Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar að ráðast harkalega að efnahag Írans og refsa þeim löndum sem liðsinni Írönum eða eigi við þau viðskipti af nokkru tagi. Trump kallar aðgerðirnar efnahagslegan stríðsrekstur og einangrun.
„Í dag tilkynni ég harkalegustu efnahagsaðgerð sem nokkuð ríki hefur mátt þola,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðilinn Truth Social. Hann tíundaði hvorki hverjar refsingarnar yrðu né nafngreindi önnur lönd en Íran.
Hins vegar sagði forsetinn að olíusmygli yrði að ljúka umsvifalaust og einnig gjaldeyrisskiptasamningum og peningamillifærslum. Einnig yrði að stöðva starfsemi gjaldeyrisskiptastofa og það sem hann kallaði skálkaskjólsfyrirtæki.
Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum tilkynntu á þriðjudag að öllum viðskiptum við Íran yrði hætt eftir eldflaugaárás þaðan. Löndin áttu í miklum viðskiptum áður en stríðið hófst.
Fjármálaráðherrann Scott Bessent boðaði enn aukna hörku gegn efnahag Írana í liðinni viku. Næstum hálft ár er liðið síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar lögðu til atlögu að Íran og enginn samningur um stríðslok er í sjónmáli auk þess sem Íranar halda Hormússundi lokuðu.
Vefritið Axios segir þó að Bandaríkjaher fylgi á annan tug skipa um sundið á hverri nóttu, sem beri um helming þeirrar olíu sem fór þar um fyrir stríðið. Þingkosningarnar í nóvember nálgast óðfluga og Trump liggur undir þungu ámæli heima fyrir vegna þess kostnaðar sem stríðsreksturinn leggur á almenning og ekki síður herinn sjálfan.