Tveir látnir eftir árekstur á Austurlandi

Mynd: Shutterstock
Tveir erlendir ferðamenn á sjötugsaldri létust í umferðarslysi í gær á þjóðvegi 1 við Háreksstaðakvísl.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Þá voru tveir fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús með sjúkraflugi til Reykjavíkur, erlendir ferðamenn einnig.
Aðrir voru í kjölfar slyssins færðir til aðhlynningar á Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum. Þeir voru útskrifaðir samdægurs. Meiðsli talin minniháttar.
Rannsókn á tildrögum slyssins er í höndum lögreglunnar á Austurlandi og Rannsóknarnefndar samgönguslysa.