Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út seint í gærkvöld vegna vinnuslyss við Kirkjubæjarklaustur.
Magnús Ragnarsson aðalvarðstjóri lögreglunnar á Suðurlandi segir í samtali við fréttastofu að einn hafi verið fluttur með þyrlunni á Landspítalann í Fossvogi. Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við spítalann um klukkan hálf eitt í nótt.
Ekki er vitað um líðan einstaklingsins sem slasaðist.
Fréttin var uppfærð eftir að staðfest fékkst að slysið hafi verið vinnuslys, og fyrirsögn í samræmi við það.