Byrjað var að reisa Heimskautsgerðið á Melrakkaási norðvestan við Raufarhöfn árið 2004. Gerðið er listaverk sem sækir innblástur í norræna goðafræði og stjörnufræði, gert úr steinsteypu. Verkefnið hefur að mestu verið fjármagnað af ríkinu, aðallega með styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Skúlptúrinn Altari elds og vatns var settur upp í fyrra
„Við kláruðum fyrsta skúlptúr af fjórum í miðjunni á Heimskautsgerðinu síðastliðið haust. Pólstjörnubendirinn, Hásæti sólar og Geislakór eiga eftir að koma,“ segir Nanna Steina Höskuldsdóttir, stjórnarformaður Heimskautsgerðisins.
Óvissa um frekara fjármagn
Óvíst er um frekari fjármögnun eins og sakir standa. Talið er að á annað hundrað milljónir króna vanti til að ljúka verkinu og ekki er ljóst hvenær framkvæmdir hefjast á nýjan leik. Heimskautsgerðið laðar þúsundir gesta til Raufarhafnar ár hvert.
„Það er ekkert stress. Þetta er búið að taka tæp 20 ár að byggjast upp. Heimskautsgerðið er bara mjög flottur viðkomustaður í dag þótt það sé ekki alveg tilbúið. Við erum að fá á bilinu 22-25 þúsund gesti á ári og það er ekkert stress. Þetta er byggt til að endast í þúsund ár, þetta bara kemur smátt og smátt,“ segir Nanna.
Tækju vel á móti stórhljómsveitum
Verkið sækist auðvitað hægt þar sem hver skúlptúr er mörg tonn. Hugmyndir um stórtónleika undir berum himni, eins og Kaleo hélt á Þingvöllum, hafa hvarflað að Raufarhafnarbúum enda hefur Skálmöld haldið útitónleika í gerðinu og hver veit hverjir verða næstir.
„Það væri ofboðslega gaman, það var hrikalega skemmtilegt þegar Skálmöld spilaði hjá okkur. Það mættu yfir 1600 manns og bara var mikil lukka með það heilt yfir. Fengum geggjað veður og gekk allt upp. En mín persónulega skoðun er að þetta megi ekki alveg vera árlegt en já, já þegar að Metallica eða Rammstein hringir þá hendum við okkur í gírinn,“ segir Nanna.