Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ - Vísir

Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ - Vísir

Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ - Vísir

Hinn kanadíski Drake hóf ferilinn með útgáfu nokkurra „mixtape-a“ á fyrsta áratug þessarar aldar og gaf svo út fyrstu plötuna sína, Thank Me Later, árið 2010. Hann festi sig síðan í sessi með plötunum Take Care (2011) og Nothing Was the Same (2013) sem eru af mörgum talinn hans meistaraverk. 

Upp frá því varð hann óumdeilanlega einn stærsti rappari heims og hefur tekist ótrúlega vel að halda sér á toppum vinsældalista með hverri metsöluplötunni á fætur annarri. Ánægja gagnrýnenda með rapparann hefur hins vegar dofnað gegnum árin og hann verið gagnrýndur fyrir endurtekningasemi, óþroskaða texta og áherslu á magn umfram gæði.

Annar maður sem hefur lengi haft horn í síðu Drake er rapparinn Kendrick Lamar. Deilur milli þeirra tveggja höfðu gerjast í mörg ár og þeir laumudissað hvor annan reglulega frá árinu 2013. Deilurnar urðu hins vegar opinberar öllum þegar Lamar út lagið „Like That“ með Future í mars 2024 þar sem hann baunaði harkalega á Drake og sagðist sitja einn á toppi rapppýramídans. 

Við tóku minniháttar skærar fram og til baka milli kolleganna þar til Drake svaraði fyrir sig með laginu „Family Matters“ í maí sama ár. Þar sakaði hann Lamar um heimilisofbeldi og sagði hann ekki vera líffræðilegan föður sonar síns. 

Þar með vakti Drake tröllið og tuttugu mínútum eftir útgáfu „Family Matters“ svaraði Lamar með laginu „Meet the Grahams“ þar sem hann sagði Drake vera kynferðisbrotamann og melludólg. Lamar lét ekki þar við sitja heldur gaf degi síðar út lagið „Not Like Us“ þar sem hann sakaði Drake um barnagirnd.

Deilan mallaði áfram með stöku lögum en svo nýtti Lamar tækifærið þegar hann tróð upp í hálfleik Ofurskálar NFL-deildarinnar í febrúar 2025 til að láta Drake fá það óþvegið fyrir framan heimsbyggðina. Deilunum er hvergi nærri lokið en hin almenna skoðun er að Lamar hafi farið langt með að sigra deilurnar.

Fimm dögum eftir Ofurskálina gaf Drake út plötuna Some Sexy Songs 4 U með tónlistarmanninum PartyNextDoor en síðan þá hefur lítið farið fyrir rapparanum kanadíska. Það er þar til 15. maí síðastliðinn þegar Drake gaf út plöturnar Iceman, Habibti og Maid of Honour

Maid of Honour, Iceman og Habibti komu út 15. maí.

Gríðarvinsældir og misgóðar viðtökur gagnrýnenda

Plöturnar þrjár eru gjörólíkar og má segja að hver og ein sýni ákveðna hlið af rapparanum. Á Iceman er að finna mesta rappið, Habibti er pjúra RnB-plata og Maid of Honour inniheldur mestmegnis klúbbabangera. Umfangsmikil útgáfan virðist ekki trufla aðdáendur sem halda enn mikilli tryggð við sinn mann. Drake fór rakleitt á toppinn með plöturnar þrjár og varð sá fyrsti í sögunni til að vera með þrjár plötur í efstu sætum Billboard-vinsældarlistans.

Viðbrögð gagnrýnenda hafa ekki verið eins jákvæð en eru þó langt frá því að vera algjörlega neikvæð. Tónlistartímaritið Pitchfork, sem var lengi vel virtasta yfirvaldið í tónlistarumfjöllun, fjallaði um hverja plötu rapparans fyrir sig. Miðillinn gaf Iceman 4,8 í einkunn af 10 mögulegum og sagði Drake þar fastan í eigin sjálfsvorkunn, Habitbti fékk 6,5 og var lýst sem klisjukenndri og Maid of Honour fékk 8 í einkunn fyrir tilraunamennsku og kraft.

Drake hefur samhliða útgáfunni verið á tónleikaferðalagi.Getty

Annar sögufrægur tónlistarmiðill sem má muna sinn fífil fegurri er Rolling Stone en þar á bæ voru menn öllu jákvæðari. Iceman fékk þar verstu viðtökurnar, þrjár stjörnur af fimm; Habibti var skör ofar með þrjár og hálfa stjörnu og Maid of Honour fékk fjórar.

