Tengdamóðir 33 ára gamallar indverskrar fyrirsætu og leikkonu, sem fannst látin á heimili sínu og eiginmanns hennar 12. maí, var handtekin í gær vegna máls sem vakið hefur gríðarlega athygli á Indlandi og víðar.
Twisha Sharma, fyrirsætan og leikkonan, hafði aðeins verið gift eiginmanni sínum, Samarth Singh lögfræðingi, í fimm mánuði þegar hún fannst látin á heimili þeirra og grunar lögreglu að lögfræðingurinn og móðir hans, Giribala Singh, dómari á eftirlaunum, hafi pyntað og að lokum myrt Sharma vegna krafna þeirra á hendur fjölskyldu hennar um aukinn heimanmund með dótturinni.
Þessu halda foreldrar og systkini Sharma fram á meðan Singh-mæðginin neita staðfastlega og bera því við að Sharma hafi fyrirfarið sér á heimili þeirra eiginmanns hennar í Bhopal í Madhya Pradesh-fylkinu á Mið-Indlandi.
Lykilsönnunargögn hundsuð í héraði
Handtók indverska rannsóknarlögreglan CBI dómarann fyrrverandi í gær eftir að hafa yfirheyrt hana í nokkrar klukkustundir en áður hafði Hæstiréttur Madhya Pradesh í Jabalpur synjað henni um tryggingu gegn væntanlegri handtöku (e. anticipatory bail), úrræði sem aðili, sem óttast að verða handtekinn vegna grunsemda í hans garð, getur farið fram á og gengur þá laus gegn greiðslu tryggingar þrátt fyrir ákvörðun um handtöku.
Taldi Hæstiréttur héraðsdóm hafa litið fram hjá lykilsönnunargögnum í málinu auk framburðar vitna og ætti Singh því ekki heimtingu á að njóta úrræðisins.
Samarth Singh var handtekinn í síðustu viku og sitja þau móðir hans því bæði bak við lás og slá.
Vekur enn á ný umræðu um heimanmundardráp
Mál Sharma og Singh-mæðginanna hefur, ekki í fyrsta sinn, vakið mikla umræðu í indversku samfélagi um brúðardráp vegna þess sem eiginmaður eða fjölskylda hans telja ónógan heimanmund. Þúsundir kvenna eru myrtar ár hvert á Indlandi af þessum sökum þótt bann hafi verið lagt við slíkum manndrápum í landinu árið 1961.
Foreldrar Sharma telja ofsóknir mæðginanna á hendur dótturinni hafa hafist fljótlega eftir brúðkaupið og halda því auk þess fram að þegar Sharma varð ólétt hafi Singh og móðir hans sakað hana um hjúskaparbrot og neytt hana í fóstureyðingu. Þessu vísa mæðginin enn fremur á bug og fullyrða að leikkonan hafi ekki verið heil á geðsmunum og að lokum fyrirfarið sér.
Lík Sharma var brennt á sunnudaginn í kjölfar tveggja réttarkrufninga en eftir þá fyrri setti fjölskylda hennar fram ásakanir um að niðurstöðurnar hefðu verið falsaðar í tilraun lögreglunnar til að hylma yfir með mæðginunum gegn staðfastri neitun lögreglunnar þar um.