Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók fyrstu skóflustunguna vegna átaks ríkisstjórnarinnar við endurheimt votlendis á ríkisjörðum í gær. Hún var tekin á á ríkisjörðinni að Sogni í Ölfusi. Þar verður lokað um fjórum kílómetrum af framræsluskurðum og votlendi endurheimt á um 25 hekturum.
Greint var frá þessu í tilkynningu á vef Stjórnarráðs Íslands. Þar segir að endurheimt votlendis sé meðal forgangsverkefna ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum.
Hún dragi úr losun gróðurhúsalofttegunda frá framræstu landi og geti aukið seiglu vistkerfa gagnvart áhrifum loftslagsbreytinga sem og stutt við líffræðilega fjölbreytni. Endurheimt votlendis er ein þeirra aðgerða sem ætlað er að stuðla að markmiði Íslands um árlegan 400-500 þúsund tonna samdrátt á losun á koltvísýringi frá landi árið 2035, miðað við árið 2025.
Loftslagsaðgerð og náttúruverndarmál
Í haust stendur til að endurheimta votlendi á fimm ríkisjörðum, sem nema alls 225 hekturum, og um 23 kílómetrum af framræsluskurðum verður lokað. Stærðin jafngildir 315 fótboltavöllum.
Í tilkynningu Stjórnarráðs Íslands segir að á þessu ári og því næsta verði endurheimt stærra svæði raskaðs votlendis en gert hefur verið síðustu 30 ár.
„Þegar ég tók við embætti sagðist ég ætla að rjúfa kyrrstöðuna í endurheimt votlendis og í dag hefjast framkvæmdir. Við byrjum á því að axla ábyrgð á landi í eigu ríkisins en jafnframt komum við upp sterkari hvötum fyrir bændur, aðra landeigendur og félagasamtök til þess að láta verkin tala,“ er haft eftir Jóhanni Páli í tilkynningunni.
„Endurheimt votlendis og vistkerfa er hagkvæm loftslagsaðgerð en líka náttúruverndarmál og styður við líffræðilega fjölbreytni. Hún snýst ekki bara um CO2-ígildi heldur líka fuglana okkar og búsvæði þeirra. Þar sem eru skurðir í dag munum við sjá mýri og heyra fuglasöng eftir nokkur ár.“