Rekstrarhagnaður Símans, fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA), var tæplega 1,4 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2026. Rekstrarhagnaður jókst um 90 milljónir króna eða 7,1% frá sama tímabili á síðasta ári.
Tekjur á fyrsta ársfjórðungi 2026 námu alls tæplega 7,3 milljörðum króna samanborið við 7,2 milljarða á sama tímabili 2025 og hækkuðu um 1,1%.
Tekjur af auglýsingamiðlun Símans námu 607 milljónum króna samanborið við 563 milljónir króna á sama tímabili í fyrra og hækkuðu því um 7,8%. Vörusala jókst um 8,4% á milli ára.
Hagnaður Símans á tímabilinu var 171 milljón króna samanborið við 188 milljóna króna tap á sama tímabili 2025. Viðsnúningurinn er því um 360 milljónir.
Eiginfjárhlutfall Símans var 35,4% í lok fyrsta ársfjórðungs og eigið fé 16,7 milljarðar króna.
María Björk Einarsdóttir, forstjóri Símans, segir afkomu fyrsta ársfjórðungs í samræmi við áætlanir og að hún beri merki um stöðugleika.
„Þrátt fyrir að við höfum séð fækkun viðskiptavina í fjarskiptum og sjónvarpi á haustmánuðum voru tekjur af kjarnavörum Símans óbreyttar milli ára en aftur á móti hækkaði kostnaðarverð seldra vara milli ára, einkum vegna vísitölutengds kostnaðar innviðabirgja og kjarasamningsbundinna launahækkana,“ segir María Björk í tilkynningu frá Símanum.
Í mars var tilkynnt um möguleg kaup Símans á útvarps- og vefmiðlum Sýnar. María segir að verði af viðskiptunum muni sameinað miðlafyrirtæki undir móðurfélaginu Ásum verða í góðri stöðu. Undir móðurfélaginu Ásum verða einnig Greiðslumiðlun Íslands, Opin kerfi og Öryggismiðstöð Íslands sem Síminn tilkynnti um kaup á fyrr á þessu ári.