjum og velja á milli þess að senda þá aftur heim til að deyja, eina og yfirgefna, eða sinna þeim án smitvarna og hætta á að hljóta sjálf sömu örlög.
Hoffmann segir brýnt að auka fjárhags- og neyðaraðstoð verulega, en jafnvel þótt það gangi eftir er hún ekki bjartsýn á skjótan endi á þessum faraldri. „Í fullkomnum heimi, kannski,“ segir hún, „en það er of snemmt að segja nokkuð um það. Og þetta tal um að yfirvöld séu að ná tökum á farsóttinni, er hreinlega hættulegt.“ Slíkt tal sé einungis til þess fallið að draga enn úr þeirri litlu árvekni og varfærni sem fólk þó sýni gagnvart mögulegu smiti.
Stefnir í skæðasta ebólufaraldur sögunnar
Í ágúst, þegar 2.300 höfðu dáið og faraldurinn þar með formlega orðinn sá mannskæðasti í sögu Kongós, sagði Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, að með sama áframhaldi myndi þessi nýjasti ebólufaraldur verða enn skæðari en sá allra versti hingað til.
Sá er kenndur við Vestur-Afríku og geisaði einkum í þremur ríkjum; Gíneu, Sierra Leone og Líberíu . Þá létust 11.325 manns úr ebólu frá 2014 til 2016 svo staðfest sé, og hátt í 29.000 smituðust.
Miðað við þróunina síðan og lýsingar Stephanie Hoffmann virðist fátt geta komið í veg fyrir að þessi spádómur Ghebreyesus rætist.