Að minnsta kosti þrjú þúsund íbúar höfuðborgarinnar Líma komu saman í gær og kröfðust þess að drifið yrði í talningu atkvæða í forsetakosningum sem haldnar voru 12. og 13. apríl. „Ekkert svindl, virðið kosningarnar,“ söngluðu mótmælendur í Líma.
Æðsta úrskurðarvald í kosningamálum sagði nú um helgina að niðurstaðna úr fyrri umferð kosninganna væri ekki að vænta fyrr en um miðjan maí vegna þess hve litlu munaði á þeim sem skipa annað og þriðja sætið.
Íhaldsmaðurinn Rafael Lopez Aliaga og vinstrimaðurinn Roberto Sanchez hafa hlotið um tólf prósent atkvæða hvor.
Alls voru 35 í framboði sem er metfjöldi í forsetakosningum í Perú. Nokkrar tafir urðu á afhendingu kjörgagna þannig að framlengja þurfti kjörfund fram á mánudag í nokkrum hverfum Líma.
Hægrimaðurinn Keiko Fujimora er efst með sautján prósent atkvæða og þannig fjarri því að fá meirihluta atkvæða og því þarf að kjósa milli tveggja efstu.
Stuðningsfólk Aliaga, fyrrverandi borgarstjóra Líma, tekur undir með ásökunum hans um að yfirkjörstjórn sé með óhreint mjöl í pokahorninu. Hann vill að kosningarnar verði ógiltar án þess að leggja neitt fram sem sannar svindl og eftirlitsmenn Evrópusambandsins segja engar vísbendingar um slíkt.