Frestur til að skila inn tilboði vegna smíði brúar yfir Djúpafjörð hefur verið framlengdur til 8. september 2026. G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir það hafa verið gert vegna þess að nokkrir tilvonandi bjóðendur óskuðu eftir lengri fresti til að hafa meiri tíma til að vinna tilboð í útboðið.
„Við erum ánægð með þetta. Þetta sýnir bara mikinn áhuga á útboðinu,“ segir Pétur. Engin tilboð hafa borist í verkið enn sem komið er.
Áætluð verklok eru eigi síðar en 1. október 2028.
Djúpafjarðarbrúin verður af sambærilegri gerð og brýrnar yfir Mjóafjörð í Ísafjarðardjúpi og Eldvatn í Skaftártungu. Brúin yfir Djúpafjörð verður hins vegar bæði lengri og hærri en þær, 210 metra löng og 25 metrar á hæð og með steyptu gólfi. Hún verður 8 metrum yfir sjávarmáli og því hægt að sigla undir hana.
Aðdragandi að smíði hennar hefur verið 30 ára langur. Brúin mun stytta veginn milli Reykjavíkur og Ísafjarðar um rúma 50 kílómetra. Hún er síðasti áfangi lagningar Vestfjarðavegar um Gufudalssveit á sunnanverðum Vestfjörðum.
Verkið hefur tafist töluvert frá því að framkvæmdir hófust árið 2020. Áætlað var að þeim lyki 2024 og síðan 2026. Fyrr á árinu var áætluðum verklokum frestað til 2028. Útboð átti að hefjast í maímánuði. Tafir urðu á því og það var ekki auglýst fyrr en 10. júní, þá með tilboðsfresti til 10. júlí.
Tilboðsfresturinn hefur verið framlengdur í tvígang, fyrst fram í ágúst. Pétur segir að í bæði skipti hafi það verið gert vegna óska tilvonandi bjóðenda. Sumarleyfi í Evrópu valdi töfum á því að fá verð í stál fyrir verkið.