Þrír slökkviliðsmenn létust í baráttu við skógarelda á Krít í Grikklandi í gær. Fjöldi elda hefur kviknað víða um landið og mikið hvassviðri ýtt undir útbreiðslu þeirra.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði Grikklands létust tveir slökkviliðsmenn á eyjunni Krít, þar sem unnið var að því að ná tökum á skógareldi í dreifbýli. Þriðji slökkviliðsmaðurinn fannst meðvitundarlaus nærri hafnarbænum Gytheio á Pelópsskaga.
Gríska ríkissjónvarpið ERT segir slökkviliðsmennina tvo á Krít hafa lokast inni í slökkviliðsbíl þegar eldurinn umlukti þá í fjallshlíðum nærri borginni Rethymno á vesturhluta eyjunnar.
Öflugar vindhviður og krefjandi aðstæður
Yfir 200 slökkviliðsmenn og 53 slökkviliðsbílar tóku þátt í aðgerðum við Rethymno í gær. Vindhraði náði allt að 102 kílómetrum á klukkustund og kom í veg fyrir að flugvélar gætu sótt sjó til slökkvistarfs.
Talsmaður grísku strandgæslunnar segir aðstæður afar erfiðar og vindhviður mjög öflugar. Eldlínan er meira en 15 kílómetra löng og talið er að íbúðarhús, landbúnaðarbyggingar og búfé hafi orðið eldinum að bráð. Umfang tjónsins liggur þó ekki fyrir þar sem ekki hefur tekist að ráða niðurlögum eldsins.
„Hugur okkar er hjá þeim, sem og öllum slökkviliðsmönnum, sjálfboðaliðum og viðbragðsaðilum sem berjast við eldana – í nýjum veruleika sem við þurfum að takast á við á hverju ári,“ sagði Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra Grikklands, þegar hann minntist slökkviliðsmannanna sem féllu í gær.
Átta þúsund manns þurft að flýja vegna eldanna
Skæðir skógareldar geisa nánast árlega í Grikklandi, þar sem miklir þurrkar, hár hiti og sterkir vindar skapa kjöraðstæður fyrir hraða útbreiðslu þeirra.
Almannavarnaráðuneyti landsins setti nokkur svæði á næsthæsta viðbúnaðarstig vegna hættu á skógareldum í dag. Þar á meðal eru Krít, höfuðborgin Aþena, austurhluti Pelópsskaga og flestar eyjar Eyjahafs.
Fram að þessu hafði Grikkland að mestu sloppið við hættulega skógarelda sem herjað hafa á einhver Evrópulönd, þar á meðal Spán og Frakkland, í sumar. Átta þúsund manns hafa nú verið flutt á brott vegna eldanna.
Í síðustu viku gekk þriggja daga hitabylgja yfir landið og hitatölur náðu allt að 43 gráðum. Samkvæmt grísku veðurstofunni hefur hiti aðeins tvisvar áður farið yfir 40 gráður á þessum tíma sumars.