Í gærkvöldi og nótt stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rekstur öryggisþjónustu sem var ekki með starfsleyfi. Það var gert eftir aðgerðir sem lögreglan og Skatturinn réðust í á skemmtistöðum í Hafnarfirði og Reykjavík í gærkvöld og nótt.
Tveimur skemmtistöðum var lokað í kjölfarið því þeir voru dyravarðalausir eftir að lögregla stöðvaði rekstur öryggisþjónustunnar. Einum skemmtistað til viðbótar var lokað að beiðni Skattsins. Í morgunpósti lögreglu segir að hún haldi eftirliti sínu og aðgerðum áfram á næstu dögum og vikum.
Í tilkynningu lögreglunnar segir að 96 mál hafi ratað á hennar borð frá því klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Þrír voru vistaðir í fangageymslum í morgunsárið.
Í dagbók lögreglu segir að maður hafi veist að dyravörðum í miðborg Reykjavíkur. Hann var fluttur á lögreglustöð en látinn laus eftir skýrslutöku.
Það var annars nokkuð um pústra í miðborginni í nótt. Engir þeirra voru þó alvarlegir, að því er segir í tilkynningunni.