Grænlenska landsstjórnin hefur sent frá sér harðorða yfirlýsingu um að um að olíu- og námufyrirtæki sem kallast Greenland Energy hafi í leyfisleysi flutt tækjabúnað til að bora tilraunaholur á austurströnd Grænlands.
Fyrirtækið er handhafi leyfis til að kanna olíulindir á Grænlandi, en engin slík leyfi hafa verið gefin út síðan 2021.
Í yfirlýsingu grænlenska iðnaðarráðuneytisins um síðustu mánaðarmót segir að allir leyfishafar séu sterklega varaðir við því að flutningar á tækjabúnaði þurfi að fá umfjöllun og leyfi stjórnvalda, áður en ráðist sé í slíkar aðgerðir.
Donald Trump Bandaríkjaforseti virðist ekki af baki dottinn með áform um að ná yfirráðum yfir Grænlandi. Í nýlegu viðtali sagði hann að það væri öruggt að veðja á að þetta verði að veruleika meðan hann er forseti.
Trump lét þessi orð falla í löngu og frekar vinsamlegu viðtali við útvarpsmann að nafni Steve Gruber, í Michigan í Bandaríkjunum um síðustu mánaðamót.
Gruber leiðir inn í umræðuna með því að segja að hann hafi spáð því að áður en Trump hættir sem forseti, verði Bandaríkin komin með yfirráð (e. „operational control“) á Grænlandi. Það sé enn mikilvægt fyrir varnir í vesturheimi. Trump tekur undir þetta. Grænland sé mikilvægt frá sjónarhól Bandaríkjanna.
„Þú gætir veðjað á þetta,“ segir Trump í viðtalinu.
Daginn eftir póstaði Bandaríkjaforseti svo mynd af sjálfum sér að gægjast yfir fjallgarð niður á bæinn Tasiilaq á austurströnd Grænlands - með fyrirsögninni Halló Grænland! – mynd sem hann hefur áður deilt á samfélagsmiðilinn.