Lægð gengur yfir landið í dag. Þrátt fyrir að heildarúrkoman sem fylgi henni sé ekki talin veruleg með tilliti til skriðuhættu getur lítil viðbótarúrkoma þar sem jarðvegur er þegar orðinn vatnsmettaður nægt til að koma af stað hreyfingum í hlíðum og auka líkur á skriðuföllum.
Þetta kemur fram í tilkynningu Veðurstofunnar. Virkni hafi sést í Gleiðarhjalla síðustu daga og svæðið geti verið viðkvæmt í kjölfar langvarandi úrkomu.
Skriða féll í Eyrarhlíð í gær sem var tuttugu metra breið á veginum. Vegna áframhaldandi úrkomu í dag eru líkur á frekari virkni í Gleiðarhjalla og Eyrarhlíð, að mati sérfræðinga á Skriðuvakt Veðurstofunnar sem fylgjast með stöðunni. Búast megi við skyndilegum vegalokunum við þessar aðstæður og þá sérstaklega á Hnífsdalsvegi.
Fólk á svæðinu er hvatt til þess að fylgjast með tilkynningum frá lögreglu og Vegagerðinni.