Breski miðillinn The Guardian tók plöturnar þrjár fyrir í einu og gaf þeim saman tvær stjörnur af fimm undir yfirskriftinni „þriggja plötu endurkoman er afburðaleiðinlegt, uppblásið stórslys“. Gagnrýnandinn undraði sig þar á þeirri ákvörðun Drake að gefa út svona mikið efni í einu og um leið drekkja góðu lögunum í uppfylliefni.

Það er óþarfi að tína til mikið fleiri dóma en heilt yfir má segja að gagnrýnendur séu óánægðir með það sama á þessum þremur nýjum plötum og þeir hafa áður gagnrýnt Drake fyrir: hann er jafnupptekinn af sjálfum sér, hann endurtekur sig of mikið og hann einblínir á magn umfram gæði.

Samningalegar ástæður og gredda í að slá met

Enn hvað finnst hlustendum? Vísir leitaði til þriggja dyggra rapphlustenda til að spyrja þá út í þreföldu útgáfuna, mögulegar ástæður Drake fyrir henni, stöðu hans eftir deilurnar við Kendrick og hvort honum takist að halda standard með svona umfangsmikilli útgáfu.

„Ég er búinn að hlusta á þessar plötur og þetta er helvíti áhugavert. Ég er dálítið mótfallinn því að gefa út of mikið af efni í einu og mér finnst það vel í lagt að gefa fólki þrjár heilar plötur.  Ég hef aldrei verið á þeirri línu sem neytandi að vilja hlusta á þrjár plötur í eina eða hlusta á plötu sem er kannski 25 lög,“ segir Logi Pedro, tónlistarmaður og hönnuður, um plöturnar.

Logi Pedro hefur verið aðdáandi Drake um árabil.Aðsend

„Þetta er bæði partur af tíðarandanum og oft út frá samningalegum forsendum. Stundum gefur fólk út plötur með stuttu millibili eða fleiri en eina samdægurs til að losna undan samningum. Stærsti hvatinn fyrir utan það er síðan streymið, þú þénar miklu meira á því að gefa út tuttugu laga plötu heldur en átta laga plötu,“ segir Logi

Ástæðurnar fyrir þreföldu útgáfunni séu fyrst og fremst tvær að mati Loga.

„Ég held að hjá Drake sé þetta fyrst og fremst samningalegs eðlis, það er allavega það sem fólk er að tala um, að hann sé að reyna að losa sig undan dreifingarsamning. Og svo held ég líka að hann vilji ná þessum metum sem hann er að elta,“ segir hann.

„Það er ekki hægt að skjóta á þetta“

Eins og áður sagði hafa viðbrögðin við plötunum verið misjöfn. Logi er heilt yfir ánægður með útgáfuna en heldur sjálfur mest upp á Iceman.

„Mér finnst þetta hafa lukkast vel og plöturnar persónulega vera allar nokkuð fínar. Svo er áhugavert hvað margir í kringum mann eru með ólíkar uppáhalds plötur. Mér finnst Iceman vera svona plata sem er þannig að því meira sem ég hlusta á hana því betri verður hún,“ segir Logi.

Á umslagi Iceman má sjá hanskaklædda hönd Drake gera tákn fyrir tölustafinn 6 sem er vísun í Toronto.

„Sumum finnst þetta hafa verið ákveðið flopp en öðrum finnst þetta negla. En tölurnar tala sínu máli, þetta eru mjög sterkar tölur og það er ekki hægt að efast um að lög eins „Janice STFU“ og „Shabang“ eru súperhittarar sem eru komnir með tugi milljóna spilanna,“ bætir hann við.

„Þetta er vel heppnað út frá gæðum og sömuleiðis frá viðskiptahliðinni. Það er ekki hægt að skjóta á þetta.“

Önnur gagnrýni sem Drake hefur fengið á sig við útgáfuna er að hann sé orðinn saddur og farinn að endurtaka sig. Logi segir svo ekki vera og hann sé frekar að festa sig enn betur á toppnum.

„Ég held það sé erfitt að fullyrða að hann hafi endanlega sannað sig með þessari útgáfu en hann er ekki búinn að tapa. Drake er í eðli sínu sigurvegari, það hefur enginn listamaður náð þessum árangri, tölum eða spilun,“ segir Logi.

„Það er erfitt að segja eftir þessa útgáfu að hann sé örugglega sá besti allra tíma (e. GOAT) en það er ekki hægt að fullyrða eitthvað annað en að hann sé sigurvegari. Eins fáránlegt og það er.“

Hálfur álfur sem varð að stærstu stjörnu samtímans

„Drake er rosalega áhugaverður karakter, hann kemur inn í tónlistarbransann sem kanadískur söngvari og rappari, hann er eiginlega hálfur álfur. Hann hefur síðan búið sér til sitt svið og haft gífurlega mikil áhrif á tónlistarbransann og hljóðheim rapptónlistar,“ segir Logi um Drake sem persónu.

