Fjallað er um málið á vef RÚV en þar kemur fram að Guðmundur Björgvin hafi sent þingmönnum bréf fyrir helgi sem fréttastofan hafi undir höndum.
Fjallað var um það í janúar á þessu ári að forsætisnefnd myndi taka fyrir tilkynningar um EKKO-mál af hálfu ríkisendurskoðanda. Sérstakt verklag hefði verið útbúið fyrir meðferð tilkynninganna. Forseti Alþingis sagði þá verklagið í samræmi við opinbert verklag.
Töluvert hefur verið fjallað um mál Guðmundar á vef Vísis. Guðmundur Björgvin tók við embætti ríkisendurskoðanda í júní árið 2022 og herma heimildir Vísis að um hálfu ári eftir að hann tók við hafi farið að bera á ósæmilegri hegðun. Hann á að hafa sagt að fjörutíu prósent starfsmanna embættisins væru drasl og að hann þyldi hvorki vinnustaðinn né starfsfólkið.
Í október 2025 tók Guðmundur Björgvin sjálfur við öllum mannauðsmálum í kjölfar þess að þrír sviðsstjórar, þar á meðal mannauðsstjórinn, fóru í leyfi vegna ástandsins. Jóhannes Jónsson var meðal sviðsstjóra sem fóru í leyfi en hann hyggst ekki snúa aftur. Hann sagði frá því í færslu á Facebook en fjallað var um það á Vísi.
Í frétt RÚV segir að í desember hafi forsætisnefnd falið óháðum aðila að gera úttekt á stöðu mannauðsmála hjá stofnuninni og að nefndin hafi fengið greinargerð vegna úttektarinnar í apríl og ríkisendurskoðandi svo skilað umsögn 1. maí.
Í fréttinni er svo vitnað í bréfið sem Guðmundur sendi nefndinni þar sem kemur fram að það sé hans skilningur að hann hafi ekki sýnt af sér EKKO-háttsemi en að málsmeðferð feli í sér „margföld brot gagnvart ríkisendurskoðanda, jafnt af hálfu þjónustuaðilans, sem og forseta Alþingis, skrifstofustjóra og forsætisnefndar“.