Tveir frambjóðendur munu keppast um forsetaembættið í Kólumbíu í seinni umferð forsetakosninga þar í landi 21. júní. Hægrimaðurinn Abelardo de la Espriella hlaut flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninganna í gær, 44%. Vinstrimaðurinn Ivan Cepeda verður mótherji hans í seinni umferðinni en hann hlaut 41% atkvæða í kosningum gærdagsins. Þar sem enginn frambjóðandi náði að tryggja sér meirihluta atkvæða þarf að kjósa aftur í seinni umferð.
Kosningabaráttan hefur verið sú blóðugasta í landinu í rúman áratug. Miguel Uribe, sem var talinn sigurstranglegur frambjóðandi, lést af sárum sínum í ágúst eftir að hafa verið skotinn í höfuðið á kosningafundi. Þá hafa bílasprengjur og drónaárásir sett mark sitt á baráttuna, svo fátt eitt sé nefnt.
De la Espriella hefur haldið ræður á kosningafundum bak við skothelt gler. Meðal helstu kosningaloforða hans eru að skera upp herör gegn vopnuðum glæpahópum í landinu.
Fráfarandi forseti landsins, Gustavo Petro, hefur leitast við að halda frið í landinu með því að semja við eiturlyfjahringi í landinu en hvergi er framleitt meira kókaín en í Kólumbíu. Sú nálgun hefur verið gagnrýnd af mótherjum forsetans og sögð hafa veitt glæpagengjum lausan tauminn. Ofbeldi í landinu hafi aukist og kókaínútflutningur aldrei verið meiri.
Capeda, sem nýtur stuðnings Petro, sækir stuðning sinn einkum til kjósenda sem eru ánægðir með aukinn stuðning ríkisstjórnarinnar við fátæka, til að mynda með hækkun lágmarkslauna og auknum fjárútlátum til menntamála. Faðir Cepeda var öldungadeildarþingmaðurinn Manuel Cepeda en hann var drepinn af skæruliðum á tíunda áratugnum.