„Hann fetar vissuleg sama stíg og Kanye West við að mynda mótvægi við gangsterarappinu. Drake fylgir í þau fótspor en verður á endanum algjörlega sitt eigið fyrirbæri,“ bætir hann við.

Drake er duglegur við að blanda saman tónlistarstílum.Getty

Annað sem Drake sýni enn og aftur á plötunni sé hvað hann er góður að blanda saman ólíkum stílum.

„Hann er frá Toronto sem er svo mikill suðupottur, er með þessar Karíbahafsrætur, bakgrunninn frá Houston og blandar því við ameríska RnB-ið. Hann leyfir sér að vera mjög alþjóðlegur, er master-kúrator og sækir mikið í svæðisbundna stíla, hvort sem það er Karíbahafstónlist eða tónlistarstílar innan Bandaríkjanna, hann hoppar úr Memphis-rappi yfir í New Orleans-danstónlist,“ segir Logi.

„Það er svo gaman að eiga tónlistarmann sem maður hefur hlustað á síðan maður var átján ára, rétt áður en hann gefur út Take Care. Svo fylgist maður með honum hafa þessi mótandi áhrif á tónlistarbransann og verða að stærstu stjörnu okkar tíma.“

Hver finnst þér best af þessum þremur plötum?

„Mér finnst fyrstu sex lögin á Iceman vera með betri lagarunum Drake síðustu ára. Þá er hálfur leikurinn unninn og ekki aftur snúið,“ segir Logi.

Toppar tónlistarferla annarra á einum degi

Næst heyrði blaðamaður hljóðið í Aroni Kristni, sem var áður í ClubDub og gengur undir listamannsnafninu AK RIZZ. Hann hefur verið undir miklum áhrifum frá Drake gegnum tíðina og er vægast sagt ánægður með þreföldu útgáfuna.

„Mér finnst þetta vera snilld, mér fannst platan hans í fyrra með PartyNextDoor líka vera snilld og þessi gaur er „unplayable“. Hann var að losa sig undan plötusamningi þar sem hann átti eftir að skila inn þremur plötum þannig hann gerði það allt í einu. Núna er hann sjálfstæður og stærri enn öll þessi plötufyrirtæki til samans,“ segir Aron Kristinn um Drake.

Aron Kristinn grét við hlustun lagsins „True Besties“.

„Að gefa út 43 lög á einum dagi, skalinn á þessu er ótrúlegur. Tónlistarferillinn minn er kannski 43 lög á átta árum og hann er að gera þetta á einum degi. Ofan á það er hann að túra allan heiminn og taka upp tónlistarmyndbönd. Maður nær ekki alveg að fatta hvað þetta er stórt hjá þessum gaur,“ segir Aron.

Þrátt fyrir að gefa svona mörg lög út í einu segir Aron lítið um fylliefni á plötunum þremur eða lög sem hverfa í lagaflóðinu.

„Mér finnst Maid of Honour renna mjög vel í gegn og það er ekki eitt lag þar sem verður undir. Á Habibti eru kannski tvö-þrjú lög sem eru keimlík en hann er bara að væba þar. Iceman er sú plata sem ég hef minnst náð að tengja við af þessum þremur,“ segir Aron.

Á plötuumslagi Maid of Honour er mynd af móður rapparans, Sandi Sher-Graham, með brúðarvönd og svo hafa myndir af honum sjálfum og föður hans, Dennis Graham, verið lagðar þar ofan á.

„Síðan sá ég líka að það er komið svona „Spotify Song-DNA“ þar sem þú getur skoðað hvað hver og einn hefur gert af lögum. Hann er skráður sem höfundur á 2.094 lög þannig framlegðin hjá þessum gaur er ótrúleg,“ segir Aron.

„Öll þessi met sem hann hefur verið slegið, það eru engar tilviljanir í þessu. Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma, leyfi ég mér að segja.“

Það er ekkert hægt að pota í þessa útgáfu hjá honum?

„Það eru bara hater-ar sem skjóta á hann og svo tekur bara smá tíma fyrir mann að hlusta á svona mörg lög. Ég man þegar Scorpion kom út, það voru tvö bindi með tólf og þrettán lögum og það tók mig nokkur ár að fatta það dót. Núna ákvað ég að setja mig vel inn í þessa útgáfu og þau munu bara fatta þetta seinna,“ segir Aron.

