Donald Trump Bandaríkjaforseti hyggst leggja leið sína í Madison Square Garden í næsta mánuði þegar New York Knicks mæta annaðhvort Oklahoma City Thunder eða San Antonio Spurs í úrslitaeinvígi bandarísku NBA-deildarinnar í körfubolta. The New York Times greinir frá.
Knicks eiga að leika á heimavelli í leikjum 3, 4 og 6 í einvíginu. Þeir leikir eru áætlaðir 8., 10. og 16. júní.
Donald Trump er sjálfur frá New York og ætlaði sér að mæta á fimmta leik úrslitaeinvígis Knicks og Cleveland Cavaliers í Austurdeildinni en Knicks sigruðu í fjórða leik liðanna og tryggðu sér þar með sæti í úrslitunum.
Frábært að sjá endurkomu liðsins
„Vá, þvílíkt lið,“ sagði Trump í Hvíta húsinu í dag. „Þeir eru með nokkra virkilega frábæra leikmenn.“
Knicks hafa ekki komist í úrslit keppninnar síðan árið 1999 og Trump segir frábært að sjá endurkomu liðsins.
„Knicks hefur virkilega þurft að þjást í mörg ár,“ sagði Trump og uppskar hlátur. „Þeim gengur vel núna.“