„Ég held að upp séu komnir tímar þar sem þörf verður á meiri stjórnmálum og minni pólitík,“ voru skilaboð Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur í hennar síðustu þingræðu.
Þórdís Kolbrún hefur verið skipuð sendiherra frá og með 1. ágúst og tilkynnti hún í gær að hún ætlaði að segja af sér þingmennsku. Hún kvaddi sér hljóðs undir liðnum störf þingsins og notaði tækifærið til að kveðja kollega og starfsfólk Alþingis.
Alþjóðmálin voru þingmanninum fráfarandi ofarlega í huga og sagði víðsjáarverða tíma gera miklar kröfur til þeirra sem gegna ábyrgðarstöðum í samfélaginu.
„Við búum við það hér að hafa mikið samfélagslegt traust. Það hefur verið mér tíðrætt en Alexander Stubb, forseti Finnlands, orðaði það sem hið norræna gull. Ég held að það sé eitthvað sem við ættum að tileinka okkur, muna og standa vörð um og leika okkur ekki að eldinum þegar kemur að þessu samfélagslega trausti. Því það eru verðmæti sem ekki er hægt að setja pening á og við gætum þurft svo verulega á því að halda,“ sagði Þórdís Kolbrún og óskaði þingmönnum að lokum velfarnaðar.
Klökkur þingforseti
Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti þingsins, tók næst til máls.
„Af þessu tilefni vill forseti þakka háttvirtum fyrsta þingmanni Suðvesturkjördæmis — og reyna að klökkna ekki — hlý orð í garð starfsfólks Alþingis,“ sagði Þórunn, en hafði ekki alveg erindi sem erfiði.“
Þórunn bætti við að Þórdís Kolbrún yrði kært kvödd, að sinni.