Hann er ekkert særður eftir deilurnar við Kendrick?

„Nei, hann er bara tvíefldur eftir þetta beef, ef eitthvað er og að mínu mati fannst mér hann koma frekar vel út úr því,“ segir Aron.

En hvaða lög eru best?

„Besta lagið er „BBW“ á Maid of Honour og lagið á eftir því „True Bestie“ - ég fór að gráta þegar ég heyrði það um daginn. Ég hlustaði svo á það aftur og fattaði að það eru varla trommur á því,“ segir Aron sem greindi einmitt frá því á TikTok að hann hefði grátið við hlustunina.

@aronkristinn47 Nýja Drake að klára mig… bestur #fyrirþig #íslenskt ♬ original sound - aron kristinn

Aron líkir hlustuninni á plöturnar þrjár við að fara á óperu eftir Wagner.

„Drake með þessum lögum fékk mig til að hugsa: „Oj, hvað hann er kominn langt.“ Þetta er bara spark í rassinn fyrir mann sjálfan líka, gera meira og gera betur, bomba öllu út.“

„Hann er bestur í leiknum“

Að lokum heyrði blaðamaður í einum stærsta aðdáanda Drake á Íslandi, Guðrúnu Svövu Egilsdóttur sem er betur þekkt sem Gugga í gúmmíbát. Hún á sína sögu með Drake, kastaði brjóstahaldara sínum upp á sviðið til Drake í Berlín síðasta haust og endaði svo í eftirpartýi hjá rapparanum.

Gugga í gúmmíbát er einn stærsti aðdáandi Drake hérlendis.Aðsend

„Mér finnst þetta geggjað. Fólk segir alltaf að þetta sé ömurlegt í byrjun og svo verður þetta alltaf að klassík hjá honum,“ segir Guðrún um þreföldu útgáfuna. „Ég er búin að vera að hlusta á þetta alveg síðan þetta kom út.“

„Ég er búin að vera að hlusta mest á Iceman, en ég er alveg aðdáandi hinn tveggja líka. Síðan myndi ég setja Habibti í annað sæti á undan Maid of Honour sem er kannski umdeilt,“ segir Guðrún og bætir við að hún skipti reglulega um uppáhalds plötur dag frá degi.

Hún segir erfitt að bera nýju plöturnar saman við sígildar plötur rapparans þegar svona stutt er liðið frá útgáfunni en þær séu samt engu síðri. „Það er svo erfitt að bera þetta saman við eldri plötur, maður er búinn að hlusta á Take Care í svo mörg ár,“ segir hún.

„Mér fannst persónulega hann alltaf hafa unnið þetta „beef“ við Kendrick þó það sé umdeilanlegt. Mér finnst hann koma með hittara á Iceman og er að dissa fólk á skemmtilegan máta,“ segir hún.

Er eitthvað lag sem stendur upp úr?

„Ég fíla svolítið mörg, mér finnst „Janice STFU“ geðveikt, það er banger og ég er að fíla „Shabang,“ „National Treasures,“ „Don't Worry“ og „Dust“ af Iceman,“ segir Guðrún.

Það er ekkert hægt að pota í hann, hann er ósnertanlegur eða hvað?

„Það eru allir búnir að reyna en hann er bestur í leiknum, búinn að toppa Michael Jackson,“ segir Guðrún að lokum.

Þar með hafa þessir þrír Drake-hlustendur kveðið upp sinn dóm sem er ansi hreint jákvæður. Hvort hann endurspegli skoðun hins almenna hlustanda er ómögulegt að segja. Í það minnsta verður það ekki tekið af Drake að hann er afkastamikil slagaravél sem veit hvað dyggir hlustendur vilja.

#drake #gaur #útgáfa #þessi #þreföld


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262889870d/thre-fold-ut-gafa-drake-thessi-gaur-er-staersti-rappari-allra-tima-

📰 Aðrar fréttir

Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
📅 25.07.2026 👁️ 0
More than 250,000 evacuated as wildfires rage in France and Spain
Spain's PM warns of "complex hours" ahead as authorities in France say they are far from bringing blazes burning near Bordeaux under control.
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
📅 25.07.2026 👁️ 0
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 0
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 0
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 0
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á Kýpur við fyrirspurn fréttastofu. Þar kemur fram að evrópsk handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur Ara, s...
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-16 orrustuþotu. Rannsakendur segja að ...
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
📅 25.07.2026 👁️ 1
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í ...
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
Íbúar í Piddington, örlitlu þorpi í Oxfordshire á Englandi, undirbúa táknræna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Bretlandi. Ástæðan er fyrirhuguð...
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið - Vísir
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...